Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Page 14
Hjálmar leikur aðalhlutverk í myndinni Fullir vasar sem nú er í kvikmyndahúsum.
með svona marga, en ég er samt mjög þakk-
látur að það séu svona margir að horfa.“
Það þekkja margir Hjálmar Örn og persón-
ur hans, eins og Hvítvínskonuna, Bjarna
gröfumann, Illa Settan og Halla Hipster.
„Það sprakk allt þegar ég kom með Hvít-
vínskonuna, hún er gríðarlega vinsæl. Hún er
byggð á fólki í kringum mig, eins og margir af
mínum persónum eru. Ég er með þessa týpu á
snappinu, og hún sendi mér einu sinni skilaboð
og spurði: „Hjálmar, er þetta ég sem þú ert að
leika?“ Og ég roðnaði heima hjá mér, og svitn-
aði, því það var rétt,“ segir hann og hlær en
bætir við að Hvítvínskonan sé blanda af mörg-
um konum sem hann fylgist með.
„Þetta eru svona flippaðar týpur, eru með
hatta í partíum, fara í utanlandsferðir og eru
alltaf að fá sér. Það er alltaf rosalega gaman
hjá þeim. Hvítvínskonan lifir alltaf í núinu, og
er alltaf að finna sér ástæðu til að fá sér að
drekka,“ segir hann og bætir við að hann fái
mikla útrás að leika þessa karaktera.
Hjálmar segir alla karakterana byggða á
einhverjum í kringum hann. „Ég er með einn
sem heitir Halli Hipster sem er mjög vinsæll.
Hann er úr Vesturbænum og fer ekkert út fyr-
ir hann, og hjólar allt. Svona týpa eins og Gísli
Marteinn, fer á Kaffi Vest og elskar vegan og
RÚV, en er samt ekki með sjónvarp heldur
hittir alla vinina til að horfa saman á þætti.
Hann er í Baritónum, mikill umhverfissinni og
dóttir hans heitir mjög væmnu nafni,“ segir
Hjálmar.
„Uppáhaldskarakterinn minn er ekkert
endilega sá vinsælasti, hann heitir Illa Nettur.
Hann er byggður á Áttunni, og Jack Ass-
myndunum. Það er eitthvað við hann sem ég
tengi við. Það er svo gaman þegar ég er búinn
að vera í einhverjum karakter kannski tvo,
þrjá tíma, þá þykir manni vænt um þá. Laddi
sagði mér einmitt að hann hefði upplifað það,
að þeir verða eins og félagar manns.“
Heiður að leika með Ladda
Hjálmar lítur mjög upp til Ladda og segir
hann gull af manni en hann kynntist honum við
tökur myndarinnar þar sem Laddi leikur eitt
hlutverkið.
„Ég hitti Ladda þegar ég var að leika í
myndinni og hann sagði mér að hann hefði
skapað yfir 70 karaktera um ævina, en margir
hefðu horfið strax en aðrir lifað. Það er eins hjá
mér, þó ég sé ekki með svona marga, þá eru
það bara nokkrir sem lifa. Ég er að gera sama
grínið og Laddi var með fyrir 20-30 árum,“
segir Hjálmar og viðurkennir fúslega að Laddi
sé í miklu uppáhaldi hjá sér.
„Mér fannst hann geggjaður þegar ég var
yngri, horfði á allt sem hann gerði og hlustaði á
allar plöturnar. Hann er magnaður, og að leika
á móti honum var þvílíkur heiður. Að vera
kominn á þennan stað, 45 ára, með enga leik-
listarmenntun, og vera þarna. Að leika á móti
Ladda gerir mann betri leikara. Eins með
Hilmi Snæ, það er eitthvað magnað við þá
báða. Og Ólafía Hrönn er líka snillingur, ég
tengdi mest við hana á settinu. Hún er svo
skemmtileg.“
Blaðamaður tekur hlé og biður um vatnsglas
og Hjálmar hendist á fætur. „Viltu ekki kaffi?
Ég gleymi að bjóða upp á kaffi! Ég sem ætlaði
að vera búinn að kveikja á vélinni áður en þú
kæmir, en gleymdi því,“ segir hann og skrifar
það á athyglisbrestinn.
Hann hitar kaffibolla í flýti og við höldum
áfram spjallinu, enda af nógu af taka, við eig-
um alveg eftir að tala um kvikmyndaferilinn,
sem nú er nýhafinn.
„Það er komið handrit“
Hjálmar leikur aðalhlutverkið í Fullum vösum,
nýjustu kvikmynd leikstjórans og handritshöf-
undarins Antons Sigurðssonar. Hún fjallar um
fjóra menn sem ákveða að ræna banka til að
eiga fyrir tugmilljóna skuldum og í kjölfar þess
fer í gang atburðarás sem enginn hefði getað
séð fyrir. Sannköllað hasar-grínmynd.
„Nú ertu á barmi heimsfrægðar,“ segir
blaðamaður og Hjálmar skellihlær og tekur
undir það, en útskýrir svo hógvær hvernig
þetta kom til, að hann var beðinn um að leika
aðalhlutverk í kvikmyndinni.
„Þetta gerðist þannig að Anton leikstjóri
sendi mér skilaboð þar sem hann spyr hvort
Hvítvínskonan er ein vinsælasta persóna Hjálmars. Hún lifir í núinu og finnur sér ætíð tækifæri
til að fá sér hvítvín og lyfta sér upp. Persónan er byggð á konum sem Hjálmar þekkir.
’ Ég var búinn að vera þarna í tvo daga og var að horfa í kringum migá strákana í Áttunni og hugsaði innst inni, þetta gæti allt verið einnstór Áttu-hrekkur. Þetta væri það magnaðasta sem þeir hefðu gert, fá ein-hvern gaur til að halda að hann væri að leika í bíómynd, allt í gríni.
Ljósmynd/Brynja Kristinsdóttir
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018