Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
Orkuverið Jörð, Reykjanesi
Samstarfsaðili óskast
HS Orka – Svartsengi – 240 Grindavík – Sími: 520 9300
Í Reykjanesvirkjun HS Orku er starfrækt áhugaverð sýning sem nefnist Orkuverið
Jörð. HS Orka auglýsir eftir samstarfsaðila til að taka á leigu og sinna rekstri
hennar. Mikil tækifæri eru í rekstri sýningarinnar fyrir réttan aðila.
• Um er að ræða 600 fm sýningu í Reykjanesvirkjun
• Á sýningunni má sjá fjölbreytta orkunýtingu
• Sýningin er að hluta til gagnvirk sem gefur gestum færi á að taka virkan þátt
• Áform eru um uppbyggingu á svæðinu
• Möguleikar á opnunartíma allt árið
• Tækifæri að tengjast annarri ferðaþjónustu á svæðinu
Sýningin verður sýnd áhugasömum fimmtudaginn 22. febrúar milli kl. 9–11.
Lokaskil umsókna eru fimmtudaginn 1. mars kl. 12.
Ráðgert er að ljúka umsóknarferli með vali á samstarfsaðila þann 8. mars n.k.
Nánari upplýsingar er að finna á www.hsorka/syning.is
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tveir fulltrúar réttarfarsnefndar
mæltu með umsækjendum um dóm-
arastöður við Landsrétt. Þá voru
tveir nefndarmenn skipaðir dómarar
við réttinn.
Nefndin hefur á liðnum árum fært
rök gegn því að dómsmálaráðherra
fái aukin völd við skipan dómara.
Benedikt Bogason, dómari við
Hæstarétt Íslands, situr í réttarfars-
nefnd. Hann skilaði meðmælum með
einum umsækjenda við Landsrétt. Þá
sitja Sigurður Tómas Magnússon og
Ragnheiður Harðardóttir í nefndinni
en dómnefnd setti þau í 2. og 3. sæti
hæfnisraðar umsækjenda um Lands-
rétt. Sigríður Á. Andersen dóms-
málaráðherra lagði til að þau yrðu
dómarar og samþykkti Alþingi þá til-
lögu í fyrrasumar. Stefán Már Stef-
ánsson, prófessor við lagadeild Há-
skóla Íslands, situr líka í
réttarfarsnefnd. Hann mælti með
einum umsækjanda við Landsrétt.
Ráðuneytinu til ráðgjafar
Fimmti nefndarmaðurinn, Ása
Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Há-
skóla Íslands, skilaði hins vegar
hvorki meðmælum né sótti um stöðu
dómara við Landsrétt. Það svar
fékkst frá dómsmálaráðuneytinu að
réttarfarsnefnd væri fastanefnd
dómsmálaráðuneytisins og ráðuneyt-
inu til ráðgjafar um réttarfarsmál-
efni.
Ása, Ragnheiður og Stefán Már
sátu líka í nefndinni 2012 til 2017.
Á því tímabili, eða í apríl 2015, skil-
aði réttarfarsnefnd umsögn til innan-
ríkisráðherra sem varðaði meðal ann-
ars drög að frumvörpum til laga um
dómstóla: „Réttarfarsnefnd gerir
sérstaklega athugasemdir við 6. gr.
frvdr. Með greininni er ráðgerð sú
breyting að í umsögn dómnefndar um
hæfni umsækjenda um dómaraemb-
ætti skuli aðeins láta í té rökstudda
umsögn um hæfi umsækjenda, þó
þannig að ráðherra setji nánari regl-
ur um störf nefndarinnar. Af þessu
má ráða að gert sé ráð fyrir að ráð-
herra og Alþingi sé falið mun víðtæk-
ara vald en nú gildir við skipun dóm-
enda, en samkvæmt gildandi lögum
er ráðherra bundinn við álit dóm-
nefndar um það hvaða umsækjandi
eða umsækjendur séu taldir hæfastir
og aðeins unnt að víkja frá því með
samþykki Alþingis eftir tillögu ráð-
herra.“
Til upprifjunar spruttu dómsmál af
þeirri ákvörðun ráðherra að fara ekki
að öllu leyti að tilmælum dómnefndar
um dómara við Landsrétt. Alþingi
samþykkti tillögu ráðherra.
Kom inn sem dómari
Jóhannes Rúnar Jóhannsson og
Ástráður Haraldsson voru meðal 37
umsækjenda um embætti 15 dómara
við Landsrétt. Dómnefnd mat þá í 12.
og 14. sæti hæfnisraðar.
Þeir voru hins vegar meðal fjög-
urra umsækjenda sem ráðherra
mælti ekki með. Ástráður og Jóhann-
es Rúnar fóru í mál við ríkið. Ríkið
var sýknað af kröfum þeirra fyrir
héraðsdómi Reykjavíkur en Hæsti-
réttur dæmdi að ráðherra hefði farið
gegn stjórnsýslulögum.
