Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Síða 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.02.2018, Síða 31
inga og menn ættu ekki að þurfa að óttast að vera flokkaðir sem andstæðingar fegurra jarðlífs og settir í svörtu tunnuna. En þessi hjarðhegðun hefur leitt til þess að t.d. ís- lenskur almenningur hefur aldrei verið settur inn í það um hvaða kosti sé að tefla. Honum hefur aldrei verið sagt hvað það myndi kosta hann að lagfæra þennan fjórðung sem „þjóðin“ hefur svikist um. Eða þá hvað það muni kosta að bæta 40 prósenta viðbót- arniðurskurði við, samkvæmt ráðstefnunni í París. Kommissarinn í útvarpinu virtist segja að þetta væri ekki eins óframkvæmanlegt og virtist. Þjóðin yrði bara að koma sér í strætó og þeir sem væru treg- astir í því efni yfir í rafmagnsbíl. En það má aldrei ræða upphátt um það hvað það kostar í mengun að gera rafhlöður í einn rafmagnsbíl og hvað það tekur þann bíl mörg ár að „borga fyrir þá losun alla“, fyrir utan heilsuspillandi þætti sem bitna á því fólki um veröldina sem lakast stendur. Trúum en spyrjum En eins og fyrr segir þá er enginn annar kostur til en sá að treysta því sem sagt er að sé niðurstaða þeirra vísindamanna sem taka megi mark á. En allt frá Kyoto og aðdraganda samþykkta þar hafa stjórnmálamenn átt næsta leik. Og reglurnar þeirra hafa svo sannarlega ekkert haft með vísindi að gera og það virðist hafa hentað vísindamönnunum að gera engar athugasemdir við það. Og því miður hafa íslenskir stjórnmálamenn, margir hverjir og jafnvel langflestir, látið meðhöndla sig eins og ómálga börn þegar þeir áttu að halda á hagsmunum Íslands af sömu festu og aðrir gerðu fyrir sitt fólk. Því það voru einkahagsmunir einstakra þjóða sem voru í fyrirrúmi þegar reglurnar voru settar, en ekki loftslagið, þótt það væri lofsungið og blessað. Það var ákveðið „að miða við árið 1990“. Það var gert vegna þess að kommúnisminn hafði hrunið. Um alla Austur-Evrópu og um öll hin víðfeðmu Sovétríki voru úreltar og ónýt- ar verksmiðjur sem áttu enga von í samkeppni við vestræn ríki eftir að allir múrar hrundu. Það lá fyrir að þær myndu stöðvast á örfáum árum. Það hafði ekkert með Kyoto-samkomulagið að gera. En þá tóku hagsmunir og sýndarskapur yfir og vísindasam- félagið sagði ekki orð. Þessu hruni skröltandi úrsérgenginna garma í verksmiðjulíki, sem lognuðust út af án þess að nokkur ákvörðun væri um það tekin, var færð mönnum sem góðverkagerningur í loftslagsmálum. Fjöldi þjóða þurfti því ekkert að aðhafast í raun vegna þess að þessi mengunartröll lokuðust sjálf- krafa þegar kommúnisminn varð bráðkvaddur. Og efnuð ríki gátu keypt sér verksmiðjur, sem var búið að loka og voru horfnar af yfirborði jarðar, með því að borga loftslagskvóta eins og rætt var um að við þyrft- um að gera fyrir níu milljarða, bara vegna gömlu skuldarinnar okkar frá Kyoto! Óviðkomandi úrlausnarefninu Ekert af þessu gerði loftslagsmálum neitt til góða, en var hægt að færa til bókar. Allir vita að flugvélar eru loftlagsvísindunum þungar í skauti. En ákveðið var að eingöngu vélar í millilandaflugi teldust menga. Næsti leikur var svo sá að ákveða að þar sem Evrópu- sambandið væri næstum því orðið eitt ríki, þá væri millilandaflug á milli t.d. Madrid og Berlínar í raun innanlandsflug og mengaði því ekki neitt. Enginn vís- indamaður sagði neitt. Fullyrðingar um að Íslendingar hafi fengið 10% af- slátt vegna fornrar frægðar eru sérkennilegar. Hefði heimurinn allur verið staddur þar í mengunarmálum sem þeir voru árið 1990 þá hefði ekki