Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 23
félags demókrata við skólann, en að
hans sögn var þörf á þeim sam-
tökum þar sem repúblikanar voru
með félag fyrir.
Jónas lauk MA-prófi frá Univers-
ity of San Diego í alþjóðasam-
skiptum sumarið 1987.
Skömmu eftir heimkomu var Jón-
as ráðinn framkvæmdastjóri Sam-
taka sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu og fékk það hlutskipti að
leiða endurskipulagningu samtak-
anna eftir að Skipulagsstofa höfuð-
borgarsvæðisins var lögð niður.
Hann gegndi því starfi í rúm 13 ár
áður en hann og fjölskyldan tóku
sig upp og fluttu á Flúðir í Hruna-
mannahreppi.
Fjölskyldan flutti svo aftur til
Reykjavíkur eftir um áratugar dvöl
austur í Hreppum. Synirnir höfðu
notið þess frjálsræðis sem dreifbýl-
ið bauð upp á en þá hafði Jónas haf-
ið störf sem framkvæmdastjóri
Frjálsíþróttasambands Íslands.
Jónas hefur sl. ár verið skrifstofu-
stjóri hjá Langanesbyggð á Þórs-
höfn þar sem hann er búsettur. Auk
þess hefur hann sinnt ýmsum ráð-
gjafarstörfum á sviði íþrótta-, um-
hverfis- og landbúnaðarmála á sín-
um ferli.
Jónas var formaður Frjálsíþrótta-
sambandsins í tvígang, samtals í
áratug, sat þar í stjórn og var fram-
kvæmdastjóri þess. Hann átti sæti í
stjórn Frjálsíþróttasambands Evr-
ópu í tvö kjörtímabil, var formaður
Frjálsíþróttasambands evrópskra
smáþjóða í hartnær áratug, auk
þess að gegna fjölda annarra
trúnaðarstarfa fyrir íþróttahreyf-
inguna, bæði hérlendis og í Evrópu.
Jónas hefur skrifað nokkrar greinar
í blöð og tímarit, m.a. eina fyrstu
grein um þörf á innanhússaðstöðu
fyrir frjálsíþróttir á Íslandi, í ritið
Arkitektúr og skipulag árið 1990.
Jónas fékk viðurkenningu frá Al-
þjóðafrjálsíþróttasambandinu (IA-
AF Veterans Pin) fyrir störf sín fyr-
ir íþróttina á alþjóðavísu. Hann var
gerður að heiðursformanni FRÍ árið
2006, fékk gullmerki Frjálsíþrótta-
sambands Evrópu árið 2003, ÍR
1997 og ÍSÍ árið 2006.
Jónas er áhugamaður um þjóð-
mál, útivist og skotíþróttir.
Fjölskylda
Fyrrv. kona Jónasar er Steinunn
Ingibjörg Pétursdóttir, f. 27.3. 1967,
leiðbeinandi í leikskóla. Synir Jón-
asar og Steinunnar eru: 1) Bjarni
Steinarsson (fóstursonur Jónasar),
f. 21.9. 1988, verkstjóri hjá norsku
vertakafyrirtæki, búsettur á
Laugarvatni en kona hans er Krist-
björg Guðmundsdóttir, BS í sál-
fræði, og er sonur þeirra Ingi Leó, f.
2016; 2) Aron Örn, f. 2.10. 1992,
verkamaður; 3) Ísak, f. 30.9. 1994,
íþróttafræðingur og verslunarmað-
ur, búsettur í Mosfellsbæ, en kona
hans er Ólöf Jónsdóttir, nemi við
HÍ; 4) Egill Pétur, f. 21.5. 2001,
nemi við Flensborg í Hafnarfirði.
Systkini Jónasar: Inga Fanney, f.
10.8. 1956, stýrimaður; Kristrún
Þórdís Stardal, f. 31.7. 1930, hjúkr-
unarfræðingur í San Diego í Kali-
forníu, og Egill Örn, f. 27.4. 1967, d.
5.2. 1971.
Foreldrar Jónasar: Egill J. Star-
dal, f. 14.9. 1926, d. 23.7. 2011, cand.
mag. og kennari við Verslunarskóla
Íslands og víðar, og Erna (Edda)
Ingólfsdóttir, f. 29.1. 1928, d. 8.5.
2001, verslunarkona og sjúkraliði í
Reykjavík.
Úr frændgarði Jónasar Egilssonar
Jónas
Egilsson
Guðný Guðmundsdóttir Hagalín
húsfr., frá Garði í Dýrafirði
Gísli Guðmundur Kristjánsson
skipstj. og b. á Lokinhömrum í Arnarfirði
Fanney Gísladóttir
kaupmaður í Rykjavík
Erna (Edda) Ingólfsdóttir
verslunark. og sjúkraliði í Rvík
Helgi Ingólfur Gíslason
kaupmaður í Reykjavík
Valgerður Freysteinsdóttir Helgason
húsfr. frá Hjalla í Ölfusi
Sigríður Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðlaug R.