Þegar Hæstiréttur dæmdi í málinu
viku sjö af átta dómurum réttarins
sæti. Þorgeir Örlygsson var sá átt-
undi og dæmdi málið ásamt Hólmfríði
Grímsdóttur, Ingibjörgu Benedikts-
dóttur, Kristni Bjarnasyni og Stefáni
Má Stefánssyni, sem er í réttarfars-
nefnd.
Ingibjörg hafði þá veitt tvenn með-
mæli vegna umsókna og Kristinn og
Stefán Már hvor sín meðmælin.
Meðal dómara í Hæstarétti sem
viku sæti voru Markús Sigurbjörns-
son, Benedikt Bogason og Viðar Már
Matthíasson. Allir hafa setið í réttar-
farsnefnd. Greta Baldursdóttir og
Helgi I. Jónsson viku einnig sæti en
þau veittu þrenn og fimm meðmæli
vegna Landsréttar. Þá vék Karl Ax-
elsson sæti en dómnefnd mælti með
honum sem dómara í Hæstarétt 2015.
Þá sat Gunnlaugur Claessen, for-
maður dómnefndar vegna Landsrétt-
ar, í réttarfarsnefnd 1994 til 2012.
Ragnheiður Harðardóttir vék sæti úr
dómnefndinni þegar hún sótti um
dómarastöðu við Landsrétt. Fjórir af
fimm dómnefndarmönnum lýstu sig
vanhæfa við valið.
Dúxinn ekki metinn hæfastur
Haustið 2015 taldi dómnefnd undir
forystu Gunnlaugs Claessen að Karl
Axelsson væri hæfastur til að hljóta
skipun í embætti dómara við Hæsta-
rétt. Davíð Þór Björgvinsson og Ing-
veldur Einarsdóttir sóttu líka um
embættið. Skírskotaði dómnefndin til
reynslu Karls sem lögmanns, meðal
annars fyrir óbyggðanefnd.
Gunnlaugur var líka formaður
dómnefndar vegna Landsréttar. Þar
var Davíð Þór metinn hæfastur af 33
umsækjendum sem hæfir þóttu.
Fékk Davíð Þór einkunnina 7,35 og
var afgerandi hæstur.
Ráðherra taldi reynslu af dómara-
störfum ekki vega nógu þungt í vali
nefndarinnar. Það nýja hæfnismat
taldi Hæstiréttur ekki nógsamlega
rannsakað og útskýrt.
Mæltu gegn því að ráðherra hefði valið
Fulltrúar réttarfarsnefndar færðu rök gegn auknu valdi ráðherra við dómaraval Einn dæmdi gegn
ráðherra Umsækjandi sem dómnefnd mat hæfastan sem dómara við Landsrétt ekki valinn í Hæstarétt
Nefndina skipa:*
Sigurður Tómas Magnússon,
formaður, prófessor við Háskólann í
Reykjavík við skipun, dómari við Lands-
rétt frá 2018.
Ása Ólafsdóttir, dósent við lagadeild
Háskóla Íslands.
Benedikt Bogason, dómari við
Hæstarétt Íslands.
Ragnheiður Harðardóttir, dómari
við héraðsdóm Reykjavíkur við skipun,
dómari við Landsrétt frá 2018.
Stefán Már Stefánsson, prófessor
við lagadeild Háskóla Íslands.
Frá 2012 til 2017 var
nefndin skipuð eftirtöldum:
Eiríkur Tómasson, þáverandi
dómari við Hæstarétt Íslands,
formaður.
Ása Ólafsdóttir, dósent við
lagadeild Háskóla Íslands.
Hjördís Björk Hákonar-
dóttir, fyrrverandi dómari
við Hæstarétt Íslands.
Ragnheiður Harðar-
dóttir, þáverandi
dómari við héraðsdóm
Reykjavíkur.
Stefán Már Stefánsson, prófessor
við Háskóla Íslands.
Frá 1994 til 2012 var
nefndin skipuð eftirtöldum:
Markús Sigurbjörnsson, dómari við
Hæstarétt Íslands, formaður.
Eiríkur Tómasson, hæstaréttarlög-
maður við skipun, síðar prófessor við
Háskóla Íslands og dómari við Hæstarétt
Íslands frá 2011.
Gunnlaugur Claessen, dómari við
Hæstarétt Íslands.
Stefán Már Stefánsson, prófessor
við Háskóla Íslands.
Viðar Már Matthíasson, hæstarétt-
arlögmaður við skipun, síðar prófessor
við Háskóla Íslands og dómari við
Hæstarétt Íslands frá 2010.
Þórunn Guðmundsdóttir,
hæstaréttarlögmaður (lét af
störfum árið 2005, nýr
nefndarmaður
ekki skipaður í
hennar stað).
Nefndarmenn í réttarfarsnefnd
*Síðast var
skipað í nefndina
1. mars 2017
Heimild: Dóms-
málaráðuneytið