Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í upphafi ársins hefur verið mikil
umræða um stofnleiðir á höfuðborg-
arsvæðinu. Íbúar á Vesturlandi
krefjast úrbóta á Vesturlandsvegi á
Kjalarnesi og Hafnfirðingar vilja að
tafarlaust verði ráðist í breikkun
Reykjanesbrautar í bænum.
Ein er sú leið úr höfuðborginni
sem ekkert hefur verið í um-
ræðunni og enginn þrýstihópur hef-
ur myndast um hana. Það er Suður-
landsvegur frá gatnamótunum við
Vesturlandsveg að kaflanum Sand-
skeiði sem búið er að breikka. Um-
ræddur vegarkafli, með eina akrein
í hvora átt, er 11,3 kílómetra lang-
ur.
Breikkun þessa vegarkafla er
ekki á samgönguáætlun og deili-
skipulag liggur ekki fyrir, sam-
kvæmt upplýsingum G. Péturs
Matthíassonar, upplýsingafulltrúa
Vegagerðarinnar.
Stuttur kafli verkhannaður
Hins vegar er búið að verkhanna
kafla frá Vesturlandsvegi að Bæj-
arhálsi, en sá hluti vegarins hefur
verið sprengdur niður. Kostnaðar-
mat fyrir breikkunina á þessum
kafla hljóðar gróflega upp á 5.000
milljónir króna. Er þá reiknað með
að áfram verði hringtorg við Breið-
holtsbraut og Norðlingavað en ann-
ars mislæg gatnamót. Breikkunin
yrði væntanlega unnin í áföngum.
Miðað við umferðartölur á þess-
um kafla frá árinu 2016 er sólar-
hringsumferð 10-19 þúsund bílar.
Þyngsta umferðin er innan höfuð-
borgarinnar.
Nú stendur yfir vinna við endur-
skoðun 4 ára og 12 ára samgöngu-
áætlana. Afrakstur þeirrar vinnu
mun liggja fyrir á þessu ári og sam-
gönguáætlanir lagðar fram á Al-
þingi. Þá kemur í ljós hvort þessi
vegarkafli verður settur á áætlun.
Á síðasta ári var skipaður starfs-
hópur til að skoða leiðir til sér-
stakrar fjármögnunar í því skyni að
flýta framkvæmdum við helstu
stofnvegi til og frá höfuðborgar-
svæðinu. Hópurinn skilaði tillögum
sínum til ráðherra í september sl.
Stofnleiðir sem hópurinn skoðaði
voru þessar:
Suðurlandsvegur frá Vestur-
landsvegi austur fyrir Selfoss.
Reykjanesbraut frá Kaplakrika
að Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Vesturlandsvegur frá Suður-
landsvegi að Borgarnesi.
Heildarkostnaður við umrædda
vegarkafla var áætlaður 56 millj-
arðar eða um 47 milljarðar án virð-
isaukaskatts. Framkvæmdatími var
áætlaður 8 ár.
Í framkvæmdaáætlun fyrir átta
ára tímabilið, sem fylgdi skýrslunni,
er gert ráð fyrir að Suðurlands-
vegur frá Vesturlandsvegi að Lög-
bergi verði breikkaður á árabilinu
5-6.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd skoðaði nefndin einnig
breikkun Suðurlandsvegar frá
Kömbum að Biskupstungnabraut,
austan Selfoss.
Kostnaður við kaflann frá
Kambarótum að Hveragerði er
metinn 1.600 milljónir króna og frá
Hveragerði að Biskupstungnabraut
5.000 milljónir, eða samtals 6.600
milljónir. Þegar ráðist verður í
þessa framkvæmd þarf að byggja
nýja brú yfir Ölfusá við Selfoss en
kostnaður við hana er metinn 5.500
milljónir.
Á átta ára framkvæmdatímabili
er reiknað að þessar framkvæmdir
verði á árabilinu 1-4.
Veggjöld verði tekin upp
Í skýrslunni leggur starfshópur-
inn til að tekin verði upp veggjöld
til þess að flýta framkvæmdum og
auka um leið öryggi vegfarenda.
Framkvæmdirnar verði fjármagn-
aðar með lánum til allt að 30 ára.
Gjaldtakan standi straum af fram-
kvæmdum og gjaldtakan falli niður
þegar lánin hafa verið greidd.
Í töflu sem fylgir skýrslunni má
sjá að tekjur ríkissjóðs af ökutækj-
um voru 45.765 milljónir króna árið
2016. Markaðar tekjur til vegagerð-
ar voru hins vegar aðeins 18.027
milljónir.
