Morgunblaðið - 12.03.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Þrír voru fluttir alvarlega slasaðir á
Landspítalann í Fossvogi með þyrlu
Landhelgisgæslunnar eftir umferð-
arslys skammt austan við Kirkju-
bæjarklaustur síðdegis í gær.
Að sögn Odds Árnasonar, yfirlög-
regluþjóns á Suðurlandi, voru að-
stæður á slysstað góðar, þurr vegur
og bjart. „Það bendir allt til þess að
öðrum bílnum hafi verið ekið á röng-
um vegarhelmingi,“ sagði Oddur í
samtali við Morgunblaðið.
Svo heppilega vildi til að næsti bíll
við slysið var lögreglubíll. „Já, hann
veitti þessu fyrstur athygli. Það
flýtti fyrir öllu viðbragði að hafa fag-
mann á vettvangi sem gat metið
hver þörfin var,“ segir Oddur.
Tilkynnt var um slysið klukkan
16.10. Í fyrstu var ákveðið að senda
tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar á
slysstað. Önnur þyrlan var aftur-
kölluð skömmu síðar þegar í ljós
kom að hægt væri að flytja þá slös-
uðu með einni þyrlu til Reykjavíkur.
Þyrlan lenti við Landspítalann í
Fossvogi klukkan 19 í gær.
Suðurlandsvegur var lokaður í
rúma fjóra klukkutíma við Iðjuvelli í
kjölfar slyssins meðan unnið var að
rannsókn þess og bílarnir tveir fjar-
lægðir. Ekki var unnt að aka um
neina hjáleið og því mynduðust
nokkurra kílómetra langar biðraðir.
Lögregla stýrði umferð fyrst um
sinn eftir að vegurinn var opnaður,
til að greiða úr flækjunum.
Úrbóta á vegum þörf
Fimm hafa látist í umferðarslys-
um það sem af er ári og reglulega er
greint frá alvarlegum slysum. Alls
létust 16 í 13 banaslysum í umferð-
inni í fyrra en alvarleg umferðarslys
voru 156 það árið, samkvæmt tölum
Umferðarstofu. 189 slösuðust alvar-
lega í umferðinni.
Fyrir skemmstu var stofnað fé-
lagið „Vinir vegfarandans“ um bætt
umferðaröryggi í Mýrdalnum. Mikil
umferð er þar um slóðir og slys tíð,
eins og sést á slysinu í gær og rútu-
slysinu í lok síðasta árs. Bryndís
Harðardóttir, sem situr í stjórn fé-
lagsins, segir að litlar úrbætur hafi
verið gerðar á vegum á svæðinu.
„Þessir vegir voru allir byggðir á
milli 1970 og 1980. Þá var gert ráð
fyrir 50-100 bílum á sólarhring. Nú
fara 1.500 bílar yfir sandinn á dag
og 2.200-2.600 yfir Reynisfjall. Þar
fyrir utan eru þessir vegir ekki með
löglega breidd, þetta eru þriggja
metra vegir en eiga að vera 3,5
metrar. Það vantar metra í það
heila, hvíta línan er bara í mölinni.
Þetta stenst auðvitað enga staðla,“
segir hún.
Bryndís telur ástandið mikið
áhyggjuefni. „Já, umferðin í dag er
eins og rússnesk rúlletta. Maður er
alltaf feginn þegar maður er kominn
heim.“
Sá sem olli slysinu ók á
röngum vegarhelmingi
Lögreglubíll næsti bíll við alvarlegt umferðarslys austan Kirkjubæjarklausturs
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Ljót aðkoma Þrír slösuðust alvarlega þegar tveir bílar rákust saman við Kirkjubæjarklaustur í gær. Suðurlandsvegur var lokaður í rúma fjóra tíma á eftir.
Guðni Th. Jó-
hannesson, for-
seti Íslands, hef-
ur boðið Mar-
gréti Þórhildi
Danadrottningu
að vera við ald-
arafmæli full-
veldis Íslands
hinn 1. desember
nk.
Þetta staðfesti
Örnólfur Thorsson forsetaritari í
samtali við Morgunblaðið.
Hinn 1. desember næstkomandi
verða 100 ár liðin frá því að Ísland
fékk fullveldi, árið 1918. Afi Mar-
grétar Þórhildar, Kristján 10., var
konungur á þeim tíma.
Þá verður hátíðarþingfundur á
Þingvöllum 18. júlí næstkomandi
þegar 100 ár verða liðin frá und-
irritun sáttmála um fullveldi og
verða þar einnig viðstaddir erlend-
ir gestir.