verið boðað til ráðstefnu í Kyoto eða flogið með 40.000 manns í viku- langt kokteilboð í París. Fljúgandi álver og bók um jökla Sagt var frá því nýlega að ferðamannabyltingin hér hefði leitt til þess að einungis íslensku flugfélögin „losuðu“ nú jafnmikið og þrjú íslensk álver! Allir muna eftir látunum út af einu álveri. En hefur ein- hver umræða farið fram um þessi þrjú fljúgandi ál- ver? Árið 2009 sendi Helgi Björnsson jöklafræðingur frá sér stórbrotna bók um jökla á Íslandi. Hann ræðir þar nokkuð um loftslagsmálin í víðu samhengi. Ekki eru hér tök á að vitna í nema brot af öllum þeim mikla fróðleik og reyndar ætíð varasamt að næla sér í brot úr miklu verki. Það skal engu að síður gert með þeim fyrirvara. Bókin nefnir marga fræðimenn til sög- unnar, þar á meðal serbneska fræðimanninn Mil- ankovitch sem taldi kalda vetur valda ísöldum, en aðrir hölluðust að því að hitastig að sumri réði mestu. Og svo er rakin aðkoma jarðfræðinga að þessum álitaefnum, en aldursgreiningar þeirra virtust falla vel að sjónarmiðum þeirra sem efuðust um kenningar Serbans. Svo segir: „En þá kom í ljós að aldursgrein- ingar jarðfræðinganna reyndust marklitlar (t.d. fann Tékki ryðgað reiðhjól í jarðlagi sem sagt var frá ís- öld).“ Bréfritari vogar sér ekki að setja fram þá kenn- ingu að þetta sanni að fyrir þúsundum ára hafi verið til framsýnir menn sem hafi ætlað að hafa áhrif á þró- un loftslagsmála með reiðhjólavæðingu. Helgi segir einnig: „Samkvæmt kenningum Mil- ankovitch er framundan röð 50 jökulskeiða sem standa munu um 100 þúsund ár áður en lát verður á. Kólna muni vegna vegna brautarlögunar og pólveltu, þótt möndulriða verki enn til hlýnunar. Saman muni þessir þættir valda því að hægt kólni og stefni í kulda- skeið eftir 10-15.000 ár og eftir 20-25 þúsund ár verði komið jökulskeið sem nái hámarki eftir 60 þúsund ár. Ekki verði umflúið að mannkyn þurfi að kljást við jökulskeið. Þá verða borgir á norðurhveli jarðar huld- ar ís, jafnaðar við jörðu og ýtt fram af jökli. Því fylgir fólksflótti til suðlægari slóða og hætt er við harðari lífsbaráttu og styrjöldum, að mannlíf verði aðeins sem skuggi af nútímamenningu. Því vaknar sú spurn- ing hvort mengun andrúmslofts geti til lengdar tafið fyrir kólnun jarðar og fagna beri hlýnun vegna auk- inna gróðurhúsaáhrifa. Reynslan af því hvernig skyndileg hlýnun á yngra Dryas-skeiði virðist hafa slökkt á færibandi varma til norðurslóða vekur hins vegar áhyggjur um að aukin gróðurhúsaáhrif geti flýtt fyrir kólnun. Stórfelld bráðnun jökla breyti seltu sjávar og legu strauma í Norður-Atlantshafi svo að kólni um allt norðurhvel; harðbýlla yrði við Norður- Atlantshaf, á Grænlandi, Íslandi, Bretlandseyjum og í Skandinavíu. Nú getum við ekki treyst á aukinn styrk sólgeislunar eins og var við upphaf nútíma. En um þetta er erfitt að spá, því vísindamenn skilja enn illa orsakir snöggra loftslagsbreytinga.“ Þarna er að vísu ekki tekið inn í dæmið fjölgun reið- hjóla, fleiri grænar tunnur og færri plastpokar. En það virðist samt sem eitt og annað lítilræði geti hugs- anlega skipt máli annað en það. Getur það verið? Hvers vegna höfum við ekkert heyrt um það? Hvers vegna? Morgunblaðið/RAX ’Fullyrðingar um að Íslendingar hafi feng-ið 10% afslátt vegna fornrar frægðar erusérkennilegar. Hefði heimurinn allur veriðstaddur þar í mengunarmálum sem þeir voru árið 1990 þá hefði ekki verið boðað til ráð- stefnu í Kyoto eða flogið með 40.000 manns í vikulangt kokteilboð í París. 25.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.