Morgunblaðið/Eggert
Suðurlandsvegur Þetta er eini kafli vegarins, frá Vesturlandsvegi, sem hefur verið verkhannaður.
Suðurlandsvegur er
ekki enn á áætlun
Breikkun innan Reykjavíkur kostar 5.000 milljónir króna
Suðurlandsvegur Græna línan sýnir fullkláraðan kafla vegarins. Fjólubláu
línurnar sýna kaflana sem eftir er að breikka. Það verk gæti tekið átta ár.
Íbúar við Brekkugerði og Stóra-
gerði, 40 talsins, gera alvarlegar at-
hugasemdir við færslu bílastæða við
Hvassaleitisskóla.
Í nóvember í fyrra auglýsti
Reykjavíkurborg tillögu að breyt-
ingu á deiliskipulagi fyrir skólann
með athugasemdafresti til 9. jan-
úar. Í henni fólust m.a. ný stæði
fyrir hreyfihamlaða, útbúin við að-
alinngang skólans og gert var ráð
fyrir að önnur bílastæði (alls 32
stæði) verði færð innan skólalóðar, í
suðvesturhorn lóðarinnar, með
nýrri aðkomu frá Brekkugerði.
Hvassaleitisskóli var byggður ár-
ið 1965 og stækkaður 1999. Í skól-
anum eru nemendur 1.-7. bekkjar
og eru þeir um 500 talsins. Fram
kom í deiliskipulagstillögunni að
markmið breytinganna væri að
bæta aðkomu að skólanum, tryggja
öryggi nemenda, starfsmanna og
annarra vegfarenda. Hugmyndin
væri að skilja að umferð og leik,
m.a. með því að gera núverandi
bílastæði að leiksvæði nemenda,
með áherslu á íþróttaþrek og
þrautaleiki.
Íbúarnir við Brekkugerði og
Stóragerði gerðu athugasemd og
telja deiliskipulagsbreytinguna með
öllu óskiljanlega. Ekki verði annað
sé en að breytingin gangi gegn
megináherslum skólayfirvalda um
aukið öryggi á lóð skólans. Þessi
óþarfa deiliskipulagsbreyting hafi
þau einu raunverulegu áhrif að
færa 32 bílastæði með tilheyrandi
kostnaði fyrir borgarbúa og um-
fangsmiklu óhagræði og skerðingu
á gæðum eigna í Brekkugerði og
Stóragerði.
sisi@mbl.is
Mótmæla flutningi
32 bílastæða
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Skólinn Hvassaleitisskóli var
byggður 1965 og stækkaður síðar.
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Arðsamt fyrirtæki með langa reynslu sem flytur inn og selur
véltæknibúnað aðallega tengdum sjávarútvegi, fiskeldi, en einnig
öðrum iðnaði. Velta undanfarin ár hefur verið á bilinu 150-200 mkr.
og EBITDA 25-40 mkr.
• Þekkt verslun með tölvur, síma og fylgihluti á frábærum stað. Velta
yfir 300 mkr.
• Vel innréttað kaffihús í miðbæ Reykjavíkur. Tækifæri fyrir öfluga aðila
að byggja enn frekar upp.
• Fjölskyldufyrirtæki sem vinnur að hönnun, prentun og framleiðslu
vara og lausna til fyrirtækja. Velta um 70 mkr. og hátt
hagnaðarhlutfall.
• Gott hótel miðsvæðis á Suðurlandi sem býður upp á mikla möguleika
fyrir áhugasaman, nýjan eiganda.
• Sérhæfð fiskvinnsla í vönduðu 350 fm. leiguhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu. Velta um 260 mkr. Hagnaður af rekstri.
• Verslun sem byggir á erlendri skartgripalínu með tvær verslanir í
borginni. Stöðugur rekstur og góð afkoma.
• Gott fyrirtæki með áratuga sögu sem sérhæfir sig í vélaviðgerðum og
sölu varahluta sem það flytur sjálft inn. Velta nokkuð stöðug
undanfarin ár og jákvæð afkoma.
• Nýtt, lítið og sérlega fallegt hótel í Reykjanesbæ. Fær mjög góða
dóma á bókunarsíðum. Yfir 90% nýting.
• Hótelfasteign á Norðausturlandi. Um er að ræða 17 herbergja hótel
á stórri lóð með mikla stækkunarmöguleika. Herbergi hafa nýlega
verið endurnýjuð.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is