Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Íbúafundur um borgarmál mánudaginn 12. febrúar kl 20:00 í Gerðubergi í Breiðholti. Kaffi og kleinur í boði. Allir velkomnir. Hvert stefnir Reykjavík? Borgarráð hefur heimilað um- hverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við boltagerði á grunnskólalóðum borgarinnar í sumar. Áætlaður kostnaður er 50 milljónir króna. Framkvæmdir hefjast í maí og þeim á að ljúka í ágúst. Nýju boltagerði verður komið fyrir á lóð Grandaskóla í Vestur- bænum og hafinn er undirbún- ingur vegna boltagerðis á lóð Húsaskóla í Grafarvogi. Lagfær- ingar og endurnýjun fyllingarefnis verður á boltagerðum neð- angreindra skóla: Foldaskóli, Hamraskóli, Vættaskóli/Engi, Breiðagerðisskóli, Fossvogsskóli, Melaskóli, Árbæjarskóli, Norð- lingaskóli og Selásskóli. Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, Halldór Halldórsson, bókaði um málið. Hann minnti á að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins lögðu til við afgreiðslu fjár- hagsáætlunar Reykjavíkurborgar í desember sl. að haldið yrði áfram lagningu sparkvalla með gervigrasi við grunnskóla í borginni eftir fjög- urra ára hlé. Tillagan kvað á um að 90 milljónum króna yrði varið til verkefnisins á árinu 2018 og að stefnt skyldi að því að slíkir vellir yrðu komnir við alla borgarrekna grunnskóla eigi síðar en árið 2020. Ánægjulegt væri að tillaga Sjálf- stæðisflokksins hefði orðið til þess að hefja á lagningu sparkvalla með gervigrasi við reykvíska grunn- skóla á ný eftir of langt hlé. „Hins vegar þyrfti að leggja þrjá velli á ári næstu þrjú árin til að ná því markmiði að slíkur völlur yrði kominn við alla borgarrekna grunnskóla árið 2020 og telja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins brýnt að það verði gert,“ segir m.a. í bókun Halldórs. sisi@mbl.is Líflegt Boltagerðin hafa slegið í gegn hjá börnum um allt land. Borgin mun setja 50 milljónir í boltagerði  Nýju boltagerði verður komið fyrir við Grandaskóla  Lagfæringar við níu skóla Morgunblaðið/RAX Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Stjórn Faxaflóahafna ákvað á fundi sínum í gær að fela Gísla Gíslasyni hafnarstjóra að láta vinna að hönnun nýrrar bryggju, þar sem núverandi verbúðarbryggja næst Sjóminjasafn- inu er metin ónýt. Kostnaður við að smíða nýja samsvarandi bryggju er talinn 100 milljónir króna. Í Vesturhöfn Gömlu hafnarinnar í Reykjavík eru fjórar timburbryggj- ur. Sú ysta, Síldarbryggjan, hefur verið breikkuð og endurbætt á síð- ustu áratugum og telst í þokkalegu ástandi. Innri bryggjurnar þrjár kall- ast einu nafni Verbúðabryggjur. Ytri bryggjurnar tvær voru opnaðar, tek- inn af þeim mesti hallinn og þær end- urnýjaðar upp úr 1990. Í minnisblaði Helga Laxdal, for- stöðumanns rekstrardeildar Faxa- flóahafna, kemur fram að innsta bryggjan við Sjóminjasafnið hefur lítið viðhald fengið síðustu áratugi. Árið 2007 var gamla varðskipinu Óðni komið fyrir við bryggjuna og hefur legið þar síðan. Dráttarbátur- inn Magni liggur einnig við sömu bryggju. Þegar ákveðið var að Óðni yrði komið þarna fyrir voru reknir niður stálstaurar við bryggjuna og festingum fyrir skipið komið fyrir á þeim. Bryggjunni hallar mikið fram og því var í framhaldinu gerður fjöru- tíu metra langur og tæplega þriggja metra breiður göngupallur út að landgangi skipsins. Bryggjunni var lokað með girðingu svo óviðkomandi umferð kemst nú ekki þar út. Bryggjan er um sextíu metra löng og sjö metra breið timburbryggja. Í bryggjunni eru um tuttugu stífaðir rammar með fjórum staurum í hverri eða alls um áttatíu staurar. Ástand þeirra er orðið mjög slæmt og margir étnir sundur, segir Helgi í minnis- blaðinu. Bitar og tangir eru einnig orðnar mjög lasburða. „Ekki liggur fyrir nýlegt mat á núverandi ástandi en ljóst er að ekki verður um að ræða að gera endurbætur á bryggjunni heldur algera endurnýjun. Nú nýlega losnaði hluti af fender-klæðningu frá að ofanverðu. Festingar klæðningar- innar höfðu gefið sig og afhjúpuðu enn frekar dapurt ástand bryggjunn- ar,“ segir Helgi. Óðinn liggur hins vegar, sem fyrr segir, við stálstaura sem eru óháðir sjálfri bryggjunni og umferð er tak- mörkuð við gangandi fólk. Óðinsbryggjan hef- ur verið dæmd ónýt  Bryggjustaurar étnir í sundur  Kostnaður 100 milljónir Ljósmynd/Faxaflóahafnir Verbúðarbryggjan Endurnýja þarf þessa gömlu bryggju alveg frá grunni. Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er stödd í Suður-Kóreu, þar sem hún m.a. var viðstödd setningarathöfn Vetraról- ympíuleikanna í gær. „Þetta er stórglæsilegt hér í Pyeongchang og rosalega vel skipu- lagt hjá þeim. Það er greinilega mikill metnaður hjá Suður-Kóreumönnum að standa sem glæsilegast að þessum viðburði. Íslensku keppendurnir eru mjög vel stemmdir og mjög spenntir að hefja keppni,“ sagði Lilja í samtali við Morgunblaðið í gær, rétt áður en íslensku fulltrúarnir áttu að ganga fylktu liði til athafnarinnar. Lilja segir að mikil stemning hafi verið í loftinu í aðdraganda setningar- athafnarinnar. „Það er auðvitað skilj- anlegt að svona mikil stemning sé gagnvart þessum Vetrarólympíu- leikum, enda eru þeir sögulegir, þar sem það gerist í fyrsta sinn eftir Kór- eustríðið að Suður- og Norður-Kórea keppa undir sameiginlegu flaggi. Auðvitað veit enginn hvort það verð- ur jákvæð framvinda í samskiptum þjóðanna í kjölfar Ólympíuleikanna en það hefur þó skapast ákveðin von í anda leikanna,“ sagði Lilja Alfreðs- dóttir jafnframt. „Stórglæsilegt og vel skipulagt“  Ráðherra við setningu ÓL í S-Kóreu AFP Setningin Menntamálaráðherra segir umgjörð Vetrarólympíuleikanna í Suður-Kóreu stórglæsilega og það var setningarathöfnin í gær líka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.