Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Síða 6
Skilaboð mín eru skýr: JesúsKristur kom, dó á krossinum,reis upp frá dauðum og bað okkur um að iðrast synda okkar og taka á móti honum í trú sem Drottni okkar og frelsara. Og gerum við það fyrirgefast okkur allar okkar syndir.“ Þannig dró Billy Graham saman boðskap sinn í síðustu krossferðinni, eins og prédikunarferðir hans voru kallaðar, árið 2005 í New York. Hann hafði þá ákveðið að rifa seglin, kom- inn fast að níræðu, eftir meira en 400 krossferðir sem borið höfðu hann til 185 landa. Um 215 milljónir manna munu hafa hlýtt á prédikanir Gra- hams á krossferðunum, auk þess sem hann náði til margra milljóna til við- bótar gegnum sjónvarp, myndbönd, netið og 34 bækur sem eftir hann liggja. Þegar hann flutti sína síðustu kveðju, í vikunni sem hann varð 95 ára haustið 2013, komu hvorki fleiri né færri en 480 sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum og Kanada að út- sendingunni. Þegar Billy Graham tal- aði þá var hlustað. Það var ekki bara alþýða manna, allir forsetar Bandaríkjanna frá Harry S. Truman að Barack Obama leituðu í smiðju til Grahams og báðu með honum. Eflaust hefði prédik- arinn getað gefið núverandi forseta holl ráð líka en hann dró sig í hlé fyrir tæpum fimm árum af heilsufars- ástæðum. Graham glímdi við marg- vísleg veikindi seinustu árin, svo sem krabbamein í blöðruhálsi, vökvasöfn- un í heila og einkenni Parkinson- sjúkdómsins. Það var einmitt einn forsetanna, George Bush eldri, sem lýsti Graham sem „sálnahirði Bandaríkjanna“. Oft var eins og Graham væri æðsti trúar- leiðtogi þjóðarinnar. Það kom ekki síst í ljós þegar myrkrið var hvað mest eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Þá var leitað til hans eftir sálgæslu. Líka má nefna að Gra- ham var sæmdur æðsta heiðursmerki bandaríska þingsins. Ólst upp á kúabúi William Franklin Graham fæddist ár- ið 1918, rétt áður en fyrri heimsstyrj- öldinni lauk, og ólst upp á kúabúi í Charlotte. Hann hafði ekkert yndi af því að fara í kirkju sem barn, vildi miklu frekar vera úti að spila hafna- bolta, en það breyttist þegar hann var fimmtán ára og kynntist farand- prédikaranum Mordecai Fowler Ham. Þaðan í frá helgaði hann líf sitt þjónustu við Krist. „Mér var ekkert um evangelisma gefið,“ rifjaði hann upp síðar. „Vinur minn dró mig hins vegar með sér á samkomu og andi Guðs almáttugs byrjaði að tala til mín þegar ég fór aftur, kvöld eftir kvöld. Kvöld eitt, þegar mér var boðið að gera Jesú að leiðtoga lífs míns sagði ég einfaldlega: Já, Guð, það vil ég gera og vissi að líf mitt hafði tekið nýja stefnu.“ Graham kynntist eiginkonu sinni, Ruth McCue Bell, í Chicago og gengu þau í heilagt hjónaband árið 1943 og eignuðust fimm börn. Hjónaband þeirra varði í 64 ár, eða þangað til Ruth lést árið 2007. Graham fór í sína fyrstu evang- elísku krossferð árið 1947 en það var krossferðin í Los Angeles tveimur ár- um síðar sem fangaði athygli þjóð- arinnar; hundruð þúsunda flykktust að sjá hinn unga prédikara. Eftir það varð ekki aftur snúið. Það sem einkenndi prédikanir Gra- hams alla tíð var afgerandi trúfesta og miklir persónutöfrar. Hann átti auðvelt með að hrífa fólk með sér. Árið 1950 setti Graham trúboðs- samtök sín á laggirnar en þau eru með um fimm hundruð manns í vinnu vítt og breitt um heiminn. Sonur Gra- hams, Franklin, veitir samtökunum nú forstöðu. Graham lagði sig alltaf fram um að ferðast víða enda sannfærður um að Guð skeytti hvorki um landamæri né þjóðerni. Fjölmennasta samkoma hans var haldin í Seúl í Suður-Kóreu 1973, þegar meira en ein milljón manna kom til að hlýða á boðskap Grahams. Sama ár lét hann eftirfar- andi orð falla í Jóhannesarborg í Suð- ur-Afríku: „Kristur er allra, hvar í heiminum sem þeir búa, og ég hafna allri trú sem byggist á hatri. Krist- indómurinn er ekki aðeins trú hvíta mannsins og látið engan segja ykkur annað.