Guðbrandsdóttir
húsfr. í Eyjum og Rvík
Ólafur Laufdal athafna-
og veitingamaður
Guðmundur G. Hagalín
rithöfundurSigríður Hagalín leikkona
Hjalti Þorvarðarson
rafveitustj. á Selfossi
Þorvarður Hjaltason
fyrrv. framkv.
stj. Samtaka
sunnlenskra
sveitarfélaga
Þorvarður Helgason b. á Skriðu
í Breiðdal og verkam. í Rvík
Valur Gíslason leikariValur Valsson fyrrv. bankastj. Íslandsbanka
Garðar Gíslason
stórkaupm. í Hafnarfirði
Guðmundur H: Garðarsson
fyrrverandi alþingismaður
Hörður Ingólfsson
íþróttakennari í
Kópavogi
Inga Rún
Harðardóttir
Krebbs
myndlistarkona
í Danmörku
Katrín Sigurðardóttir
húsfr. í Úthlíð og á Bóli, frá Kópsvatni í Hrunamannahr.,
bróðurdóttir Andrésar, langafa Magnúsar, framkvstj. NATO,
föður Kjartans borgarfulltr. og Andrésar blaðamanns
Eyvindur Hjartarson
b. í Úthlíð og Bóli í
Biskupstungum, bróðursonur
Fjalla-Eyvindar
Kristrún Eyvindsdóttir
húsfr. í Stardal
Jónas Magnússon
oddviti og verkstj. í Stardal í Kjalarneshr.
Þorkelína Þorkelsdóttir
húsfr. í Stardal
Magnús Sigurðsson
b. í Úthlíð í Biskupstungum, síðar í Stardal, frá Breiðavaði
Egill Jónasson Stardal
cand.mag. og kennari í Rvík
Gísli Helgason
búfr. og kaupm. í Reykjavík, f. í Berufjarðarsókn
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
Guðrún Ásgeirsdóttir Johnsonvar fædd í Lundum í Staf-holtstungum 17. febrúar
1868. Hún var yngsta barn foreldra
sinna, Ásgeirs Finnbogasonar, f.
1814, d. 1881, bónda og bókbindara
og dannebrogsmanns á Lamba-
stöðum á Seltjarnarnesi og síðar á
Lundum, og k.h. Ragnhildar Ólafs-
dóttur, f. 1833, d. 1908. Höfðu þau
hjón bæði verið gift áður.
Guðrún fór vestur um haf árið
1893. Ári síðar, 4.11. 1894, giftist hún
Finni Jónssyni frá Melum í Hrúta-
firði, f. 6.3. 1868, d. 21.1. 1955. For-
eldrar hans voru Jón Jónsson,
hreppstjóri á Melum, og k.h. Sig-
urlaug Jónsdóttir. Guðrún og Finn-
ur bjuggu alla tíð í Winnipeg, í 54 ár.
Fyrstu árin vann Finnur við versl-
un, en síðar var hann um tíma með-
ritstjóri við Lögberg, rak íslenska
bókaverslun og var virkur í íslensku
félagslífi í Winnipeg. Guðrún vann
að saumum og fleira og á þann hátt
aflaði hún heimilinu mikilla tekna.
Guðrún tók mikinn þátt í félags-
málum Íslendinga. Fyrst við hlið frú
Láru Bjarnason í kirkjufélagi
kvenna, fyrsta lútherska söfnuðinum
í Winnipeg. Æ síðar vann hún fyrir
þetta safnaðarfélag meðan kraftar
entust. Hún veitti einnig í mörg ár
forstöðu Heimilisiðnaðarfélagi ís-
lenskra kvenna í Winnipeg. Hún átti
mikinn þátt í að koma á fót heimilis-
iðnaðarsýningum í Winnipeg, og
stundum sat hún þar og sýndi ullar-
vinnu íslenska. Bæði kembdi hún og
spann.Allt var þetta gert til að efla
menntun og þekkingu Vestur-
Íslendinga á ullarvinnu feðra sinna.
Guðrún átti fyrstu upptök að því,
að kvenfélögin innan lúthersku
kirkjufélaganna stofnuðu með sér
allsherjarsamband. Guðrún var kos-
in fyrsti forseti þess og var endur-
kosin forseti þess í ellefu ár.
