Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
MADEIRA
5. apríl í 14 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Allt að
25.000kr.
afsláttur á mann
Frá kr.
99.995
Jóhann Jóhannsson
tónskáld er látinn, 48
ára að aldri. Hann lést
á heimili sínu í Berlín.
Jóhann fæddist 19.
september 1969. Hann
var sonur hjónanna Jó-
hanns Gunnarssonar
og Eddu Þorkels-
dóttur. Jóhann var
ókvæntur en lætur eftir
sig uppkomna dóttur.
Jóhann ólst upp á
Seltjarnarnesi en fjöl-
skyldan var líka búsett
um tíma í París. Hann
lauk prófi frá MR og
lagði eftir það stund á nám í ensku
og bókmenntafræði við HÍ. Hann
lærði á básúnu og lék með lúðra-
sveitum á yngri árum en færði sig
síðar yfir á píanó. Jóhann spilaði í
rokkhljómsveitum, sú fyrsta hét
Daisy Hill Puppy Farm en síðar átti
hann eftir að spila með Ham og Org-
elkvartettinum Apparat.
Fyrsta sólóplata Jó-
hanns kom út árið
2002, Englabörn, en
hún var byggð á tónlist
úr samnefndu leikriti.
Alls urðu sólóplötur
hans níu talsins en Jó-
hann samdi fyrir leik-
hús, íslenskar kvik-
myndir og tók þátt í
ýmsum tilrauna-
kenndum listverk-
efnum fyrr á ferlinum.
Hin síðustu ár gat
hann sér afar gott orð
sem kvikmynda-
tónskáld og þótti með-
al fremstu manna á því sviði.
Jóhann átti farsælt samstarf við
leikstjórann Denis Villeneuve. Hann
samdi tónlistina við kvikmyndirnar
Prisoners, Sicario og Arrival og
hlaut mikið lof fyrir. Til stóð að sam-
starf þeirra næði líka til stórmynd-
arinnar Blade Runner 2049 en upp
úr samstarfinu slitnaði.
Jóhann hlaut Golden Globe-
verðlaunin árið 2014 fyrir tónlist
sína í kvikmyndinni The Theory of
Everything. Hann var tilnefndur til
Óskarsverðlauna, BAFTA- og
Grammy-verðlauna fyrir sömu
mynd. Árið 2015 var Jóhann til-
nefndur til Óskars- og BAFTA-
verðlauna fyrir Sicario og árið 2016
var hann tilnefndur til Golden
Globe- og BAFTA-verðlauna fyrir
Arrival. Hann hlaut einnig tilnefn-
ingu til Grammy-verðlauna fyrir
Arrival.
Jóhann stýrði útfærslu á hljóð-
mynd kvikmyndarinnar Mother! eft-
ir Darren Aronofsky. Síðustu verk
Jóhanns voru tónlist við Mandy eftir
Panos Cosmatos, en með aðal-
hlutverk hennar fer Nicolas Cage,
og The Mercy, sem skartar Colin
Firth í aðalhlutverki. Þá vann hann
að tónlist við kvikmynd um Maríu
Magdalenu sem Rooney Mara,
Chiwetel Ejiofor og Joaquin Phoen-
ix leika aðalhlutverkin í.
Andlát
Jóhann Jóhannsson tónskáld
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Slæmt vetrarveður gekk yfir mest-
allt landið í gær með hvassviðri, kaf-
aldsbyl, ófærð og jafnvel snjóflóða-
hættu um norðan- og vestanvert
landið. Nokkur óhöpp urðu vegna
veðursins og sátu margir fastir í bíl-
um sínum vegna færðarinnar eða
lokana út af slysum. Innanlandsflugi
var aflýst og millilandaflugi seinkaði
eða var aflýst eftir hádegi og fram á
kvöld. Víða voru vegir lokaðir og
varað við snjóflóðahættu á Vest-
fjörðum og Norðurlandi vestra.