Drottningu
boðið í ald-
arafmæli
Margrét
Þórhildur
Hörð barátta er á meðal efstu
manna á Reykjavíkurskákmótinu,
en sex skákmenn eru jafnir að vinn-
ingum með fimm vinninga hver eft-
ir sex umferðir. Alls verða tefldar
níu umferðir og lýkur mótinu á
miðvikudag.
Fyrir sjöttu umferðina, sem tefld
var í gær, voru þrír skákmenn með
forystu, hver með fjóra og hálfan
vinning. Þeir Aleksandr Lender-
man og Yilmaz Mustafa, sem báðir
voru með fjóra og hálfan vinning
fyrir umferðina, gerðu jafntefli á
fyrsta borði og indverska undra-
barnið Nihal Sarin, sem sömuleiðis
hafði fjóra og hálfan vinning fyrir
umferðina, gerði jafntefli við Gata
Kamsky.
Á sama tíma tókst stigahæsta
manni mótsins að sigra í sinni skák
sem og Baskaran Adhiban, sem
vann sigur á Alejandro Ramirez.
Sömu sögu er að segja af hinum
unga Maxime Lagarde frá Frakk-
landi sem er í hópi þeirra efstu.
Hannes Hlífar Stefánsson er efst-
ur Íslendinga með fjóra og hálfan
vinning. Jóhann Hjartarson og
Þröstur Þórhallsson eru með fjóra
vinninga hvor. ash@mbl.is
Sex jafnir
eftir sex
umferðir
Hannes Hlífar
efstur Íslendinga
Ljósmynd/Reykjavíkurskákmótið
Skák Richard Rapport er stiga-
hæstur keppenda með 2.715 stig.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Íslenski matvælaframleiðandinn
ORA á bestu smásöluvöru ársins, en
verðlaunin voru veitt í gær á sjávar-
útvegssýningunni í Boston í Banda-
ríkjunum. Verðlaunin voru veitt fyr-
ir „Creamy masago bites“, rétt sem
samanstendur af þremur vörum;
masago, sem unnið er úr íslenskum
loðnuhrognum, laxamús úr íslensk-
um eldislaxi, og sesam-brauðkexi.
Rétturinn er einn af fjórum for-
réttum sem ORA markaðssetur fyr-
ir Ameríkumarkað og hluta af Evr-
ópu undir vörumerkinu Iceland’s
finest.
„Réttirnir eru nánast tilbúnir í
pakkningunum og krefjast sáraein-
faldrar eldamennsku og fárra mín-
útna,“ segir Jóhannes Egilsson, út-
flutningsstjóri ORA, en fyrirkomu-
lagið er ekkert ósvipað réttum frá
t.d. Eldum rétt og Einn, tveir og
elda. Verðið verður í kringum 20
Bandaríkjadollara á hverja pakkn-
ingu sem dugir fyrir fjóra.
„Svona verðlaun hjálpa mikið í
kynningarstarfi og veita okkur
aukna athygli,“ segir Jóhannes en
verið er að frumsýna réttina í
Bandaríkjunum á sjávarútvegssýn-
ingunni, en áður höfðu þeir verið í
takmarkaðri sölu á Keflavíkur-
flugvelli. „Þetta leggst mjög vel í
mannskapinn og við erum að fá mjög
góð viðbrögð, það er mikill erill á
básnum hjá okkur og margir sem
sýna þessu áhuga.“
Yfir 100 vörur komu til greina
Á annað hundrað vörur fóru fyrir
dómnefnd sem valdi úr þeim tólf
vörur sem voru tilnefndar. „Þetta er
mikil viðurkenning, til að setja þetta
í eitthvert samhengi þá vann Thai
Union í hinum flokknum, flokki veit-
ingaþjónustu, en Thai Union er ein-
hver stærsti framleiðandi á fiski í
heiminum,“ segir Jóhannes.
Sjávarútvegssýningin í Boston er
stærsta sjávarútvegssýning í Norð-
ur-Ameríku en þangað koma mörg
þúsund kaupendur og framleiðendur
alls staðar að úr heiminum til að
kynna vörur sínar eða kynnast því
nýjasta í sjávarafurðum. Jóhannes
segir að stefnan sé einnig sett á sjáv-
arútvegssýninguna í Brussel í Belg-
íu í lok næsta mánaðar til að kynna
vöruna á Evrópumarkaði.
ORA-rétturinn skaraði fram úr
ORA vinnur til verðlauna fyrir forrétt sem er í nýrri vörulínu fyrir erlenda
markaði Verðlaunin veitt á stærstu sjávarútvegssýningu í Norður-Ameríku
Útrás Jóhannes Egilsson, útflutningsstjóri ORA, er ákaflega ánægður með
verðlaunin. Segir hann þau hjálpa til við kynningarstarfið framundan.