Morgunblaðið - 10.02.2018, Side 29

Morgunblaðið - 10.02.2018, Side 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Á árinu 2010 var gerð breyting á lög- um um dómstóla. Með breytingunni var kveðið á um að dóm- nefnd um embætti hæstaréttardómara skyldi raða umsækj- endum eftir hæfni og yrði dómsmálaráð- herra skylt að skipa þann sem nefndin setti í efsta sæti, nema ráðherra bæri málið undir Alþingi og það samþykkti tillögu hans um annan hæfan umsækj- anda. Þessi lagabreyting hefur valdið allmiklum deilum. Fræðimenn hafa jafnvel talið að hún stæðist ekki 14. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem segir að ráðherrar beri ábyrgð á „stjórnarframkvæmdum öllum“. Hafa menn þá bent á að dómnefndin, sem enga ábyrgð ber gagnvart almenningi og hefur ekkert aðhald í störfum sínum, ráði því í reynd hverjir verða skuli dómarar. Þannig hefur það líka verið frá því reglan tók gildi. Í stjórnarskrárreglunni felist hins vegar krafa um að ráðherra skuli ákveða hvern skipa skuli, þar sem hann beri ábyrgð á ákvörðuninni. Gengið erinda Tilnefningum í þessa nefnd er hagað með þeim hætti að dómara- elítan sem situr í Hæstarétti og lögfræðingahópurinn kringum hana hafa haft tögl og hagldir við skipun í nefndina. Á tímabilinu, sem liðið er síðan lagabreytingin tók gildi, hefur nefndin sýnt að hún gengur erinda þessarar elítu og hefur með aug- ljósum rangindum sett í efsta sæti um- sækjendur sem vitað er að dómurunum við Hæstarétt hugnast helst að fá í hópinn. Koma þar til persónu- leg tengsl og vin- skapur dómaranna við viðkomandi umsækj- endur. Aðrir sem sótt hafa um hafa mátt líða fyrir þessa augljósu hlutdrægni. Svonefnd réttarfarsnefnd samdi frumvarpið að lagabreytingunni 2010. Þá var Markús Sigurbjörns- son, þáverandi forseti Hæsta- réttar, formaður nefndarinnar. Markús er mætur maður og góð- gjarn. Í nefndinni átti þá einnig sæti meðal annarra Stefán Már Stefánsson, þá prófessor við Há- skóla Íslands, mætur maður og góðgjarn. Stefán hefur síðan átt sæti í einhverjum dómnefndanna sem metið hafa umsækjendur. Tillögumaður dæmir Á síðasta ári var fjallað fyrir dómi um skipun tveggja dómara að Landsrétti. Sérstakar reglur giltu um þá skipan, sem tóku með- al annars mið af því að verið var að skipa 15 dómara í einu lagi. Töldu málsóknarmenn að ráð- herrann hefði brotið á þeim rétt með því að skipa þá ekki í emb- ætti. Þó að reglurnar væru í þessu tilviki sérstakar fyrir þessar ákvarðanir komu störf dómnefnd- ar samt mjög við sögu í deilunni og skylda ráðherra til að fylgja þeim í einu og öllu. Flestir dómarar við Hæstarétt viku sæti í þessum málum, þegar þau voru dæmd 19. desember sl. Voru kallaðir inn varadómarar. Einn þeirra var Stefán Már Stef- ánsson sem átt hafði aðild að til- lögunni um hina umdeildu laga- reglu frá árinu 2010, sem meðal annars var tekist á um í málinu. Eiginkonan Síðan þessir dómar féllu hefur mikið verið um þá rætt og laga- legan grundvöll þeirra. Þá vekur athygli að fréttastofa RÚV, sem mikið hefur fjallað um málið í sýnilegum erindagjörðum gegn dómsmálaráðherra, hefur ávallt kallað til viðtals prófessorinn í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands, Björgu Thorarensen, sem er mæt kona og góðgjörn. Það er þó synd að fréttastofunni skuli þá jafnan hafa láðst að geta þess að prófessorinn er eiginkona Mark- úsar, formanns réttarfarsnefnd- arinnar sem samdi frumvarpið umdeilda um árið. Svo undarlega vill til að prófessorinn er alltaf sammála eiginmanninum. Sam- heldin hjón þar á ferð. Þó að þeir þrír lögfræðingar, sem hér hafa verið nefndir, séu alls góðs maklegir, er ljóst að þeir telja að dómaraelítan eigi að ráða því hverjir komi nýir inn í dóm- arahópinn, þótt hún beri enga ábyrgð að lögum á ákvörðunum um skipan nýrra dómara. Kannski er kominn tími til að þjóðin – og þar með taldir nokkrir hávaðasamir alþingismenn – átti sig á því hvað raunverulega geng- ur á. Hér á sér stað valdabarátta. Þessi barátta snýst um valdið til að skipa nýja dómara. Grímulaus valdbeiting Dómarnir í desember standast ekki lögfræðilegar lágmarks- kröfur. Þeir fela í sér grímulausa valdbeitingu gegn dómsmálaráð- herra og þeim er einungis ætlað að refsa honum fyrir að lúta ekki fyrirmælum. Með þessum gjörðum sínum sýna dómarar að þeir hika ekki við að misbeita dómsvaldi sínu í þágu baráttu við ráðherra um valdið til að velja nýja dómara að dómstólum landsins. Það er mikið áfall fyrir alla sem unna hugmyndinni um hlutlausa dómstóla að þurfa að verða vitni að þessu. Svipmynd af baráttu um völd Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson »Kannski er kominn tími til að þjóðin – og þar með taldir nokkrir hávaðasamir alþingis- menn – átti sig á því hvað raunverulega gengur á. Hér á sér stað valdabarátta. Þessi bar- átta snýst um valdið til að skipa nýja dómara.Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Eiginkona mín las þessa grein yfir í handriti og lýsti sig samþykka efni hennar. Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju MYND ER MINNING Fermingarmyndir Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfu- daga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir ör- yggi í samskiptum milli starfs- fólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf not- andinn að nýskrá sig inn í kerf- ið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.