Morgunblaðið - 24.03.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Ætla má að hátt í 150 þúsund
manns eigi reglulega kost á að
borða í mötuneytum á vegum hins
opinbera. Ef miðað er við að tveir
þriðju þeirra noti fríðindin borða
um 100 þúsund manns í opinberum
mötuneytum.
Þessar upplýsingar koma fram í
greinargerð með tillögu Þórunnar
Egilsdóttur og þriggja annarra
þingkvenna Framsóknarflokksins
til þingsályktunar um vistvæn
opinber innkaup á matvöru. Sam-
kvæmt greinargerðinni er átt við
mötuneyti á vegum stofnana ríkis
og sveitarfélaga því upp eru taldir
nemendur, starfsfólk hjá hinu
opinbera, vistmenn á dvalar- og
öldrunarheimilum og fleiri.
Tillit til umhverfissjónarmiða
Annars gengur tillagan út á það
að fela fjármála- og efnahagsráð-
herra að vinna frumvarp um að
ávallt skuli tekið tillit til umhverf-
issjónarmiða og dýravelferðar við
opinber innkaup á matvöru.
Eitt af hliðarmarkmiðum tillög-
unnar, að því er fram kom í fram-
söguræðu flutningsmanns, er að
styrkja innlenda matvælafram-
leiðslu. Ekki liggur fyrir hversu
stór hluti hráefnis matar í mötu-
neytum ráðuneyta er innlendur, að
því er fram kemur í skriflegum
svörum tveggja ráðuneyta við fyr-
irspurn Þórarins Inga Pétursson-
ar, varaþingmanns Framsóknar-
flokksins. Utanríkisráðuneytið
segir þó í sínu svari að ávallt sé
leitast við að nota það íslenska
hráefni sem í boði er hverju sinni.
Þannig sé allur fiskur íslenskur,
megnið af kjöti og stærstur hluti
af grænmetinu.
helgi@mbl.is
100 þúsund manns borða
í opinberum mötuneytum
Morgunblaðið/Eggert
Matur Margir borða í mötuneytum
sem ríki og sveitarfélög reka.
Vilja auka hlut
innlends hráefnis
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi ráðherra og
bankastjóri, var jarðsunginn frá Dómirkjunni í
gær. Líkmenn voru tengdabörn og barnabörn
og eru í fremri röð talið frá vinstri: Tryggvi
Páll Kristjánsson, Guðni A. Jóhannesson, Sverr-
ir Karl Matthíasson og Hanna Katrín Frið-
riksson og í aftari röð Ragnar Pétur Krist-
jánsson, Matthías Sveinsson, Sverrir Páll
Guðnason og Kristján Sævald Pétursson. Prest-
arnir Magnús Erlingsson og Grétar Halldór
Gunnarsson, báðir frændur hins látna, önnuðust
athöfnina. Organisti var Gunnar Gunnarsson,
Hjörleifur Valsson lék á fiðlu, Voces Masculor-
um söng og einsöngvari var Gissur Páll Giss-
urarson.
Morgunblaðið/Hari
Útför Sverris Hermannssonar, fyrrverandi ráðherra
Matvælastofnun telur að ekki hafi
verið hægt að koma í veg fyrir það
tjón sem varð í sjókvíum Arnarlax í
Arnarfirði og Tálknafirði í síðasta
mánuði og að viðbrögð hafi verið við
hæfi, miðað við aðstæður. Kemur
þetta fram í tilkynningu stofnunar-
innar sem grundvallast á eftirliti í
starfsstöðvum fyrirtækisins í lok
febrúar.
Tjón varð á tveimur sjókvíum
Arnarlax í óveðri 11. febrúar. Mat-
vælastofnun telur að Arnarlax hafi
brugðist rétt við tjóninu með því að
setja af stað verkferla til að koma í
veg fyrir slysasleppingu og tilkynna
tjónið til Matvælastofnunar og fram-
leiðanda búnaðarins.
