Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 12
Æviráðinn í Barein eða
aftur heim?
„Þeir vilja æviráða mig,“ sagði Guð-
mundur Þórður Guðmundsson, lands-
liðsþjálfari Bareins í handknattleik
karla, glaður í bragði við Morgun-
blaðið í vikunni, spurður hvort hann
stefndi á að þjálfa landslið Bareins
áfram. Á sama tíma hefur þeirri hug-
mynd verið velt upp hér hvort HSÍ
muni falast eftir kröftum Guðmundar
til að þjálfa íslenska landsliðið að
nýju.
Hani, krummi,
hundur, svín … í strætó
Strætó bs. hefur fengið heimild
frá umhverfis- og auðlindaráðu-
neytinu fyrir tilraunaverkefni um
að leyfa gæludýr í strætisvögnum.
Til að ráðast í verkefnið þarf
Strætó undanþágu frá reglugerð
um hollustuhætti. Undanþágan
gildir í eitt ár.
Úr fréttatilkynningu frá Strætó bs.
Fráleitt að fara eftir
ráðleggingum
Dómsmálaráðherra sat fyrir svör-
um á fundi stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar í vikunni um skip-
an dómara við Landsrétt. Þar var
hún meðal annars krafin skýringa
á því hvernig hefði staðið á því að
hún hefði ekki farið að ráðum sér-
fræðinga við breytingar á tillögum
hæfisnefndar um skipan dómara.
„Þó einhverjir starfsmenn í ráðu-
neytinu hafi viðrað sín sjónarmið,
þá er fráleitt að ráðherra beri að
fara eftir ráðleggingum sérfræð-
inga í þessu.“
Sigríður Á . Andersen á fundi
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
VIKAN SEM LEIÐ
VETTVANGUR
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018
Enn einu sinni er komin fram skýrsla umástand fjölmiðla á Íslandi. Þær eru orðnarnokkrar. Og enn er niðurstaðan sú sama.
Hér er allt í veseni og þetta gengur ekki svona
lengur.
Núna er sumsé talað um, einu sinni enn, að
Ríkisútvarpið eigi ekki heima á auglýsingamark-
aði. Við eigum eftir að tala um það í svona þrjá
mánuði í viðbót og svo gleymist það bara. Eins og
venjulega. Enda má varla segja að nokkrar alvöru
takmarkanir séu á auglýsingasölu RÚV, fyrir ut-
an óljóst bann við kostun.
Ekki misskilja mig. Mér þykir vænt um RÚV
og ég vil hafa RÚV. Ég vann þar í fjórtán ár og
skemmti mér vel. Þar eru margir frábærir starfs-
menn og oft mikill metnaður.
En ég vil ekki bara RÚV, enda væri það eitt-
hvað skrýtið. Fyrirferð ríkisins á þessum markaði
er eins og ef einhver myndi planta stóru tré í
miðju blómabeði. Horfa svo á tréð vaxa og draga í
sig alla næringuna, muldra eitthvað um að
kannski væri rétt að vökva blómin. En þess þyrfti
ekki. Það hlyti að rigna bráðlega.
Kunningi minn talar alltaf um auglýsingastjóra
RÚV sem starfandi útvarpsstjóra. Ákvarðanir séu
of oft teknar með tilliti til þess hvernig gangi að
selja auglýsingar en ekki út frá því hvað RÚV
ætti að vera að gera. Það er ekki alveg útí bláinn.
Þættir eru lengdir svo hægt sé að koma fyrir
tveimur auglýsingahléum og ég get ómögulega
séð að það sé hlutverk Ríkisútvarpsins að gefa
endalaust dót í einhverjum leikjum í illa földum
óbeinum auglýsingum.
En það er ekki beint við RÚV að sakast. Haf-
andi unnið þarna veit ég að þetta er endalaus
baraátta um aura. Nú, þegar útsýni starfsmanna
er innum eldhúsglugga á heilu hverfi sem spratt
upp í túnfætinum hjá þeim, er ljóst að það er
varla hægt að finna fleiri töfralausnir.
Þetta vita reyndar starfsmenn RÚV og þegar
enn ein skýrslan kemur fram þá rumskar risinn í
Efstaleiti. Þar er helst talað við fulltrúa minni-
hluta nefndarinnar um að þetta sé nú ömurleg
hugmynd og að vondu risarnir í Google og Face-
book taki bara alla auglýsingapeningana. Eins og
það sé ekki nóg: Hvað með vesalings auglýsinga-
stofurnar? Eiga þær bara að framleiða skjáaug-
lýsingar fyrir N4?
Svo má alltaf finna eitthvert land í Evrópu þar
sem ríkisstöð selur auglýsingar, benda á hana og
segja: Sjáið! Það eru miklu fleiri en við að gera
svona.
Það er merkilegt að sjá gamla félaga, af einka-
fjölmiðlum, byrja á RÚV og verða bara sann-
færðir um að þetta sé allt eins og best verði á
kosið. Eftir að hafa verið manna heitastir gegn
því að RÚV sé á þessum markaði.
Ég er eiginlega alveg viss um að Ríkisútvarp
án auglýsinga yrði miklu betra og sterkara.
Óbundið af kröfunni um að allt þurfi að höfða til
allra svo hægt sé að selja nóg af auglýsingum í öll
slott og ryksuga til sín allt sem fæst. Ég held
nefnilega að það væri stórkostlegt að sjá RÚV
gera bara það sem það vill. Vera meiri Rás 1 og
minni Stöð 2.
Það gefur líka öðrum fjölmiðlum betra tækifæri
til að veita því samkeppni og gera ýmislegt sem
RÚV hefur gert alltof lengi í þeim eina tilgangi
að ná sér í auglýsingar.
Risinn rumskar
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Á meðan ég man
’ Kunningi minn talar alltaf um auglýsingastjóra RÚV sem starf-andi útvarpsstjóra. Ákvarðanir séu of oft teknar með tilliti tilþess hvernig gangi að selja auglýsingar en ekki út frá því hvað RÚVætti að vera að gera. Það er ekki alveg útí bláinn.
UMMÆLI VIKUNNAR
’Karlkjáni með dollaraseðlanaupp úr rassskorunni á reið-buxunum þínum.
Auður Jónsdóttir skrifaði svo um Þórarin Jónsson í
Laxnesi í grein 2016 en var í vikunni sýknuð í meið-
yrðamáli sem hann höfðaði gegn henni vegna þess-
ara ummæla og fleiri. Ummælin standa því óbreytt.
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
viðkemur rafhitun.
//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////