Morgunblaðið - 12.02.2018, Page 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
» Ævar Þór Benediktsson, vísindamaður, leikariog rithöfundur, kom fram með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á tvennum tónleikum í Eldborg í
Hörpu um helgina, líkt og hann gerði fyrir tveimur
árum. Ævar var með ný ævintýri í farteskinu og
kom víða við með sinfóníuhljómsveitinni, kynnti
m.a. fyrir gestum ævintýralegustu tónverkin sem
hann þekkir en meðal þeirra voru lög úr kvikmynd-
unum um Harry Potter, Hringadróttinssögu og
Draugabönum. Þá flutti hljómsveitin líka nýtt tón-
verk unnið upp úr verðlaunabók Ævars, Þín eigin
þjóðsaga.
Ævintýratónleikar Ævars og SÍ
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
ég tveimur stelpum, Laufeyju [Soffíu]
og Maggý [Margréti Rósu], og tókum
við þátt í Ljóðaslamminu 2013 þar
sem við fluttum ljóðapönk. Er
skemmst frá því að segja að við unn-
um ljóðaslammið og héldum samstarf-
inu áfram sem hljómsveitin Kælan
mikla.“
Sólveig og vinkonur hennar létu
ekki þar við sitja, heldur boðuðu að
efna áfram til ljóðakvölda og settu á
endanum á laggirnar viðburða- og út-
gáfufyrirtækið Hið myrka man. Stóð
Hið myrka man m.a. fyrir tónlistar-
hátíðinni Myrkramakt árin 2014 og
2015 og hefur gefið út fjórar plötur til
þessa.
Skrifa um blómlega
neðanjarðarsenu
Eftir flutninginn til Berlínar bætt-
ist útgáfa Myrkfælni (www.myrk-
faelni.com) við afrekalistann. Blaðið
fjallar um jaðartónlistarsenuna á Ís-
landi en sér til halds og trausts við út-
gáfuna hefur Sólveig meðleigjanda
sinn og vinkonu, Kinnat Sóleyju, auk
Maggýjar, bassaleikara Kælunnar
miklu. Annað tölublað Myrkfælni var
að koma út og greinilegt að Sólveigu
og félaga vantar ekki efni til að skrifa
um: „Blaðið er 92 blaðsíður, hefur m.a.
að geyma útgáfudóma, viðtöl við tón-
listarmenn, grein um nýja útgáfufyr-
irtækið Why Not Records og umfjöll-
un um lítið tónleikarými sem var
nýlega opnað í kjallara heimahúss í
Þingholtunum,“ segir Sólveig en með
nýjasta tölublaðinu dreifir Myrkfælni
kassettu þar sem búið er að safna
saman lögum sem skrifað er um í
blaðinu.
Nú getur verið að sumir lesendur
hvái og þyki undarlegt að Myrkfælni
dreifi tónlist á kassettum á öld You-
Tube og Spotify. En kassettan er
miðill sem er samofinn darkwave-
menningunni og best að biðja Sól-
veigu að útskýra: Hún segir gæta
ákveðinnar fortíðarþrár í darkwave-
tónlist og áhrifa frá hljómsveitum
eins og The Cure og Depeche Mode
sem voru á hátindi frægðar sinnar á
9. áratugnum, þegar kassettan var
allsráðandi. „Sumt darkwave-
tónlistarfólk leggur sig fram um að
forðast tölvuna og tekur jafnvel beint
upp á kassettur með gamla laginu til
að hafa tónlistina meira „analog“.
Skemmir heldur ekki fyrir að kass-
ettur eru ódýrar og bæði hagstætt og
auðvelt fyrir hljómsveitir að gefa lög-
in sín sjálf út á snældu, eða hjá litlu
útgáfufyrirtæki, og selja á tón-
leikum.“
Rómantísk og dapurleg
Darkwave hefur verið skilgreind
sem ein af greinum new-wave-
stefnunnar, ekki fjarskyld synth-
poppi. „Það má líta á darkwave sem
n.k. undirstefnu póst-pönk og hefur
darkwave-heimurinn líka skarast við
goth-menninguna eins og sést á
klæðnaði fólks á darkwave-
viðburðum sem og á efnistökum tón-
listarfólksins sem oft eru í senn róm-
antísk og dapurleg,“ útskýrir Sólveig
og líkir darkwave-unnendum við eina
stóra fjölskyldu. „Meðal þess sem
Rómantísk, dapurleg
og ómótstæðileg
neðanjarðarstefna
Sólveig Matthildur er reiðubúin að leggja mikið á sig til
að fá að lifa og hrærast í darkwave-menningunni Hana
langar mun frekar að ferðast og spila en að neyðast til að
vinna á kaffihúsi Fram undan er tónleikaferð til Japans
Sérstaða „Darkwave er svo-
lítið eins og Pepsi Max: það
eru ekki allir sem fíla það, en
alls staðar er samt alltaf ein-
hver sem fílar það,“ segir
Sólveig.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það eru engar ýkjur að segja að Sól-
veig Matthildur Kristjánsdóttir sé
með mörg járn í eldinum. Hún vill
fyrst og fremst vera titluð tónlistar-
kona en Sólveig er líka ritstjóri tíma-
ritsins Myrkfælni og rekur hljóm-
plötuutgáfuna Hið myrka man.
Undanfarin ár hefur hún verið með-
limur í darkwave-
hljómsveitinni
Kælunni miklu og
fyrir skemmstu
sendi hún frá sér
sína fyrstu sóló-
plötu og hlaut fyr-
ir það Kraums-
verðlaunin og tónlistarverðlaun
Reykjavik Grapevine. Hún flutti til
Berlínar árið 2016 og lærði þar hljóð-
blöndun í eitt ár en hefur í dag komið
sér vel fyrir í þessari miðstöð þýskrar
nútímatónlistar og flakkar þaðan um
alla Evrópu.
Hálfgerð tilviljun réð því að Sól-
veig fór á bólakaf í evrópsku dark-
wave-senuna. „Þetta byrjaði allt með
því að ég tók upp á því að skrifa ljóð
og vorið 2011 stofnaði ég ljóðahópinn
Fríyrkjuna með vinum mínum. Við
héldum mánaðarleg ljóðakvöld á
Gauknum og Bar 11 og gáfum út
þrjár Fríyrkju-ljóðabækur þar sem
við söfnuðum saman verkum ís-
lenskra ungskálda,“ segir Sólveig
söguna. „Í framhaldi af því kynntist