Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Qupperneq 40
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Frances McDormand
leikkona
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
framkvæmdastjóri ODIHR
Felicity Huffman
leikkona
SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2018
Þorramatur, Gullfoss, Geysir, Björk, Sigur Rós
og Bláa lónið hafa fyrir löngu öðlast heims-
frægð. Nú er komið að öðru íslensku fyrirbæri;
ísbíltúr, til að breiða út hróður Íslands.
Eitt þekktasta ferðatímarit heims, Travel +
Leisure fjallar um ísbíltúrinn okkar sívinsæla út
frá þeirri forsendu að hann sé íslensk uppfinn-
ing, að því leyti að það sé huggulegt að fara í bíl-
túr og kaupa ís með fjölskyldunni um hávetur.
„Leggið þykka teppið frá ykkur á sófann og
látið eldiviðinn eiga sig í nokkrar klukkustundir,
það er kominn tími á ísbíltúr,“ segir í greininni
og er íslenska orðið notað. Rætt er við Sif Gust-
avsson og hún beðin að gefa ráð hvernig á
að fara í ísbíltúr eins og alvöru Íslend-
ingar og upplýsir hún að slíkur bíltúr endi
yfirleitt á að kaupa ísinn, sem eins konar
verðlaun og hvert sé keyrt eða rúntað áð-
ur sé aukaatriði. Ísbíltúr sé fyrir fjöl-
skyldur, vini eða stefnumót. Blaðamaður
tímaritsins segir að þetta sé enn ein góð við-
bótin í norræna „hygge“-þemað sem tröllreið
öllu á síðasta ári vestanhafs. Þar sem Banda-
ríkin horfðu einkum til Skandínavíu til að sjá
hvernig ætti að njóta lífsins og hafa það nota-
legt.
Ísbíltúr hefur verið
samofinn lífi Íslendinga
í áratugi og er einkum
vinsæll á sunnudögum.
Eitt þekktasta ferðatímarit heims hvetur Bandaríkjamenn
til að fara að fordæmi Íslendinga til að gera sér glaðan dag
Í febrúarmánuði fyrir 20 árum
birtist frétt þess efnis í Morgun-
blaðinu að íbúi nokkur við
Miklubraut væri búinn að fá sig
fullsaddan af umferðarhávað-
anum og vildi láta skerða heyrn
sína. Hafði hann sent landlækni
bréf og farið fram á að land-
læknir samþykkti að gerð yrði
aðgerð þar sem heyrn hans yrði
skert. Taldi hann sig ekki geta
búið lengur við þann ærandi há-
vaða sem bærist frá umferðinni.
Í fréttinni kom fram að land-
læknir teldi sig ekki geta mælt
með slíkri aðgerð.
Svefnherbergi mannsins var í
10 metra fjarlægð frá Miklu-
braut en á þeim tíma fóru um
50.000 bílar um Miklubraut á
hverjum sólarhring. Hafði hann
þegar þarna var komið leitað til
allra opinberra stofnana sem
málið varðaði og var viðurkennt
af hálfu landlæknis og stofnan-
anna að hann og eiginkona hans
byggju við heilsuspillandi að-
stæður.
Íbúinn hafði reynt að draga úr
hávaðamengun í íbúð sinni með
því að setja steinull í glugga og
hurðir en það dugði ekki. Í við-
talinu við Morgunblaðið sagði
hann næsta skref vera málsókn.
GAMLA FRÉTTIN
Vildi láta
skerða
heyrn sína
Á þeim tíma sem fréttin birtist kom út skýrsla þar fram kom að 261 íbúi við
Miklubraut byggi við óviðunandi skilyrði vegna loftmengunar.
Morgunblaðið/Árni Torfason
RELEVE Model 2572
L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 250 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
DADO Model 2822
L 214 cm Áklæði ct. 70 Verð 239.000,-
L 214 cm Leður ct. 10 Verð 299.000,-
JEREMY Model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 399.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 539.000,-
TRATTO Model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
SAVOY Model V458
L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 223 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
Ísbíltúrinn í útrás