Rauði krossinn opnaði fjöldahjálpar-
stöðvar fyrir strandaglópa í Klé-
bergsskóla á Kjalarnesi og einnig á
Selfossi.
Tveir átta bíla árekstrar
Stormurinn náði hámarki á höfuð-
borgarsvæðinu upp úr kl. 14. Úr-
koma og rok gerðu skyggni slæmt
fyrir vegfarendur. Átta bíla árekstur
varð á Hafnarfjarðarvegi við Sunnu-
hlíð í Kópavogi í suðurátt rétt eftir
hádegið í gær. Loka þurfti Kringlu-
mýrarbraut til suðurs vegna árekst-
ursins. Flytja þurfti einn á sjúkra-
hús og voru aðstæður á vettvangi
erfiðar. Skyggni var mjög slæmt
þegar slysið varð en útkallið barst
rétt upp úr kl. 13. Þá var mikill erill
hjá björgunarsveitarmönnum úti um
allan bæ.
Átta bíla árekstur varð einnig á
Reykjanesbraut um þrjúleytið og
var veginum á milli Suðurnesja og
Hafnarfjarðar lokað í báðar áttir.
Áreksturinn átti sér stað við afleggj-
arann að Vogum á Vatnsleysu-
strönd. Lítil slys urðu á fólki.
Aftakaveður var á Reykjanes-
brautinni; fljúgandi hálka, ekkert
skyggni og rok þegar slysið varð.
Á Suðurlandi náði veðrið hámarki
um fimmleytið í gærdag.
Við Þjórsárbrú var þá bifreið ekið
aftan á aðra bifreið sem sat föst í
snjó. Engin slys urðu á fólkinu, tíu
manns, en umferðarteppa mynd-
aðist í kjölfarið.
Ók út í Eyjafjarðará
Slys varð á Akureyri kl. 11 í gær-
morgun er ökumaður sem ók suður
Eyjafjarðarbraut á móts við Teig
sofnaði undir stýri. Hann ók yfir á
öfugan vegarhelming, lenti á vegriði
og keyrði út í Eyjafjarðará. Maður-
inn komst út úr bílnum af sjálfs-
dáðum og virðist hafa sloppið án
meiðsla. Náðist bíllinn upp úr ánni
en er mikið skemmdur, að sögn lög-
reglu á Akureyri. Talsverður erill
var vegna bíla sem ökumenn höfðu
fest víða um bæinn.
Tilkynnt var um slasaðan vél-
sleðamann á Reyðarárhnjúki í um-
dæmi lögreglunnar á Húsavík kl.
13.50 í gær, að sögn lögreglunnar á
Akureyri sem gat ekki veitt nánari
upplýsingar, nema að björgunar-
sveitir og lögregla hefðu farið á vett-
vang til að hlúa að og flytja manninn
af slysstað, en ekki var vitað um að-
draganda slyssins eða líðan hans.
Áfram snjóflóðahætta
Samkvæmt snjóflóðavakt Veður-
stofu Íslands er varað við snjóflóða-
hættu, jafnvel þegar veðrið gengur
niður, áfram geti orðið snjóflóð
vegna mikillar ofankomu í gær. Á
þetta sérstaklega við um Vestfirði,
Snæfellsnes og Norðurland vestra.
Veðrið gekk niður í gærkvöldi en bú-
ist er við vondu veðri áfram í dag. Á
þriðjudag stefnir í að hvessi aftur
með úrkomu og þurfi því áfram að
sýna aðgæslu vegna snjóflóðahættu.
Enn var ekki um mikla hættu á snjó-
flóðum að ræða í byggð. Veðurstofan
hafði upplýsingar um tvö snjóflóð
fjarri byggð á Vestfjörðum en sagði
erfitt að segja til um það þar sem
mikil ófærð var á svæðinu og því
ekki enn vitað hvort fleiri snjóflóð
hefðu fallið. Veðurstofan hvetur fólk
til að fylgjast vel með veðri og færð á
vegum.
