Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 1

Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 1
Kosningalöggjöf Starfsmaður Alþingis gengur framhjá sjónvarpsskjá sem sýnir frá ágreiningi í þingsal um lækkun kosningaaldurs. Þriðju umræðu um frumvarpið var frestað fram yfir páska. Hluti þingmanna var sakaður um málþóf til að tefja fyrir málinu. Um tveir mánuðir eru til sveitarstjórnarkosninga. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, telur mikilvægt að þingið hlusti á viðvörunarorð sér- fróðra aðila áður en lög um lækkun kosningaaldurs til sveitarstjórnar- kosninga verði samþykkt. Vísar hann bæði til viðvörunarorða dómsmálaráðuneytisins sem birtust í umsögn með frumvarpinu og bókunar stjórnar Sambands íslenskra sveitar- félaga. Dómsmálaráðuneytið sagði grundvallarbreytingar sem þessar auka hættuna á að mistök yrðu við framkvæmd kosninganna. Þriðju umræðu um frumvarpið var frestað í gærkvöldi og er þingið komið í páskafrí. Nokkrir þingmenn sem hafa lýst sig andvíga frumvarpinu voru í gærkvöldi gagnrýndir fyrir málþóf og sakaðir um að hindra að vilji þingsins næði fram að ganga. Kosningalög óbreytt um sinn  Fylgismenn 16 ára kosningaaldurs í sveitarstjórnarkosningum segja málþófi hafa verið beitt  Brýnt að hlusta á viðvörunarorð, segir Óli Björn Kárason MÓvíst um lækkun … »6 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Breyttur kosningaaldur » Frumvarpið er statt í þriðju og síðustu umræðu. » Dómsmálaráðuneytið og sveitarfélögin hafa áhyggjur af breytingum svo skömmu fyrir kosningar sem verða 26. maí. Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, sagði málþófið vonbrigði þar sem skýrt hefði komið fram í ann- arri umræðu að frumvarpið nyti yf- irburðastuðnings. Óli Björn segir að mál sem þetta verði að afgreiða með góðum fyrir- vara, minnst ári fyrir kosningar, og í góðri sátt innan þingsins og þjóð- félagsins. Allt of margirb Bach erbestur fyrirrokkara 25. MARS 2018SUNNUDAGUR Ólíkar mæðgur Þorvaldur Bjarnistendur aðflutningi áMatteusarpunni eftir Bbæði norðaheiða og fyrsunnan umpáskana 2 Goðsögnin ogynbomban JayneMansfield varmóðir leikkonunnarMarisku Hargitay,em hefur ávallt áttrfitt með að ræðam móður sína 20 k u assí- ac n i s e Leikið áslóðum orrustuAnnar leikur íslenska liðsins á HM ferfram í hinni sögufrægu borg Volgograd 28 L A U G A R D A G U R 2 4. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  71. tölublað  106. árgangur  TVÆR NÝJAR SÝNINGAR Í HAFNARBORG HJÁLPAR BÖRNUNUM ÍSLENSKA BARNAHJÁLPIN 12-13JÓHANNA OG JÓN AXEL 46 AFP Foringi Terras ávarpar eistneska herinn.  Aukin hernaðarumsvif Rússa nærri landamærum ríkja sem liggja að Rússlandi í vestri þýða að Eistar efla nú varnir sínar. Styrkurinn liggur í gegnum aðild að Atlants- hafsbandalaginu, sem veitir örygg- iskennd, segir Ritos Terras, yfir- maður eistneska hersins, í viðtali við Morgunblaðið. Sá herafli Rússa sem nú er við landamærin að Eistlandi og Lett- landi telur 76 þúsund hermenn en þeir voru 41 þúsund fyrir sex árum. Á síðasta ári stóðu Rússar svo fyrir 100 þúsund manna heræfingu við landamærin að öllum ríkjum NATO sem liggja að Rússlandi í vestri. Ber þetta, að mati Terras, að skoðast í því ljósi að Pútín Rússlandsforseti sé tækifærissinni sem sæti lagi að reka fleyg í samstöðu NATO- ríkjanna. »18 Eistar efla varnir vegna Rússanna Morgunblaðið/Hari Læknir Steinunn gagnrýnir aðbúnað alzheimersjúklinga. „Það slær mann hversu lítinn stuðn- ing kerfið býður fólki, það er óhóflega löng bið í öll úrræði og margir að- standendur eru búnir á sál og líkama þegar þeir fá loksins aðstoð. Ég hef séð allt of marga brotna algjörlega niður og gráta vegna aðstæðnanna sem þeir eru í,“ segir Steinunn Þórð- ardóttir, lyf- og öldrunarlæknir, í við- tali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um ástandið í málefnum fólks með heilabilun Milli 2000 og 2015 fjölgaði þeim sem létust úr hjartasjúkdómum um 11 prósent í Bandaríkjunum. Þeim sem létust úr Alzheimer fjölgaði um heil 123 prósent. Steinunn segir að þessar megi tölur megi yfirfæra á Ís- land en hún segir það afar gagnrýni- vert að hérlendis hafi stjórnvöld ekki mótað neina stefnu í málefnum fólks með heilabilunarsjúkdóma. „Það er enginn að kortleggja þetta, enginn að gera áætlanir fram í tím- ann. Frá því að ég hóf störf á Íslandi, 2014, hefur breytingin aðeins verið til hins verra. Þetta er ekki lengur spurning um einhverjar framtíðar- spár, hvort þessum sjúklingum fjölg- ar, þetta er löngu byrjað að gerast.“ Tvöföldun og engin stefna  Einstaklingum með heilabilun fjölgar um 123% á 15 árum  Aðstandendur eru orðnir örmagna vegna úrræðaleysis  Hælisleit- endum frá Makedóníu og Georgíu, lönd- um sem flestir voru frá sem óskuðu hælis á Íslandi í fyrra og hittifyrra, fækkar. Á tveimur fyrstu mánuðunum í ár voru umsóknir um hæli 95. Flestar voru frá Írökum, samtals 16, og 13 frá Albönum. Eitt fylgdarlaust ung- menni kom á tímabilinu, drengur frá Sómalíu. »18 Flestir hælisleit- endur nú frá Írak Hælisleitendur Móðir og barn Nýir og uppfærðir útreikningar hag- deildar ASÍ á þróun skattbyrði ein- staklinga eftir tekjuhópum milli ár- anna 2016 og 2017 leiðir í ljós að skattbyrði lægstu launa hélt áfram að aukast í fyrra en þessu var öfugt farið hjá tekjuhæsta hópnum. ASÍ birti sl. sumar skýrslu um skattbyrði á tímabilinu frá 1998 til 2016. Á minnisblaði sem hagdeildin hefur nýlega tekið saman um upp- færða útreikninga á þróuninni fram á seinasta ár segir að aukin skatt- byrði lægstu launa haldi áfram að vinna gegn árangri kjarasamninga. „Meginniðurstaðan um þróun á skattbyrði milli áranna 2016 og 2017 er sú að skattbyrði á lægri tekjur heldur áfram að aukast, einkum vegna minni stuðnings úr vaxtabóta- kerfinu og misræmis í þróun per- sónuafsláttar og launaþróunar. Þannig heldur aukin skattbyrði lægri launa áfram að vinna gegn árangri í kjarasamningum þar sem kaupmáttur lægstu launa jókst um ríflega 6% milli ára en að teknu tilliti til skattbyrði lægstu launa jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna ein- ungis um 1,5%.“ »15 Skattbyrði lægstu launa þyngdist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.