Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Side 29
25.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
PLOVDIV, BÚLGARÍU
Rómantísk og
gömul borg
Borgin Plovdiv á sér langa sögu en
þar blandast saman líflegt næturlíf
og gamlar og aðlaðandi byggingar.
Þetta er næststærsta borgin í Búlg-
aríu, á eftir höfuðborginni Sofiu.
Plovdiv er jafnframt einhver elsta
borgin í Evrópu með óslitinni bú-
setusögu.
Maturinn þykir góður og er borg-
in kjörin fyrir rómantískt para-
ferðalag. Miðbærinn er heillandi
með þröngum götum en líkt og
Róm er Plovdiv byggð á sjö hæð-
um. Þarna er hægt að skoða marg-
ar rómverskar fornminjar, m.a.
hringleikahús og vatnsveitu.
Búist er við því að ferða-
mannastraumur þangað eigi eftir
að aukast því borgin verður ein af
menningarborgum Evrópu á næsta
ári.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 GMC Denali
Litur: Frost White, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
Nýr 2018 Denali (nýja útlitið). Vel útbúinn bíll
t.d. upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalara
kerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld
sæti og heithúðaður pallur. Z71 pakki, kúla í
palli (5th wheel pakki)og fleira.
VERÐ
10.490.000 m.vsk
2018 GMC Sierra SLT
Litur: Dark slate, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE
hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti
og heithúðaður pallur.
Öll standsetning innifalin í verði ásamt
ábyrgð og þjónustu.
VERÐ
9.590.000 m.vsk
2018 GMC Sierra SLT
Litur: Hvítur, svartur að innan.
6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ,
vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE
hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti
og heithúðaður pallur.
VERÐ
9.490.000 m.vsk
2017 RAM Limited
Litur: Dökk rauður / svartur að innan.
Einnig til hvítur og svartur.
6,7L Cummins,loftpúðafjöðrun, Aisin
sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld
sæti, hiti í stýri, sóllúga, RAMbox,
toppljós, heithúðaður pallur.
35“ dekk, LEDbar, húddhlíf og glug
gahlífar komið á, allt innifalið.
VERÐ
9.990.000 m.vsk
Valencia er þriðja stærsta borgin á
Spáni og vekur ekki eins mikla at-
hygli og höfuðborgin Madrid eða
Barcelona. Þrátt fyrir það þykir
Valencia vera lífleg borg með
skemmtilegu menningar- og næt-
urlífi.
Í ár eru tuttugu ár liðin frá því
að framúrstefnuleg miðstöð lista
og vísinda eftir Santiago Valatrava
var fullgerð. Svæðið hefur gert
mikið fyrir borgina en þar er með-
al annars að finna stærsta sæ-
dýrasafn Evrópu og óperuhús.
Ennfremur verður í ár haldið
upp á að 125 ár séu liðin frá fæð-
ingu listamannsins Joa Miró með
sýningu á nútímalistasafni borg-
arinnar. Sýningin stendur yfir frá
15. febrúar til 17. júní.
VALENCIA, SPÁNI
GettyImages/iStockphoto
Framúrstefnuleg miðstöð
lista og menningar
Malta er ein af menningarborgum Evrópu árið
2018 sem hefur komið henni rækilegar á kortið
um þessar mundir eftir stigvaxandi umtal síð-
ustu ár. Í tengslum við það verða haldnir um 140
viðburðir svo það verður óvenju margt um að
vera í borginni í ár. Á síðastliðnum áratug hefur
veitingastöðum og börum fjölgað og borgin er
lífleg eftir sólsetur. Náttúruleg höfn er við borg-
ina.
Einnig lokkar það ferðamennina að borginni
að þarna eru fleiri en 300 sólardagar á ári, nóg af
ströndum og heitum sjó þannig að gestir eiga
auðvelt með að smitast af afslöppuðum lífs-
stílnum.
Valletta er ennfremur á lista UNESCO en
borgin byggðist upp á sextándu öld og hafa
margar af þessum gömlu byggingum verið varð-
veittar. Þegar borgin var sett á minjaskrá var
henni lýst sem „einum af þeim stöðum í heim-
inum sem þar sem söguleg svæði eru hvað þétt-
ust“.
Nýtt nýlistasafn, Muza, hefur vakið athygli og
ennfremur hafa gömul hlið að borginni verið
gerð upp af hinum þekkta arkitekt Renzo Piano.
VALLETTA, MÖLTU
Sól og sögulegar
minjar
Bratislava er áhugaverður
áfangastaður en þessi höfuðborg
Slóvakíu liggur við árnar Dóná
og Morava. Þetta er ein af
minnstu höfuðborgum í Evrópu
en þarna búa um 450.000 manns
en engu að síður er þetta
stærsta borg landsins. Þetta er
jafnframt eina höfuðborgin sem
liggur að tveimur sjálfstæðum
ríkjum, Austurríki og Ungverja-
landi.
Á þessu ári halda Slóvakar upp
á að aldarfjórðungur er liðinn frá
því að Tékkóslóvakía var leyst
upp í kjölfar flauelsbyltingarinnar.
Allt árið 2018 verða haldnir ýms-
ir viðburðir og sýningar af þessu
tilefni sem endurspegla sögu
landsins.
Vinsælasti ferðamannastað-
urinn í borginni er kastalinn á
hæðinni fyrir ofan gamla bæinn
við Dóná. Frá apríl til september
á þessu ári stendur yfir sýning á
því hvernig Tékkóslóvakía varð
til. Fleiri sýningar eru haldnar í
ár þessu tengdar en hönn-
unarsafnið Slovak Design Centre
er til að mynda með sýningu á
arkitektúrnum sem einkenndi
landið á áttunda og níunda ára-
tug síðustu aldar.
BRATISLAVA, SLÓVAKÍU
GettyImages/iStockphoto
Aldarfjórð-
ungur frá
byltingu