“ Þannig bauð hann kynþáttahatri birginn en Graham neitaði að prédika í landinu þangað til samkomur hans voru opnar bæði hvítum og svörtum. Graham komst einnig inn fyrir járntjaldið seint á áttunda áratugnum og prédikaði í kommúnistaríkjunum, þrátt fyrir þá staðreynd að lítið um- burðarlyndi væri gagnvart kristin- dómnum þar um slóðir. Hugvekjur Graham birtust líka víða, m.a. hér í Morgunblaðinu. Hafnaði trú sem byggðist á hatri Billy Graham, nafntogaðasti prédikari 20. ald- arinnar, lést í vikunni, 99 ára að aldri. Hann náði eyrum ótrúlegs fjölda fólks vítt og breitt um heim- inn og hvatti kristið fólk til að vera stolt af sínum gildum og hleypa Jesú Kristi inn í hjartað. AFP Billy Graham í prédikunar- stólnum. Þar leið honum alla tíð vel og heillaði milljónir með trú- festu sinni og persónutöfrum. 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018 ’ Þegar hann biður með manni á forsetaskrif- stofunni eða á efri hæðum Hvíta hússins, líður manni eins og hann sé að biðja fyrir manni sjálfum en ekki forsetanum. Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is BANDARÍKIN NASHVILLE Mynd- band sem tvær nekt- ardansmeyjar sendu frá sér í vikunni vakti mikla athygli en þar sýndu þær fram á að það er mun erfi ðara að fá leyfi til að dansa nakin(n) í ríkinu en að festa kaup á skotvopni. Allskonar athuganir eru gerðar, bakgrunnur skoðaður vandlega, fi ngraför tekin og þar fram eftir götunum, áður en leyfi ð er veitt. Þá eru menn löngu búnir að kaupa sér byssu, jafnvel margar. EGYPTALAND ASYUT Lögreglumaður nokkur vann frækið björg- unarafrek í vikunni þegar hann greip barn sem féll niður af þriðju hæð byggingar. Barnið sakaði ekki og lögreglumaðurinn meiddist aðeins lítillega. Lögreglu- maðurinn stóð vaktina fyrir utan banka í borginni og brást skjótt við þegar fólk kom auga á barn sem hékk fram af svölum á þriðju hæð. ARMENÍA JEREVAN Þrátt fyrir að kynval hafi verið bannað með lögum árið 2016 kveður enn rammt að eyðingu kvenkyns fóstra í landinu; aðeins Kína er ofar á þeim lista. Fyrir hverja 120 drengi fæðast aðeins 100 stúlkur og yfi rvöld í landinu hafa vaxandi áhyggjur af því að skökk sam- setning þjóðarinnar komi til með að hafa slæmar afl eiðingar til lengri tíma: Hverjum eiga drengirnir okkar að giftast? SVARTFJALLALAND PODGORICA Óþekktur maður varpaði hand- sprengju að sendiráði Bandaríkjanna í borginni í vikunni og sprengdi sjálfan sig að því búnu í loft upp. Engan annan sakaði í árásinni og skemmdir munu hafa verið óverulegar. Eigi að síður hefur sendiráðið ráðlagt fólki, einkum bandarískum ríkisborgurum, að halda sig frá sendiráðsbyggingunni fyrst um sinn. Franklin Gra- ham, sonur Billy Graham, sem einnig er prédikari, kom til Íslands haustið 2013. Hann sagði þetta um föður sinn í samtali við Morgunblaðið: „Faðir minn verður 95 ára í næsta mánuði og hefur það gott miðað við sinn aldur. Hann styðst við göngugrind og er ekki þrekmikill en hug- urinn er skýr. Ég lít reglulega til föður míns og reyni að ná honum út úr húsinu. Hann er ekkert alltof spenntur fyrir því og þegar ég segi honum að láta ekki svona skáskýtur hann augunum á mig og seg- ir: „Bíddu þangað til þú verð- ur 95 ára!“ Hugurinn er skýr Franklin Graham

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.