Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Síða 29
4.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Kostaríka er lítið land á milli Ník-
aragva og Panama í Mið-Ameríku.
Þar sem landið er mjótt er strand-
lengjan löng og liggur landið bæði
að Kyrrahafinu og Karíbahafinu.
Kyrrahafsmegin er hægt að
stunda brimbretti allt árið en Kar-
íbamegin er hægt að fara á bretti
frá desember til mars og júlí og
ágúst. Þarna eru engar risaöldur
þannig að þeir allra bestu fara
annað en svæðið hentar vel byrj-
endum. Það er hægt að keyra á
milli strandlengjanna tveggja á
fimm klukkustundum.
Það var ekki fyrr en seint á ní-
unda áratug síðustu aldar sem
landið var uppgötvað af brim-
brettaáhugafólki sem hafði áður
haldið sig norðar eftir strandlengj-
unni í Mexíkó.
Þangað er heldur langt að fara
frá Íslandi en á móti kemur er að
þarna er gott veður allt árið, lang-
ar sandstrendur og nóg sólskin.
Santa Teresa þykir einna
skemmtilegasti brimbrettabærinn
og er líka vinsæll hjá jógaiðk-
endum. Dominical þykir líka vera
falinn demantur en í kringum
þennan bæ á Kyrrahafsströndinni
eru margir litlir strandbæir þar
sem stemningin er afslöppuð.
Meðalhiti sjávar er í kringum
28°C allt árið þannig að blautgalli
er ekki staðalbúnaður.
KOSTARÍKA
Tvær strandlengjur
Frakkland er líka góður kostur fyrir
brimbrettafólk, en hægt er að fara
á bretti allt frá Normandí suður til
Biarritz, þar sem strandlínan mæt-
ir Atlantshafinu.
Frakkland er fyrsta landið í Evr-
ópu þar sem brimbrettaiðkun varð
vinsæl íþrótt og byrjaði þetta allt í
Biskajaflóa. Sagan segir að leikstjóri
frá Kaliforníu hafi verið að taka upp
kvikmynd í Biarritz á miðjum sjötta
áratug síðustu aldar og tekið eftir
því að þarna brotnuðu fullkomnar
öldur alveg ónotaðar. Hann sýndi
heimamönnum hvernig ætti að
gera þetta, nokkrir vinir byrjuðu að
smíða bretti og skömmu seinna
varð fyrsti brimbrettaklúbbur
Frakklands til, Waiikiki Surf Club.
Fljótlega spurðust öldurnar út
og brimbrettafólk frá Bandaríkj-
unum og Ástralíu fór að heimsækja
landið og er það nú miðstöð brim-
bretta í Evrópu. Bærinn Hossegor,
norður af Biarritz, er helsti brim-
brettabærinn og þykir hann og ná-
grannabæirnir Capbreton og Sig-
nosse huggulegir til að dvelja í.
Þarna eru fjölmörg kaffihús, veit-
ingastaðir, barir og brimbretta-
búðir.
Sjórinn er einhver sá hlýjasti fyrir
brimbrettafólk í Evrópu í Biskaja-
flóa, um 22°C á sumrin, því að fló-
inn nær að halda hitanum inni.
Á Bretaníuskaga, þar sem víða
er hægt að fara á brimbretti, er
sjórinn öllu kaldari eða um 15°C.
Líkt og í Portúgal eru bestu öld-
urnar í september til apríl en kjör-
aðstæður fyrir byrjendur í maí til
október.
FRAKKLAND
Fyrsti brimbretta-
staðurinn í Evrópu
GettyImages/iStockphoto
PORTÚGAL
GettyImages/iStockphoto
Borgarferð og brim
Vel er hægt að mæla með því
að fara í brimbrettafrí til
Portúgal og er hægt að njóta
þess í kringum páska, fyrir þá
sem vilja skella sér sem fyrst.
Góður tími til að heimsækja
Lagos er í mars eða apríl. Stað-
setningin í suðurhluta landsins
gerir það að verkum að þarna
er hlýjasti sjórinn við landið.
Algarve-ströndin er hvað hlýj-
asta svæðið í landinu og er
sjórinn 21°C á sumrin og fer
aðeins niður í 15°C á veturna.
Lega landsins við Atlants-
hafið gerir það að annars að
verkum að víða er hægt að
fara á brimbretti. Best er að ná
góðum öldum í september til
apríl en almennt er þó best fyr-
ir byrjendur að mæta í maí til
október.
Hægt er að sameina borg-
arfrí og brimbretti með því að
heimsækja Lissabon sem hefur
upp á margt að bjóða. Bæirnir
Sintra og Cascais í nágrenni
við höfuðborgina eru líka vin-
sælir hjá brimbrettafólki.
Þarna eru fallegar strendur og
svæðið hentar því vel byrj-
endum.
Portúgal er skemmtilegt fyr-
ir brimbrettafrí því þar eru
margir litlir bæir sem eru frek-
ar óspilltir af ferðamönnum, ef
svo má segja, góður matur og
kaffi og verð er hagstætt.
NÝ ÞJÓNUSTA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