Morgunblaðið - 12.03.2018, Síða 1
M Á N U D A G U R 1 2. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 60. tölublað 106. árgangur
HVAÐ VARÐ UM
RÚÐÓTTU HANDA-
VINNUP0KANA?
MENNSKAN
Í MÁL-
VERKINU
SMÆÐIN
KREFST
ÚTRÁSAR
TATE-SAFNIÐ Í LONDON 29 ÍSLENSK TÓNLIST 26SKÓLAHANDAVINNA 12
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Meiriháttar ofbeldi meðal samfanga
í fangelsum ríkisins jókst milli ár-
anna 2016 og 2017, samkvæmt upp-
lýsingum frá Fangelsismálastofnun
ríkisins. Minniháttar ofbeldisbrotum
meðal samfanga fækkaði hins vegar
úr átta í sjö á tímabilinu. Tvö meiri-
háttar ofbeldisbrot gagnvart starfs-
fólki komu upp árið 2017. Páll Wink-
el fangelsismálastjóri segir að
ofbeldi sé alltaf litið alvarlegum aug-
um innan fangelsanna og að tekið sé
á því af mikilli festu. Fangar sem
verða uppvísir að slíkum brotum eru
úrskurðaðir í agaviðurlög í formi ein-
angrunarvistar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Suðurlandi komu færri
fíkniefnamál upp á Litla-Hrauni í
fyrra en áður. Lögreglan var sjö
sinnum kölluð til vegna fíkniefna-
mála í fangelsinu í fyrra, en til sam-
anburðar komu 22 fíkniefnamál á
borð lögreglunnar 2016.
Lögreglan slær samt varnagla við
þessum upplýsingum og segir að það
sé tilfinning sín að neysla og varsla á
lyfjum meðal fanga sé talsverð.
Ofbeldi meðal fanga eykst
Lögregla segir talsverða neyslu vera í fangelsum
Morgunblaðið/Júlíus
Afbrot Fangelsið á Litla-Hrauni
er stærsta fangelsi á Íslandi.MMeiriháttar ofbeldi »16
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann í Fossvogi klukk-
an 19 í gær með þrjá alvarlega slasaða eftir umferðarslys austan við
Kirkjubæjarklaustur síðdegis. Aðstæður á slysstað voru eins og best
verður á kosið, en útlit er fyrir að öðrum bílnum hafi verið ekið á
röngum vegarhelmingi. Alls hafa fimm látist í banaslysum það sem af
er ári. Hávær krafa er um úrbætur í vegamálum á Suðurlandi. »2
Þrír alvarlega slasaðir eftir árekstur við Klaustur
Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslands-
hótela, segir miklar launahækkanir óraunhæf-
ar í íslenskri ferðaþjónustu.
Skeið hægari vaxtar sé runnið upp í grein-
inni.
Tilefnið er meðal annars yfirlýsingar nýrra
verkalýðsforingja um að láglaunafólk hafi set-
ið eftir.
„Maður heyrir tóninn í nýja forystufólkinu.
Það á að beita öllum tiltækum ráðum til að ná
fram betri kjörum og hærri launum. Auðvitað
hefur maður áhyggjur af því ef langt verður
gengið í þessum efnum.“
Ólafur segir laun starfsmanna hafa hækkað
verulega hjá Íslandshótelum síðustu misseri.
Önnur hótel glími við sama vanda. Dæmi séu
um að hótelkeðjur á Íslandi hafi útvistað ræst-
ingu til að bregðast við auknum launakostnaði.
Íslandshótel hafi ekki gripið til slíkra ráða til
að draga úr kostnaði. »4
Ferðalangar Hægt hefur á vextinum.
Óraunhæfar
launakröfur
Mikil hætta er talin á snjóflóðum í fjalllendi á
utanverðum Tröllaskaga eftir talsverða snjó-
komu undanfarna daga. Veðurstofan uppfærði
í gær snjóflóðahættu úr appelsínugulri yfir í
rauða og segir Harpa Grímsdóttir, fagstjóri of-
anflóða hjá Veðurstofu Íslands, hættuna ekki
síst mikla í ljósi þess að um þessar mundir er
stunduð mikil útivist á svæðum þar sem mikil
hætta er á snjóflóðum.
Harpa segir að í vetur hafi verið þónokkuð
um snjóflóðahrinur á Tröllaskaga með þeim
afleiðingum að óvissustigi hafi verið lýst yfir
eða vegum lokað. Þá hafi aftur á móti ekki ver-
ið eins mikið um útivist á svæðinu. Flóðin geta
verið bæði af náttúru- eða mannavöldum og
brýnir hún fyrir fólki að fara varlega. »11
Mikil hætta á
útivistarsvæðum
Ekki fæst upp gefið hversu mörg at-
kvæði eru á bak við kjör Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur og Þorsteins
Víglundssonar í embætti formanns og
varaformanns Viðreisnar á landsþingi
flokksins um helgina. Greint var frá því
að Þorgerður hefði hlotið 95,3% atkvæða
og Þorsteinn 98,5% atkvæða. Þegar
Morgunblaðið óskaði eftir nánari upplýs-
ingum um kjörið sagði Ásdís Rafnar, for-
maður kjörstjórnar, að ákveðið hefði
verið að gefa ekki upp hversu mörg at-
kvæði voru greidd á fundinum eða
hversu margir sóttu hann. »10
Gefa ekki upp tölur
í formannskjöri