Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018
McArthur hélt hann hefði
séð við öllum, sagði glæpa-
sérfræðingurinn Enzo Yaksic
í samtali við Toronto Star.
Aðeins 4% raðmorðingja
hluta lík í sundur og losa sig
þannig við þau. Aðrir glæpa-
sérfræðingar sögðu í samtali
við blaðið að hann hefði
væntanlega fengið mikið út
úr því að fela líkamshlutana
fyrir allra augum, ef svo má
segja en blómapottarnir með
líkamshlutunum voru á áber-
andi stöðum. Að þeirra sögn
er óvenjulegt að raðmorð-
ingjar séu eins gamlir og
McArthur. Tölfræðilega séð
er óvenjulegt að rað-
morðingi fremji
fyrsta morð sitt á
miðjum aldri.
Lögregla í Kanada segir aðlandslagsarkitekt í Torontohafi myrt að minnsta kosti
fimm manns og falið líkamsleifar
þeirra í blómapottum í görðum við-
skiptavina sinna. Lögreglan segir
að rannsókn málsins sé fordæma-
laus.
„Toronto-borg hefur aldrei fyrr
séð neitt þessu líkt,“ sagði Hank
Idsinga hjá lögreglunni í Toronto á
blaðamannafundi í vikunni.
Bruce McArthur, sem er 66 ára,
var handtekinn fyrr í mánuðinum
og ákærður í tengslum við dauða
tveggja manna. Á mánudaginn
bætti lögregla við þremur ákærum
um morð af ásettu ráði, þannig að
nú er McArthur ákærður fyrir
fimm morð.
Lögreglan segir að hún hafi fund-
ið líkamsleifar að minnsta kosti
þriggja fórnarlamba á lóðum sem
tengjast McArthur. Verið er að
rannsaka líkamsleifarnar og vonast
er til þess að DNA greining stað-
festi hverja um ræðir.
Leitað í þrjátíu görðum
Lögreglulið Toronto skoðar nú í
kringum 30 garða þar sem Mc-
Arthur hefur unnið, en hann er
sjálfstætt starfandi landslags-
arkitekt. Hún óttast að þar leynist
fleiri fórnarlömb. „Við höldum að
fórnarlömbin séu fleiri en ég hef
ekki hugmynd um hversu mörg þau
gætu verið,“ sagði Idsinga.
Hann hvatti alla sem hafa haft
samband við McArthur og notfært
sér arkitektúrþjónustu hans til að
hafa samband við lögreglu. „Við
höfum aldrei þurft að skoða svona
marga glæpavettvanga áður. Við
höfum tekið til rannsókna marga
blómapotta víðs vegar að úr borg-
inni og eigum eftir að fá fleiri. Það
eru að minnsta kosti tveir staðir
þar sem við ætlum að grafa til að
leita líkamsleifa,“ sagði Idsinga við
fjölmiðla.
Fyrir nokkrum mánuðum hafði
LGBT-samfélagið í Toronto lýst yf-
ir ótta sínum um að raðmorðingi
sem réðist á samkynhneigða karl-
menn gengi laus, eftir að tveir
menn hurfu, þeir Selim Esen og
Andrew Kinsman. Lögreglan sagði
í desember að það væri ekkert til í
þessum ásökunum. Nú er Mc-
Arthur lýst sem raðmorðingja en
lögregla segir hann hafa myrt víðar
en aðeins í ákveðnu hverfi borg-
arinnar þar sem samkynhneigðir
haldi hvað mest til. Þetta varði alla
borgina.
Auk Esen og Kinsman er Mc-
Arthur ákærður fyrir að hafa myrt
Majeed Kayhan og Soroush Mar-
mudi. Mennirnir voru allir á fimm-
tugs- og sextugsaldri og hafði
þeirra verið saknað í nokkur ár.
Fimmta fórnarlambið er síðan Dean
Lisowick en talið er að McArthur
hafi myrt hann árið 2016 eða 2017.
Lék jólasvein
Nokkur undanfarin jól var Mc-
Arthur í hlutverki jólasveins í versl-
unarmiðstöð í Toronto. Hann var
ráðinn í gegnum viðburðafyrirtæki
og virðast ekki hafa komið fram
neinar kvartanir
vegna starfa hans
þar.
McArthur lenti í
vandræðum með
peninga og var
lýstur gjald-
þrota árið
1999.
