Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 22

Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018 Álfheiður Viðarsdóttir, bóndi á Ásum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi,á 40 ára afmæli í dag. Hún ólst upp á Ásum en bjó nokkur ár íReykjavík, lærði þroskaþjálfun og vann á leikskóla eitt ár. „Það var alltaf draumurinn að flytja aftur í sveitina, ég ætlaði aldrei að setjast að í Reykjavík.“ Eiginmaður Álfheiðar, Jón Hákonarson raf- virkjameistari, er einnig úr sveit og er frá Vaðli á Barðaströnd þar sem foreldrar hans eru með fjárbú. Kom aldrei til greina að flytja vestur? „Ég spurði Jón aldrei að því. Það lá svo beint við að vera hérna, það er svo stutt í allt hér en maður er einangraðri fyrir vestan. Hann var alveg tilbúinn að flytja með mér hingað. Okkur fannst vera svo mikil forrétt- indi að vera alin upp í sveit og við vildum að börnin okkar fengju að upplifa það líka.“ Foreldrar Álfheiðar og bróðir hennar ásamt fjölskyldu hans búa einnig á Ásum og er aðallega kúabúskapur á bænum. „En við erum einnig með kindur, hross og hænur, og hund og kött auðvitað. Ætli ég hafi ekki bara bollukaffi fyrir gesti og gangandi í tilefni dags- ins. Það er svo ótrúlega oft sem ég hef þurft að aflýsa afmælinu mínu vegna veðurs, ég tek bara engan séns núna. Svo förum við fjölskyldan til Tenerife í vor. Okkur finnst gaman að ferðast og kynnast öðrum löndum og þjóðum, vorum síðast í Dublin núna í nóvember. Við förum líka mikið í reiðtúra á sumrin og svo er ég í Vörðukórnum sem er bland- aður kór, með fólki alls staðar að úr uppsveitum Árnessýslu. Við verð- um með tvenna tónleika í apríl og förum svo í vorferð í Vík í Mýrdal.“ Börn Álfheiðar og Jóns eru Iðunn Ósk 15 ára, Baldur Már níu ára og Óðinn Þór sex ára. Stjúpdóttir Álfheiðar er Karen Sif sem er tvítug. Ljósmynd/Gunnar Jónatansson Fjölskyldan Eftir heimsókn á Bessastaði þar sem Iðunn Ósk tók við verðlaunum fyrir góðan árangur í könnun vegna forvarnardagsins. Ætlaði alltaf aftur heim í sveitina Álfheiður Viðarsdóttir er fertug í dag J ónas Egilsson fæddist í Reykjavík 12.2. 1958. Fyrstu árin bjó hann í Álfheimum í Reykjavík en sjö ára flutti hann með foreldrum sínum í Hafnarfjörð þar sem fjölskyldan bjó næstu sex árin. Árið 1971 flutti svo fjölskyldan í Fossvogshverfið í Reykjavík. Jónas var lengi fram eftir ung- lingsárum í vinnumennsku á sumrin hjá Magnúsi, föðurbróður sínum í Stardal í Kjalarneshreppi (nú í Reykjavík), við hefðbundin sveita- störf: „Auk þess dvaldi ég þar iðu- lega um skemmri tíma á veturna. Ég varð mjög hændur að þessum föðurbróður mínum, enda návígið mikið við daglegt amstur í sveit- inni.“ Eftir stúdentspróf og vinnu hér heima hélt Jónas til náms og æfinga við ríkisháskólann í San José í Kali- forníu þar sem hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði árið 1985. Auk þess að stunda nám og íþróttir tók Jónas þátt í fé- lagsstörfum við skólann, var ritari og formaður Pi Sigma Alpha- deildarinnar við skólann, sem eru samtök stjórnmálafræðinema. Einn- ig hafði hann frumkvæði að stofnun Jónas Egilsson skrifstofustjóri – 60 ára Útskriftarboð hjá Ísak Jónas fagnar námsáfanga með sonum sínum fjórum, tveimur tengdadætrum og Inga Leó. Málsvari frjálsíþrótta innanlands og utan Útskrift hjá Jónasi Afmælisbarnið með prófessor og skólafélaga við MA- útskrift í alþjóðlegum samskiptum frá University of San Diego árið 1987. Seltjarnarnes Harpa Margrét fæddist 14. febrúar 2017 kl. 8.47. Hún vó 3.105 g og var 49,5 cm löng. For- eldrar hennar eru Heiðrún Björk Gísla- dóttir og Grétar Dór Sigurðsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.