Mikil afföll urðu á laxi þegar hann
var fluttur úr laskaðri sjókví í Arnar-
firði. Krufning á dauðum fiski leiddi í
ljós einkenni sem benda til blóðeitr-
unar af völdum sárasýkinga. Mat-
vælastofnun segir að við flutninginn
hafi fiskurinn skaddast á roði, sporði
og uggum og orðið berskjaldaður
fyrir sýklum. Við lágan sjávarhita
versni slíkar sýkingar. Afföll í um-
ræddri kví voru í upphafi liðlega 53
þúsund laxar af rúmlega 194 þúsund
fiskum sem í kvínni voru en enn eru
fiskar að drepast í stórum stíl og um-
fang tjónsins verður ekki ljóst fyrr
en eftir nokkra mánuði. helgi@mbl.is
Arnarlax
brást rétt
við tjóni
Enn drepast
laxar í stórum stíl
„Það hefur reynst erfitt að finna
húsnæði. Húsnæðismarkaðurinn er
eins og allir vita og því höfum við
reynt að þrýsta á bæjaryfirvöld um
að útvega okkur húsnæði. Það hefur
ekki gengið ennþá þótt þeim lítist
vel á þetta verkefni,“ segir Hörður
Sturluson, verkefnastjóri hjá Rauða
krossinum í Hafnarfirði og Garða-
bæ.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í byrjun árs hefur verið sett
á fót verkefnið Karlar í skúrum.
Það er að erlendri fyrirmynd og
snýst um að veita eldri mönnum
tækifæri til að sinna hugðarefnum
sínum og um leið að koma í veg fyr-
ir félagslega einangrun. Aðstand-
endur hafa verið í samstarfi við
írsku samtökin Men’s Sheds en þau
hafa opnað 450 skúra fyrir félags-
menn sína á þeim tíu árum sem lið-
in eru síðan samtökin voru stofnuð.
„Það er kominn 20 manna hópur
sem hefur byggst upp frá því í jan-
úar. Við hittumst annað slagið þótt
þetta sé ekki einu sinni komið af
stað,“ segir Hörður.
Hörður hefur óskað eftir því við
bæjaryfirvöld í Hafnarfirði að fá af-
not af gamla leikskólanum Kató
sem er við hlið St. Jósefsspítala.
„Karlar í skúrum hefur verið nefnt
sem tilvalið verkefni til þess að
koma inn í Lífsgæðasetrið sem
verður á St. Jósefsspítala en það
eru að minnsta kosti sex mánuðir
þar til það fer af stað. Verkefnið
vantar húsnæði sem fyrst og jafnvel
þótt það væri ekki nema tímabund-
ið í 6-12 mánuði þá myndi það
skipta sköpum,“ segir í bréfi hans
til bæjaryfirvalda.
„Ég hef farið tvisvar og hitt bæj-
arstjórann í Hafnarfirði og átt einn
fund með bæjarlögmanni Garða-
bæjar. Enn sem komið er hefur
ekkert gerst.“ hdm@mbl.is
Engan skúr að fá fyrir karla
20 meðlimir í Körlum í skúrum á höttunum eftir húsnæði
Leita ásjár bæjaryfirvalda í Hafnarfirði og Garðabæ
Í biðstöðu 20 karlar leita að húsi
til að sinna hugðarefnum sínum.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum og oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í komandi sveitarstjórnar-
kosningum í vor, segir að það sé
erfitt fyrir sig að tjá sig um hvað hafi
falist í fundi hóps óánægðra sjálf-
stæðismanna í Eyjum í fyrrakvöld,
sem greint var frá í frétt í Morgun-
blaðinu í gær.
Aðspurður hvort hann telji að í
undirbúningi sé sérframboð
óánægðra sjálfstæðismanna í Vest-
mannaeyjum segir Elliði: „Það kann
að vera. Ég þekki ekki neinar for-
sendur og veit ekkert hverjir voru á
þessum fundi og því kannski ekki við
hæfi að ég sé að tjá mig um óorðin
eða möguleg framboð.“
Elliði kveðst ekki vita til þess að
neinn bæjarfulltrúi eða varabæjar-
fulltrúi hafi verið á fundinum. „Ég er
ekki viss um að neinn nefndarmaður
okkar hafi verið þarna eða nokkur úr
stjórn fulltrúaráðs. Það kusu okkur
75% seinast, þannig að væntanlega
hafa einhverjir þeirra verið þarna,
en satt best að segja veit ég ekki út á
hvaða málefni þetta gengur hjá þess-
um hópi. Hvað mig varðar er ýmis-
legt sem ég vil sjá breytast í sam-
félagi okkar og þess vegna gef ég
kost á mér í framboð fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn,“ sagði Elliði.
Óánægjufram-
boð í Eyjum?
Elliði kveðst ekki vita hver séu mál-
efni hugsanlegs nýs framboðs í Eyjum