Hann hefur áður komið við sögu
lögreglu en hann var dæmdur í
tveggja ára skilorðsbundið fangelsi
árið 2003 eftir að hafa ráðist á
mann með stálröri árið 2001.
McArthur var virkur á stefnu-
mótasíðum fyrir samkynhneigða
karlmenn og óskaði hann sér-
staklega að komast í samband við
undirgefna menn.
Eftir að málið kom upp hafði Pet-
er Sgromo samband við lögregluna
vegna McArthurs. Hann fór á
stefnumót með McArthur og segir
að hann hafi snúið svo harkalega
upp á hálsinn á sér að hann hélt að
hann myndi brotna. Þeir höfðu
þekkst í meira en áratug.
Lögregla var með McArthur und-
ir eftirliti og þurfti að ákveða í
skyndi að fara inn á heimili hans og
handtaka hann eftir að þeir sáu
ungan mann fara inn í íbúðina. Þeg-
ar lögregla kom inn var maðurinn
bundinn niður en var heill á húfi.
Eftir handtökuna var Facebook-
síða hans tekin niður en hún virkaði
ósköp venjuleg. McArthur gagn-
rýndi Trump, birti myndir af sér
sem jólasveinn, deildi uppskriftum
og birti kattamyndir.
Raðmorð-
ingi hand-
samaður
Lögreglan í Toronto í Kanada hefur handsamað
raðmorðingja sem myrti a.m.k. fimm manns.
Landslagsarkitektinn Bruce McArthur myrti
samkynhneigða menn og faldi líkamsleifar
þeirra m.a. í blómapottum víða um borgina.
Bruce
McArthur
Hélt hann
hefði séð
við öllum
McArthur leitaði fórnarlamba í
hverfi samkynhneigðra í Toronto.
’
Hann var hluti af hverfinu.
Steven Gleason starfaði sem barþjónn á Church og
Wellesley-svæðinu sem samkynhneigðir sækja gjarnan.
ERLENT
INGA RÚN SIGURÐARDÓTTIR
ingarun@mbl.is
FRAKKLAND
CALAIS Að minnsta kosti fi mm innfl ytjendur voru skotnir í miklum
átökum milli Afgana og Erítrea í hafnarborginni Calais. Hinir særðu eru á
aldrinum 16-18 ára. Þrettán til viðbótar voru slasaðir eftir að hafa verið
slegnir með stálröri. Ekki er
vitað af hverju átökin hófust
en þau byrjuðu þar sem fólkið
hafði verið að bíða í röð eftir
matargjöfum. Innanríkisráð-
herra Frakklands, Gérard
Collomb, segir að átökin hafi
verið alvarleg og ástandið í
borginni sé ólíðandi.
SUÐUR-AFRÍKA
JÓHANNESARBORG
Búið er að bjarga öllum
955 námaverkamönnun-
um sem höfðu verið
fastir í gullnámu frá því að
rafmagnið fór af námunni
á miðvikudag. Margir þjáð-
ust af ofþornun og sumir
af of háum blóðþrýstingi en enginn var í lífshættu. Loftlítið var í námunum
en það tókst að senda niður einhvern mat og vatn. 80 námuverkamenn
létu lífi ð við störf sín í landinu árið 2017.
NOREGUR
Skíðalandslið Noregs hefur verið gagnrýnt fyrir val sitt á opinberri
peysu liðsins fyrir Vetrarólympíuleikana í ár. Peysurnar eru svartar
og gráar skreyttar rúnum, sem gagnrýnendur segja tengjast nýnas-
istum. Önnur rúnin er Týr og hin Yggdrasill en nýnasistar hafa gert
þessar rúnir að sínum. Margt af skíðafólkinu hefur ákveðið að nota
ekki peysuna á leikunum vegna þessa og er hún víða komin úr sölu.
ÍRAN
TEHRAN Lögregla í Tehran hefur handtekið 29 konur
fyrir að hafa verið á almannafæri án höfuðklúts. Mót-
mæli gegn reglum um klæðaburð sem voru settar eftir
byltinguna 1979 hafa farið stigvaxandi að undanförnu.
Ein kvennanna var handtekin eftir að hafa staðið á stalli
á fjölfarinni götu
án höfuðklúts Á
samfélagsmiðlum
hafa verið birtar
myndir af að
minnsta kosti ell-
efu konum að gera
slíkt hið sama.