Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Side 21
Eldhúsinnréttingin
er mjög falleg. Ég myndi segja að stíllinn minn sé nokkuð skandin-avískur. Ég vil að hlutirnir séu fallegir, einfaldirog nýtist vel. Ég er mjög skipulögð að eðlisfari og
mér líður best þegar allt er í röð og reglu heima hjá mér.
Hver hlutur á sinn stað svo auðvelt er að ganga frá í lok
dags,“ útskýrir Harpa og bætir við að við innréttingu
heimilisins kjósi hún að hafa ekki of mikið af húsgögnum
eða skrauti í hverju rými. „Ég vil frekar hafa fáa hluti í
kringum mig og vanda frekar valið. Ég eyði smá tíma í að
velja hluti inn á heimilið, þeir þurfa að passa vel inn í
rýmið og uppfylla þarfir okkar allra. Mér finnst kostur að
það sé auðvelt að þrífa hlutina, sérstaklega með einn
fimm ára gaur og núna hvolp svo það getur ýmislegt
gengið á.“
Spurð hvaðan parið sæki innblástur inn á heimilið seg-
ir Harpa að sér finnist gaman að fara í húsgagnabúðir og
skoða uppstillingar. „Ég horfi á heildarmyndina, lita-
samsetninguna og öll litlu smáatriðin. Ég skoða líka tíma-
rit og netið ef ég er að leita að einhverju sérstöku.“
Þá segist Harpa versla víða inn á heimilið. „Ég á ekki
eina uppáhaldsbúð heldur er ég yfirleitt búin að sjá fyrir
mér hvað ég vil og svo fer ég á stúfana. Ég er þannig að
ég verð að fara á nokkra staði og vega og meta þangað til
ég er alveg viss um að þetta sé það sem ég vil. Ég er ekki
mjög spontant kaupandi.“
Parið er sammála um að borðstofan sé í miklu eftirlæti
á heimilinu. „Ég elska að horfa út á Urriðavatn og náttúr-
una þar í kring. Sérstaklega núna þegar það er snjór yfir
öllu,“ útskýrir Harpa og segir stofuna einnig eins konar
griðastað á heimilinu, sérstaklega á föstudagskvöldum.
„Þá hrúgumst við upp í sófa eftir föstudagspitsuna og
horfum saman á bíómynd.“
Hvolpurinn Bella
nýtur sín í fallega
innréttaðri stofunni.
Morgunblaðið/Hari
Gardínurnar koma vel
út í stofunni við ljósið
frá Verner Panton.
4.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
Enn meiri afsláttur af völdum vörum
GHOST
Hægindastóll í
mörgum litum
í áklæði og
svörtu
leðri.
Ghost í áklæði
95.992 kr. 119.990 kr.
Ghost í leðri
127.992 kr. 159.900 kr.
AFSLÁTTUR
30%
MAX
U-sófi í gráu og
beigelitu áklæði.
Stærð: 286x200x87 cm
109.990 kr. 159.990 kr.
ÓTRÚLEGT
VERÐ!