Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Side 15
hann megi semja handrit byggt á týpunni
minni, Bjarna gröfumanni, en hann hafði séð
hann á snappinu. Ég sagði bara, já endilega, en
ég fæ fullt af svona fyrirspurnum en svo verð-
ur aldrei neitt úr neinu. En svo hringir hann í
mig og segir að allt sé komið á fullt, og spyr
hvort ég sé til í að lesa yfir handritið. Ég sagði
við konuna, það er bara komið handrit og allt
saman!“ segir Hjálmar. „En handritið er ekk-
ert beint byggt á Bjarna gröfumanni, heldur
bara notað smá úr týpunni. Þetta er mynd um
bankarán og í henni eru Nökkvi Fjalar, Egill
Ploder og Aron Mola, sem er stór snappari,
ásamt Ladda, Hilmi Snæ og Ólafíu Hrönn. Þá
sá ég að þetta yrði alveg geggjað,“ segir
Hjálmar.
„Það var strax ákveðið að ég ætti að leika í
myndinni, en kannski ekkert endilega aðal-
hlutverkið. En Anton hafði trú á mér og setti
mig í aðalhlutverkið, sem er rosaleg áhætta.
En þessi karakter stendur mér svo nálægt að
það var auðvelt fyrir mig að leika hann.“
Gæti verið stór hrekkur
Myndin var tekin upp á sautján dögum í sept-
ember í fyrra. „Ég er búinn að sjá hana, mér
finnst hún frábær. Ég er mjög ánægður með
hana, hún er kannski dálítið öðruvísi en aðrar
íslenskar myndir. Þetta er svona Sódóma,
Löggulíf og Dalalíf, hasar og grín.“
Hvernig var svo að leika í henni?
„Það var magnað. Ég var rosalega stress-
aður fyrsta daginn af því ég átti erfitt með að
muna línur. En Anton greip það strax og leyfði
mér bara að spinna. Það þurftu bara ákveðnir
hlutir að koma fram og svo fékk ég að spinna.“
Ég heyrði því fleygt að þú hefðir jafnvel
haldið í byrjun að þetta væri eitthvert grín hjá
Áttunni, að það væri í raun engin kvikmynd.
Er það satt?
„Algjörlega, þetta er góður punktur. Ég var
búinn að vera þarna í tvo daga og var að horfa í
kringum mig á strákana í Áttunni og hugsaði
innst inni, þetta gæti allt verið einn stór Áttu-
hrekkur. Þetta væri það magnaðasta sem þeir
hefðu gert, fá einhvern gaur til að halda að
hann væri að leika í bíómynd, allt í gríni. Láta
hann hafa handrit, fara á fundi og leika í tvo
daga eins og herforingi. En svo sá ég að það
var ekki grín,“ segir hann og hlær.
„En innst inni var alltaf smá efi, er kannski
bara verið að gera grín að mér? Því það er ekk-
ert rökrétt að ég ólærður 45 ára fari bara að
leika í bíómynd eftir að hafa verið á snappi.“
Gerðist eitthvað óvænt í tökunum?
„Já, í einu atriðinu kasta ég peningatösku til
Nökkva og hún fer beint í andlitið á honum,
sprengir vörina og hann steinliggur. Hann
vankaðist. Það fór allt í stress, búið að rota
Nökkva og vörin bólgnaði upp. Þetta riðlaði
aðeins skipulaginu af því hann þurfti að jafna
sig út af vörinni, vegna senanna,“ segir hann.
„Annars var þetta mikill fíflaskapur og mikið
hlegið.“
Fékk gott karma tilbaka
Hjálmar segir tökurnar hafa verið stífar en
mjög skemmtilegar. „Mér leiddist aldrei, þetta
var bara æði. Það er ótrúlegt hvað getur gerst í
lífinu.“
Já, þú hefur ekki búist við þessu!
„Nei, en veistu, það er stutt síðan ég tók þá
ákvörðun að vera jákvæður á samskipta-
miðlum og í lífinu almennt og mér finnst stund-
um eins og ég hafi hent út risastóru karma og
fengið rosalega gott karma til baka. Það er
enginn sem ég þekki sem hefur gengið illa að
vera aðeins of jákvæður. Það mun aldrei koma
sér illa að hrósa einhverjum,“ segir hann.
„Ég er jákvæður að eðlisfari. Ég er sann-
færður um það að ef þú ert almennilegur í líf-
inu, þá gerast góðir hlutir.“
Sérðu fyrir þér áframhaldandi vinnu við
kvikmyndaleik?
„Já, maður vonar það. Þetta er auðvitað ekki
stór markaður hér heima. Maður veit aldrei,
þetta líf er óútreiknanlegt. Ég er opinn fyrir
öllum tilboðum!“
„Hann er magnaður, og að leika á
móti honum var þvílíkur heiður.
Að vera kominn á þennan stað,
45 ára, með enga leiklistar-
menntun, og vera þarna. Að leika
á móti Ladda gerir mann betri
leikara,“ segir Hjálmar.
Ljósmynd/Anna Bender
25.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Með nýju Opn heyrnartækjunum verður auðveldara að taka þátt í samræðum í fjölmenni og
hljóðupplifun verður eðlilegri en nokkurn tímann fyrr. Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið
100 sinnum á sekúndu til að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig.
Þannig getur þú staðsett, fylgt eftir og einbeitt þér að þeim hljóðum sem þú vilt heyra.
Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin
Tímapantanir í síma 568 6880
www.heyrnartaekni.is