Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Side 22
MATUR Settu í blandara 2⁄3 bolla gríska jógúrt, 1 banana, 2⁄3 bolla frosinbláber, 2 frosin jarðarber, bolla af spínati, ½ bolla af mjólk, 2 tsk.prótínduft og 1 msk. hunang. Frábær heilsudrykkur á
morgunverðarborðið. Skammturinn dugar fyrir tvo.
Bröns-heilsudrykkur
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.2. 2018
Getty Images/iStockphoto
Sunnudagsbröns
Best í heimi er að vakna endurnærður á sunnudagsmorgni og henda
í bröns. Það er dýrmætt að eiga slíkar eðalstundir með fjölskyldunni
yfir unaðslegum mat og rjúkandi kaffi. Hér má líta nokkrar uppskriftir
sem munu slá í gegn og fá bragðlaukana til að dansa.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Það er auðvelt að búa til heilsu-
samlegan morgunverð með avó-
kadó. Þetta silkimjúka grænmeti fer
ákaflega vel saman með eggjum og
laxi til að mynda.
Ekki er verra að setja með smá
fetaost, kapers og kryddjurtir að
eigin vali. Hér er ein afar einföld
uppskrift sem hægt er að leika sér
með.
Fyrir 4
4 vænar súrdeigsbrauðsneiðar, ristaðar
4 egg, helst hleypt, en soðin eða spæld
gengur
2 góð avókadó
fjórar sneiðar reyktur lax (líka hægt að
nota afganga af elduðum laxi), má
sleppa
smá fetaostur, mulinn
salt og pipar
kryddjurtir, eins og steinselja eða kórí-
ander, eftir smekk
Byrjið á að hafa avókadó tilbúið og
laxinn skorinn. Til að hleypa egg er
best að setja ekki fleiri en tvö egg í
einu í pott. Hafðu eggin við stofu-
hita. Fyrst skal sjóða ca. einn lítra af
vatni með einni matskeið af ediki og
smá salti. Náðu suðunni upp,
slökktu svo og hrærðu í vatninu (í
hring) með skeið. Brjóttu eggin var-
lega út í og láttu þau vera í pottinum
í þrjár mínútur. Taktu þau varlega
upp úr með gataspaða. Á meðan
eggin eru að sjóða, ristið brauðið.
Setjið hálft avókadó á hverja
brauðsneið og merjið það ofan á.
Ofan á það geturðu sett laxasneið
(má sleppa) og mulinn fetaost. Þeg-
ar eggin eru tilbúin, taktu þau var-
lega upp úr og leggðu ofan á. Settu
ofan á þetta þær kryddjurtir sem
þér finnst góðar og smá ferskan pip-
ar. Þetta er bæði hollt og ákaflega
gott!
Avókadóbrauð með eggi
Fyrir 3
1 bolli mjólk
2⁄3 bolli hafrar
2⁄3 bolli hveiti
2 msk púðursykur
1½tsk lyftiduft
½ tsk salt
¼ tsk kanill
2 egg
2 tsk bráðið smjör
½ tsk vanilludropar
¼ bolli mjólk
2 tsk smjör
Setjið einn bolla mjólk í skál
og hitið í örbylgjuofni í u.þ.b.
2 mínútur, þar til fer að
sjóða. Takið út og hrærið
höfrum saman við.
Blandið hveiti, púðursykri,
lyftidufti, salti og kanil sam-
an í skál.
Í annarri skál, hrærið sam-
an tveimur eggjum, tveimur
teskeiðum af bræddu smjöri
og vanilludropum. Bætið ¼
bolla mjólk út í. Blandið
saman innihaldinu úr þess-
um skálum.
Hitið tvær teskeiðar af
smjöri á pönnu yfir miðl-
ungshita.
Hellið um 1⁄3 bolla af mixt-
úrunni á pönnuna til að fá
góða stærð af pönnuköku.
Eldið í nokkrar mínútur, eða
þar til loftbólur fara að
myndast. Snúið þá við og
eldið á hinni hliðinni þar til
pönnukakan er gullinbrún.
Berið fram með hverju
sem hugurinn girnist; t.d.
berjum, sultu, sírópi, smjöri,
hunangi eða bræddu súkku-
laði.
Haframjölspönnsur