Akstursbann gilti víða
Akstursbann var í gildi á milli Vík-
ur og Markarfljóts, um Hellisheiði,
Þrengsli, Biskupstungnabraut, Mos-
fellsheiði, Kjósarskarð, Lyngdals-
heiði, Fróðárheiði, Bröttubrekku og
Öxnadalsheiði en einnig var Súða-
víkurhlíð lokuð vegna snjóflóða-
hættu, samkvæmt vef Vegagerðar-
innar.
Auk þessara lokana var víða ófært
eða ekki ferðaveður. Stórhríð var á
Snæfellsnesi og hætt var við frekari
mokstur þar í gær. Vegagerðin ann-
aði ekki að moka til að halda öllum
vegum opnum en hluti moksturs-
tækja hennar var til taks fyrir
sjúkrabíla. Er ítrekað við fólk að
virða akstursbann þegar það er í
gildi.
Erill hjá björgunarsveitum
Mest voru 330 björgunarsveitar-
menn að störfum víðsvegar um land-
ið í gær, þar af 138 á höfuðborgar-
svæðinu, og sinntu þar útköllum
vegna árekstra, fastra bíla og um-
ferðarteppu. Þá voru þakplötur
byrjaðar að fjúka og vandræði sköp-
uðust á nokkrum byggingarsvæðum,
að sögn Davíðs Más Bjarnasonar,
upplýsingafulltrúa Landsbjargar.
Björgunarsveitir aðstoðuðu lög-
reglu við að láta vegfarendur virða
lokanir. Flestir tóku því vel og að
minnsta kosti tíu manns urðu að
skilja bifreiðir sínar eftir og sáu
björgunarsveitir um að ferja fólkið,
m.a. á fjöldahjálparstöð á Selfossi,
en sumir gætu þurft að gista þar.
Una menn sér við spil.
Davíð sagði að björgunarsveitir
gætu einungis leiðbeint fólki en
hefðu ekki heimild til að stöðva för
þeirra sem virtu ekki akstursbann.
Hann minnir á að það geti verið erf-
itt fyrir lögreglu, vegagerð og björg-
unarsveitarfólk að athafna sig þegar
ökumenn virða ekki lokanir, oft sé
verið að reyna að opna vegi með
mokstri og/eða að fylgd með mokst-
urstækjum sé í gangi og þá geti ver-
ið erfitt að mæta akandi og föstum
bílum á leiðinni.
Kafaldsbylur og slæmt skyggni
Tveir átta bíla árekstrar urðu á Suðvesturlandi í gær en lítið var um slys á fólki Akstursbann var
víða í gildi Flugi aflýst í millilanda- og innanlandsflugi Áfram er varað við snjóflóðahættu
Ljósmynd/Atli Sturluson
Árekstrar Annar átta bíla árekstra sem urðu á suðvesturhorni landsins í óveðrinu í gær.
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Snjóþungi Gríðarlega mikil snjókoma hefur verið á Ísafirði.
Öllu innanlandsflugi var aflýst í
gær og millilandaflugi seinkaði
eða var aflýst. Að sögn vakt-
stjóra Air Iceland Connect var
ástæðan slæmt skyggni og
vindhraði, en millilandaflugi var
einnig seinkað og aflýst eftir
hádegi og langt fram á kvöld af
sömu ástæðum, bæði til og frá
Evrópu og Norður-Ameríku.
Flugvél WOW air, sem kom frá
Tel Aviv, lenti á Egilsstaða-
flugvelli og farþegum komið fyr-
ir í gistingu þar, samkvæmt
upplýsingum WOW air. Seink-
anir og aflýsingar hafa áhrif á
að minnsta kosti sex þúsund
farþega WOW air og fimm þús-
und farþega Icelandair. Aflýsa
þurfti nokkrum ferðum til við-
bótar þar sem nokkrar vélar
voru fastar erlendis vegna veð-
ursins. Búast má við breyt-
ingum á flugáætlunum og er
fólk hvatt til að fylgjast vel með.
Flugi aflýst
að mestu
ERFIÐLEIKAR Í
FLUGSAMGÖNGUM