Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Guðmundur Ingi Kristinsson þingmað- ur skrifaði pistil í Morgunblaðið 29. jan- úar sl. þar sem hann virðist leggja að jöfnu laun fyrir vinnu ann- ars vegar og ölmusu hins vegar sem skatt- greiðendur fjármagna til að tryggja þeim sem ekki geta aflað sér tekna til framfærslu. Ekki verður annað skilið á pistli Guðmundar en að hon- um þyki fullkomlega eðlilegt að þeir sem fallið hafi í það örygg- isnet sem skattgreið- endur fjármagna skuli hafa til ráðstöfunar frá skattgreiðendum fjár- muni sem jafngilda eða eru jafnvel hærri en lægstu laun í landinu. Það virðist vera orðinn útbreiddur misskiln- ingur að bætur séu jafngildi launa sem greidd eru fyrir vinnuframlag. Laun eru greidd hinum vinnandi fyrir verðmætasköpun hins vinn- andi en bætur eru greiddar af hin- um vinnandi til þeirra sem njóta bótanna. Reyndar er búið að búa til fjölda óþarfa starfa hjá hinu op- inbera sem í raun eru nokkurs kon- ar atvinnubótavinna og eru því í raun dulið atvinnuleysi en samt er þó verið að greiða þar fyrir vinnu- framlag, reyndar á kostnað skatt- greiðenda. Talandi um atvinnuleysi þá er al- veg kostulegt að til skuli vera fólk á atvinnuleysisbótum nú þegar næga vinnu er að hafa fyrir þá sem nenna að vinna. Réttur til atvinnuleys- isbóta ætti í raun ekki að vera til staðar í því árferði sem nú ríkir en fjöldi erlends vinnuafls nú telur um 24.000 manns. Að það skuli vera tæplega 20.000 manns á örorkubót- um í samfélagi þar sem tæplega 200.000 manns eru á vinnumarkaði er eitthvað verulega athugunarvert. En ef grannt er skoðað þá er fjárhagslegur hvati til að komast á einhvers konar bætur verulegur þar sem lægstu laun eru jafnvel lægri en þær bætur sem greiddar eru. Hafa verður í huga að það kostar að sækja vinnu ólíkt því að ekkert kostar að fá bæturnar sjálf- virkt inn á reikninginn hjá sér. En fjárhagslegur hvati er ekki sama og siðferðislegur hvati. Meginfjöldi þess fólks sem þiggur bætur er vinnufært að öllu eða einhverju leyti amk. og sá hluti er því í raun miklu frekar „rányrkjar“ frekar en öryrkjar. Viðhorf þingmannsins virðist litað þeirri fallegu sósíalísku hugsun sem hefur reyndar aldrei gengið upp að allir leggi til sam- félagsins það sem þeir eru færir um og allir njóti frá samfélaginu þess sem þeir þurfa. Enda hefur hún breyst í það að aðeins þeir sem nenna skuli leggja til samfélagsins nánast allt sem þeir afla svo að þeir sem ekki nenna geti hrifsað til sín allt sem þeim hugnast. Bætur verða alltaf að vera talsvert lægri en lægstu laun. Þingmaðurinn sem vísað er í að ofan hefur nú sannað að annað hvort er það ekki vinna að vera þingmaður eða að hann er í raun ekki öryrki eins og hann var áður en hann settist á þing. En vonandi spræktist hann bara svona við kosningaúrslitin að hann varð vinnufær á ný. Vinnulaun eða bætur? Eftir Örn Gunnlaugsson Örn Gunnlaugsson »En ef grannt er skoðað þá er fjárhagslegur hvati til að komast á ein- hvers konar bætur veru- legur þar sem lægstu laun eru jafnvel lægri en þær bætur sem greiddar eru. Höfundur er fv. atvinnurekandi en nú iðjuleysingi, ekki á bótum. orng05@simnet.is Grein Elínar S. Kristinsdóttur, sem fjallar að miklu leyti um embættisfærslur þjóðskjalavarðar fyrir nokkrum misserum, er einhliða frásögn þar sem ýmislegt er undan skilið, réttu máli er hallað. Sagt er að þjóð- skjalavörður og fleiri stjórnendur hafi beitt starfsmenn ofbeldi. Því er haldið fram að vinnustaða- menning hafi lítið lagast frá því sem var. Þetta er ekki rétt. Ýmislegt er auk þess gefið í skyn. Í greininni er þannig alvarlega vegið að þjóð- skjalaverði og öðrum stjórnendum, núverandi og fyrrverandi, og að vissu leyti er vegið að stofnuninni allri. Bætt starfsemi og samskipti Forstöðumenn opinberra stofn- ana bera ábyrgð á allri starfsemi og rekstri. Þeim ber að tryggja fram- gang lögbundinna verkefna en þeim ber einnig að tryggja starfsmönnum sínum gott og öruggt vinnu- umhverfi. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að endur- skipulagningu starfsemi Þjóð- skjalasafns á grundvelli sjónarmiða um mannauðsmál og stjórnun sem efst eru á baugi. Lögð hefur verið áhersla á ný vinnubrögð, bætt sam- skipti og bætta þjónustu. Í mann- auðsmálum var gert sérstakt átak, t.d. með því að koma á viðbragðs- áætlunum við einelti og áreiti (2013) og samskiptasáttmála (2015). Einstök mál Lögð skal áhersla á að þau mál sem vikið er að í grein Elínar fóru í þann farveg sem reglur, stefnur og lög gera ráð fyrir, með aðkomu mannauðsráðgjafa, lögfræðinga og stéttarfélaga. Í tveimur málum naut Þjóðskjalasafn ráð- gjafar kjara- og mann- auðssýslu ríkisins. Mál þessi fengu formlega meðferð og lauk með niðurstöðu. Undirrit- aður telur ekki rétt að tjá sig um einstök mál. Þess skal þó getið að kvartanir greinar- höfundar um einelti stjórnanda í sinn garð voru rannsakaðar af utanaðkomandi aðila. Sú skoðun leiddi í ljós að ekki hafi verið um einelti að ræða. Kvartanir um að þjóðskjalavörður hafi beitt starfsmann kynferðislegri áreitni voru ennfremur rannsakaðar af utanaðkomandi aðila, að frum- kvæði mennta- og menningar- málaráðuneytis. Sú skoðun leiddi í ljós að ekki hafi verið um kynferð- islega áreitni að ræða. Bættur árangur Að lokum vill undirritaður geta þess að árið 2014 kom út fyrsta heildstæða stefnumótun Þjóð- skjalasafns og þannig var blásið til nýrrar sóknar í starfsemi safnsins. Safnið hefur á þessum grundvelli stigið stór skref fram á við, eflt og bætt marga þætti í starfseminni, svo sem eftirlit, miðlun og rannsóknir. Þessi árangur er fyrst og fremst að þakka samstilltum og öflugum hópi starfsfólks sem hefur mikla þekk- ingu á viðfangsefnum safnsins og leggur sig fram af metnaði. Hallað réttu máli Eftir Eirík G. Guðmundsson Eiríkur G. Guðmundsson » Athugasemd vegna greinar Elínar S. Kristinsdóttur, Hingað og ekki lengra, sem birt- ist í Morgunblaðinu 18. janúar 2018. Höfundur er þjóðskjalavörður. Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? SÉRBLAÐ Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 16. mars Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 12. mars.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.