Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Qupperneq 8
SOFIA HELIN Sænska leikkonan sló rækilega í gegn sem lögreglukonan Saga
Norén í Brúnni, sænsk/dönsku glæpaþáttunum sem nýlega runnu sitt skeið
þegar fjórða og síðasta þáttaröðin var sýnd. Helin er 45 ára, fædd í bænum
Hovsta í Örebro-fylki 25. apríl 1972. Hún heitir fullu nafni Sofia Margareta
Götschenhjelm Helin, lengsta nafnið tók leikkonan upp eftir að hún giftist
Daniel Götschenhjelm.
Áður en Sofia Helin hóf nám við leiklistarskólann í Stokkhólmi stundaði hún
heimspekinám við háskólann í Lundi. „Mér fannst hins vegar hinn akademíski
heimur ekki fullnægja sköpunarþörf minni. Um tvítugt vissi ég ekki hvað mig
langaði að verða; datt í hug að verða sálfræðingur eða mannfræðingur. Jafnvel
ljósmyndari.“ Hún hafði tekið þátt í leiklist í framhaldsskóla og háskóla, sótti á
endanum um í leiklistarskólanum og fékk inni 24 ára.
Æska leikkonunnar var sannarlega enginn dans á rósum. Hún var aðeins 10
daga gömul þegar amma hennar og sex ára bróðir lentu í bílslysi með þeim af-
leiðingum að drengurinn lést. Móðir Sofiu var hjúkrunarkona en faðirinn sölu-
maður. Slysið hafði mikil áhrif á fjölskylduna, eins og nærri má geta, og þegar
Sofia var fjögurra ára skildu foreldrarnir. „Faðir minn var alkóhólisti. Þegar
foreldri glímir við vandamál af því tagi er myrkrið
skammt undan, maður flakkar inn og út úr því, en myrkr-
ið er alltaf fyrir hendi. Mér leið illa vegna þess að pabbi
var einmana og leið ekki vel. Líka vegna þess að þetta var
aldrei rætt; við lifðum bara með því og með tímanum lok-
aði ég tilfinningar mínar sífellt meira inni,“ sagði Helin í
viðtali við norskan fjölmiðil fyrir nokkrum misserum.
Móðir hennar giftist aftur. Hún segir foreldra sína ynd-
islegt fólk, „en aðstæður voru þannig að lífið var oft erfitt.
Ég tel að það hafi hjálpað mér að verða góður leikari“.
Helin er mikil fjölskyldumanneskja. Segir fjölskylduna
mikilvægari en allt annað. Vegna áfalla í lífinu sé auðvelt
að átta sig á hvað mestu máli skiptir.
Hún fer ekki mikið út á lífið og kann vel við sig í róleg-
heitum. „Áreitið er oft svo mikið þegar ég er að vinna að ég
þarf tíma fyrir sjálfa mig. Stundum skrifa ég í dagbókina
mína að ég ætli að hafa það náðugt einhvern ákveðinn dag;
muna að fara í nudd og ekki segja já við öllu sem ég er beð-
in um.“ Þetta geti reynst erfitt í fyrstu en sé engu að síður
mikilvægt.
Eftir að Helin sló í gegn sem Saga Norén í Brúnni er
hún þekkt víða um heim, en segist ánægð með að í Svíþjóð
kippi fólk sér ekki upp við að sjá hana á götu. „Ég gæti
ekki hugsað mér lífið öðruvísi.“ skapti@mbl.is
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018
FJÖLSKYLDAN Sofia Helin er gift Daniel Götsch-
enhjelm og eiga þau tvö börn, drenginn Ossian sem
er 14 ára og átta ára dóttur, Nike.
Sofia og Daniel kynntust í leiklistarskóla, hann lauk
einnig námi, lék um tíma en venti sínu kvæði í kross
síðar og nam guðfræði. Starfar nú sem prestur í
Sænsku kirkjunni, stærstu kristnu kirkju landsins en
árið 2000 varð aðskilnaður ríkis og kirkju í Svíþjóð.
Sofia segist trúuð og kunna því vel að sækja guðs-
þjónustu „en ég er þó ekki endilega í mestum
tengslum við guð þar,“ sagði hún í viðtali við norskt
blað. „Það gerist til dæmis úti í náttúrunni,“ svarar
Sofia Helin spurð nánar. „Ég er ekki viss um að
mannskepnan sé nægilega greind til að skilja í raun
hvað guð eða guðdómurinn er. Ég held að enginn geti
lýst því vegna þess að við erum ekki nógu þróuð.“
Helin segist þó treysta sér til að fullyrða að til sé
einhver æðri máttur hinum mannlega. „Ég veit það
vegna eigin upplifunar. En sú reynsla er of persónuleg
til að ég vilji tala um hana.“
Fjölskyldan. Sofia Helin með börnum sínum, Ossian og
Nike, og eiginmanninum Daniel Götschenhjelm.
Eiginmaðurinn
starfar sem prestur
SANNFÆRANDI Sofia Helin fer
svo vel með hlutverk lögreglukon-
unnar Sögu Norén, að sumir telja
leikkonuna sjálfa einhverfa. Svo er
alls ekki. Hún hefur hitt að máli fólk
frá samtökum einhverfra og fengið
bréf frá einhverfu fólki í Bandaríkj-
unum, Kanada og víðar. „Fólk seg-
ist sjá sjálft sig í Sögu. Á frumsýn-
ingu í Kaupmannahöfn sagði mér
einhverfur maður að hann hefði
sætt sig við einhverfuna eftir að
hafa séð Brúna. Fram að því hafði
hann í raun hunsað hana. Það er
frábært að heyra að þetta hjálpaði
honum,“ sagði Helin í samtali við
vefsíðu danska ríkisútvarpsins.
Helin ekki
einhverf!
Sofia Helin og danski leikarinn Kim Bodnia í Brúnni. Myndin er tekin 2011 en
Bodin lék hitt aðalhlutverkið í tveimur fyrstu röðum Brúarinnar.
AFP
EINKENNI Sofia Helin lenti í
slæmu hjólreiðaslysi þegar hún
var 24 ára og ber þess ævarandi
merki.
„Dínamórinn losnaði og festist í
dekkinu. Ég steyptist fram fyrir
mig og lenti með andlitið á mal-
bikinu,“ sagði hún í viðtali fyrir
nokkrum árum, þegar hún rifjaði
atvikið upp. „Ég kjálkabrotnaði og
nokkrar tennur brotnuðu auk
þess sem varirnar sködduðust.“
Brotin greru og tannskaðann
var hægt að bæta en þrátt fyrir
það leist Helin ekki meira en svo á
eigið útlit. Örið í andlitinu var svo
áberandi. „Á endanum komst ég
hins vegar á þá skoðun að örið
passaði mér ágætlega. Að það
sýndi einfaldlega fram á hver ég
væri í raun og veru.“
Sofia Helin á unglingsárunum.
Af facebook-síðu Helin.
Áberandi ör
eftir slys
Saga af Sofiu
Sofia Helin á kvik-
myndahátíðinni í
Cannes 2016.
AFP
Sofia Helin
sem var frábær
í Brúnni.
Af Facebook-síðu Helin
’Um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaðiað verða; datt í hug að verða sálfræðingureða mannfræðingur. Jafnvel ljósmyndari.
Af Facebook-síðu Helin
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
32.500kr
HILLA MEÐ SNÖGUM
24.900kr
GLERBOX
3.600kr
BEKKUR