Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 | fastus.is
fastus.is
GÓÐIR SKÓR –
GLAÐIR FÆTUR
Mikið úrval af vönduðum skóm fyrir atvinnufólk í eldhúsi
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Þótt XXIII. Vetrarólympíuleikarnir,
sem hófust formlega í gær, séu
haldnir í Suður-Kóreu hefur ná-
grannaríkinu í norðri tekist að koma
sér þar í alþjóðlegt sviðsljós. Há-
punktur setningarathafnarinnar í
gær var þegar ólympíulið Norður-
og Suður-Kóreu gengu saman inn á
leikvanginn í Pyeongchang undir
hvítum og bláum fána.
Óvænt samkomulag náðist í jan-
úar milli stjórnvalda í Norður- og
Suður-Kóreu um að ólympíulið þess-
ara landa myndu ganga saman inn á
leikvöllinn í setningarathöfninni
undir sama fána. Og Kim Jong-un,
leiðtogi Norður-Kóreu, sendi þing-
forseta landsins, Kim Yong-nam, og
yngri systur sína, Kim Yo-jong, til
Suður-Kóreu til að taka þátt í setn-
ingu leikanna.
Kim Yo-jong, sem sögð er valda-
mikil í norðurkóreska stjórnkerfinu,
er sú fyrsta úr Kim-fjölskyldunni,
sem fer suður yfir landamærin frá
því afi hennar, Kim Il-sung, fór til
Seoul eftir að borgin var hertekin í
upphafi Kóreustríðsins árið 1950.
Stríðinu lauk þremur árum síðar
þegar samið var um vopnahlé en
löndin tvö hafa ekki gert formlegan
friðarsamning.
Pence settist ekki
Í formlegu kvöldverðarboði í gær,
fyrir setningarathöfn leikanna, sátu
Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu,
og Kim Yong-nam við háborðið.
Mike Pence, varaforseti Bandaríkj-
anna, átti að sitja þar einnig, beint á
móti norðurkóreska þingforsetan-
um. Talsmaður suðurkóreska for-
setaembættisins sagði að Pence
hefði komið að borðinu, kastað
kveðju á þá sem þar sátu og yfirgefið
salinn án þess að setjast niður.
En við setningu leikanna sátu
norðurkóresku gestirnir í heiðurs-
stúku ásamt suðurkóresku forseta-
hjónunum, Pence og fleiri þjóðar-
leiðtogum. Moon heilsaði Kim
Yo-jong með handabandi við upphaf
athafnarinnar og þau tókust aftur í
hendur þegar kóresku íþróttamenn-
irnir gengu inn á leikvanginn.
Með þessu var staðfest sú þíða,
sem orðið hefur í samskiptum land-
anna á síðustu vikum en á síðasta ári
ríkti mikil spenna á Kóreuskaga
vegna kjarnorku- og flugskeytatil-
rauna Norður-Kóreu
Suðurkóreska ólympíunefndin
baðst í gær formlega afsökunar á því
að íranskir keppendur í Pyeongc-
hang fengu ekki að gjöf sérstaka far-
síma, sem Samsung hefur framleitt í
tilefni leikanna. Var það sagt á mis-
skilningi byggt. Norðurkóresku
keppendurnir fá ekki þessa síma
vegna alþjóðlegra viðskiptaþvingana
sem landið sætir.
Sögulegt handaband við
setningu Ólympíuleikanna
AFP
Í heiðursstúkunni Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, Kim Yong-nam, forseti norðurkóreska þingsins, Kim
Yo-jong, systir leiðtoga Norður-Kóreu, og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, í heiðursstúkunni í Pyeongchang.
Forseti Suður-Kóreu og systir leiðtoga Norður-Kóreu tókust í hendur
Saman Ólympíulið Norður- og Suð-
ur-Kóreu gengu undir sama fána.
Vinsæll Pita Taufatofua frá Tonga,
lét kuldann ekki á sig fá við setn-
ingu Vetrarólympíuleikanna í gær.
Donald Trump
staðfesti í gær
fjárlög banda-
ríska ríkisins
sem fulltrúadeild
Bandaríkjaþings
samþykkti loks í
gærmorgun.
Fjárlögin
byggjast á sam-
komulagi demó-
krata og repúblikana á Bandaríkja-
þingi og gera m.a. ráð fyrir
stórauknum framlögum til her-
mála.
Trump staðfesti
fjárlögin
Donald Trump
BANDARÍKIN
Evrópuþingið í Strassborg lagði í
vikunni til að reglur um sumar- og
vetrartíma yrðu endurskoðaðar
þannig að hætt yrði að breyta
klukkunni á hálfs árs fresti.
Í tillögu, sem samþykkt var með
miklum mun á þinginu, er fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
hvött til að gera úttekt á núverandi
kerfi og afnema það ef niðurstaða
úttektarinnar mæli með því.
Í greinargerð með tillögunni er
m.a. bent á að það geti haft slæmar
afleiðingar á heilsufar fólks að
hringla með klukkuna. Nú tekur
sumartími gildi í lok mars en vetr-
artími í lok október.
Hér á landi er klukkunni ekki
breytt og má segja að sumartími
gildi allt árið. Starfshópur sem ís-
lensk stjórnvöld skipuðu á síðasta
ári lagði í vikunni til að klukkan
yrði færð aftur um eina stund en
mælti gegn því að hafa hér bæði
sumar- og vetrartíma.
Vetrarsól Evrópuþingið vill skoða að
hætta að breyta klukkunni vor og haust.
Vilja endurskoða
sumar- og vetrartíma
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STRASSBORG
Danska konungshöllin sagði í gær
að heilsu Hinriks prins, eiginmanns
Margrétar Danadrottningar, hefði
hrakað.
Hinrik greindist nýlega með góð-
kynja æxli í vinstra lunga. Hann
fékk í kjölfarið lungnasýkingu og
hefur legið á Rigshospitalet í Kaup-
mannahöfn frá því í lok janúar.
Friðrik krónprins flýtti í gær för
sinni heim frá Suður-Kóreu þar
sem hann ætlaði að vera viðstaddur
setningarathöfn Vetrarólymp-
íuleikanna.
Margrét drottning vitjaði Hinriks
á sjúkrahúsinu síðdegis í gær ásamt
Jóakim syni sínum og tveimur
börnum hans og þau dvöldu þar í
um klukkustund. Fyrr um daginn
kom Mary, eiginkona Friðriks,
þangað ásamt tveimur börnum
þeirra.
Danska konungshöllin tilkynnti í
september á síðasta ári að Hinrik,
sem er 83 ára, hefði greinst með
heilabilun sem gæti dregið úr dóm-
greind hans og haft áhrif á við-
brögð hans í samskiptum við aðra.
Hinrik hafði skömmu áður lýst því
yfir í blaðaviðtali að hann vildi ekki
láta grafa sig við hlið eiginkonu
sinnar.
AFP
Sjúkravitjun Margrét Danadrottning yfirgefur Rigshospitalet í gær.
Heilsu Hinriks
Danaprins hrakar