Börn Guðrúnar og Finns voru
Anna sem bjó stórbúi nálægt Sin-
clair í Manitoba; Ásgeir, sem féll í
fyrri heimsstyrjöldinni og Jón Ragn-
ar sem var lögfræðingur í Toronto.
Guðrún lést 23.6. 1948.
Merkir Íslendingar
Guðrún Ás-
geirsdóttir
90 ára
Aðalheiður E. Þorleifsdóttir
Birgir H. Erlendsson
85 ára
Bogi G. Thorarensen
Kristín A. Samsonardóttir
Sigurður Ragnar
Antonsson
80 ára
Guðrún Friðriksdóttir
Guðrún Margrét Leifsdóttir
75 ára
Ágústa Traustadóttir
Friðfinnur Sigurðsson
Hafdís Bára Eiðsdóttir
Kristján A. Kristjánsson
Reynir Þórisson
Snjólaug Sigurðardóttir
Stefán Friðriksson
Þorbjörn Ragnar
Guðjónsson
Þóra Gunnarsdóttir
70 ára
Áslaug Hallgrímsdóttir
Fanney Valgarðsdóttir
Ingibjörg Kristín Reykdal
Jóhanna Stefánsdóttir
Lína Gunnarsdóttir
60 ára
Ástríður Harðardóttir
Guðbjörg Jónsdóttir
Guðmundur Þórðarson
Gunnar Guðmundsson
Hilmar Baldvinsson
Hilmar Ævar Hilmarsson
Jónas Egilsson
Jónas Sigurðsson
Kristín Danuta Witecka
Lazaro Luis Nunez Altuna
Margrét Grétarsdóttir
Pétur Brynjarsson
Steinar Harðarson
Þórir Kristján Flosason
Þórunn Oddný
Þórhallsdóttir
50 ára
Ásgeir G. Sigurðsson
Fanný Bjarnadóttir
Gylfi Þórðarson
Halldór Guðmundsson
Kristján A. Kristjánsson
Marek Adam Grygo
Ragnar Þorláksson
40 ára
Adeniran Micheal Adesina
Artur Fiszer
Álfheiður Viðarsdóttir
Garðar Hólm Kjartansson
Heiða Björg Gústafsdóttir
Helga Guðmundsdóttir
Hildigunnur Árnadóttir
Hrund Scheving
Sigurðardóttir
Kristján Víðir Kristjánsson
Marcin Sikora
30 ára
Arnþór Gíslason
Berglind Torfadóttir
Birgitta Hrund
Kristinsdóttir
Elnora De La Cruz Avecilla
Emil Örn Jónsson
Gréta María Kristinsdóttir
Helga Rún Gunnarsdóttir
Helgi Steinar Ólafsson
Katrín Einarsdóttir
Katrín Kristín
Friðjónsdóttir
Lina Kyzikiené
Lukas Guzik
Tómas Björn
Guðmundsson
Wojciech Dzienkowski
Til hamingju með daginn
40 ára Artur er frá Bialy-
stok í Póllandi, flutti til Ís-
lands 2006 og býr á Akra-
nesi. Hann er bifvélavirki
og vinnur hjá Norðuráli.
Maki: Anna Maria Fiszer,
f. 1981, vinnur hjá Norður-
áli.
Börn: Adam, f. 1999,
Przemyslaw, f. 2004, og
tvíburarnir Natalia og
Wiktoria, f. 2008.
Foreldrar: Zdzislaw Fis-
zer og Maria Fiszer. Þau
eru bús. í Póllandi.
Artur
Fiszer
40 ára Hrund er frá Vest-
mannaeyjum en býr í
Kópavogi. Hún er deild-
arstjóri tómstunda-
miðstöðvar Lækjarskóla.
Maki: Haraldur Pétursson,
f. 1979, tölvunarfræðingur
hjá Pronestor í Danmörku.
Börn: Selma Rún, f. 2004,
og Magnús Heiðar, f.
2007.
Foreldrar: Ingi Svein-
björnsson, f. 1954, og
Heiða B. Scheving, f.
1960.
Hrund
Scheving
30 ára Berglind er frá
Akranesi en býr í Reykja-
vík. Hún er leikskólakenn-
ari á Álftaborg í Safamýri.
Systkini: Ingibjörg, f.
1985.
Foreldrar: Torfi Guð-
mundsson, f. 1959, vinnur
hjá Norðuráli á Grund-
artanga, og Lilja Birkis-
dóttir, f. 1962, sér um fé-
lagsstarf fyrir eldri
borgara og öryrkja á
Akranesi. Þau eru búsett
á Akranesi.
Berglind
Torfadóttir
Sælkerabollur
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Nýsteiktar
fiskibollur
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Glæný línuýsa
Fiskhakk
fiskfars