Morgunblaðið - 24.03.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.03.2018, Qupperneq 20
SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Afkomendur Ditlevs Thomsen kaup- manns og ræðismanns, sem sam- nefnt verslunarveldi í Reykjavík um og upp úr aldamótunum 1900 var kennt við, komu hingað til lands í síð- ustu viku í tilefni af vígslu hins nýja Reykjavík Konsúlat-hótels við Hafn- arstræti. Það er í eigu Icelandair hót- ela en jafnframt hluti af alþjóðlegri hótelkeðju, Curio Collection, sem leggur áherslu á sögulegar skírskot- anir gistihúsa. Ditlev Thomsen var frumkvöðull í verslun og innflutningi á 19. öld og settu hann og fjölskylda hans svip á bæinn um árabil. Faðir hans, H. Th. A. Thomsen og afi hans og nafni Ditlev Thomsen höfðu áður verið umsvifamiklir í verslunar- rekstri hér. Konsúlat-nafnið á hót- elinu er dregið af því að Ditlev yngri var konsúll, ræðismaður, fyrir Þýskaland með aðsetur á sama stað og nýja hótelið. Hlutverk konsúls var meðal annars að taka á móti erlend- um gestum, Þjóðverjum sem öðrum, en ekki síst gestum á vegum Dana- konungs. Innan hótelsins er sögu Thomsen-verslunarveldisins haldið á lofti ýmsum öðrum hætti, m.a. ljós- myndum frá fyrri tíð. Íslensk í aðra ætt Ditlev Thomsen yngri var kvænt- ur Ágústu, dóttur Hallgríms Sveins- sonar biskups, og afkomendurnir því með íslenskt blóð í æðum sínum. Þeir hafa lagt mikla rækt við sögu fjöl- skyldunnar hér á landi og fögnuðu því tækifærinu til að koma hingað í boði Icelandair hótelanna. Ljós- myndin var tekin í boði sem þeim var haldið. Ditlev Thomsen yngri átti tvo syni, Knút Kjartan, sem var barnlaus, og Hallgrím August, f. 1899, sem eign- aðist þrjú börn, Bjørn, Ninnu og Steen. Það voru þau sem komu hing- að í vikunni með maka sína, börn og barnabörn. Systkinin, sem öll eru fædd og búsett í Danmörku, eru hætt störfum vegna aldurs, en Bjørn starfaði sem arkitekt, Ninna sem kennari og Steen sem tölvunarfræð- ingur. Rækt við söguna Steen hefur rannsakað sögu for- feðra sinna hér á landi og birti greinaflokk um Thomsen-verslunina hér í blaðinu haustið 1988. Þá er ekki langt síðan að hann dró fram úr stóru skjalasafni fjölskyldunnar frásögn um fyrstu langferð bifreiðar á Íslandi sumarið 1904, en sú ferð var farin til Stokkseyrar og Eyrarbakka. Birtist frásögnin í Morgunblaðinu snemma árs 2014. Ditlev yngri, afi Steens, flutti til landsins fyrstu bifreiðina, sem var af Cudell-gerð, og naut til þess styrks frá Alþingi. Hér voru þá aðeins vegleysur og varð þessi fyrsta tilraun til bifreiðareksturs því skammvinn. Ditlev Thomsen eldri hóf versl- unarrekstur við Lækjartorg í Reykjavík 1837. Hann kom upp- haflega til landsins 1826 sem búð- arsveinn og vann fyrst í danskri verslun í Hafnarfirði. Hann gerði sig fljótt gildandi í bænum og var m.a. kosinn í bæjarstjórn. Hann drukkn- aði 1857 þegar skipið Søløven fórst við strendur Íslands. Þá tók við versluninni 23 ára gamall sonur hans, Hans Theodor August Thom- sen. Hann talaði og skrifaði íslensku og bjó hér á landi um árabil og hafði því rammari taugar til lands og þjóð- ar en flestir aðrir danskir Íslands- kaupmenn. Honum tókst að gera mikið veldi úr verslun föður síns og byggði fjölmörg verslunar- og pakk- hús við Hafnarstræti auk íbúðarhúss fjölskyldunnar. Hann lét fé af hendi rakna til margvíslegra framfara- og mannúðarmála og naut mikilla vin- sælda í bænum. Glæstasta tímabil Thomsen- verslunarinnar í Reykjavík hófst þegar Ditlev yngri tók við rekstr- inum eftir andlát föður síns 1899. Reksturinn var þá stórlega aukinn og nafninu breytt í Thomsens Mag- asín eftir fyrirmynd frá Magasin du Nord í Kaupmannahöfn. Fjölmörg hús við austanvert Hafnarstræti, í Kolasundi og við Lækjartorg voru keypt til viðbótar þeim sem verslunin átti fyrir, og rekstrinum skipt upp í sjálfstæðar og sérhæfðar deildir auk þess sem iðnaður og handverk voru sett á fót og margs konar þjónusta veitt. Í söguágripi Guðjóns Friðriks- sonar segir að Thomsens Magasín hafi verið í fararbroddi verslunar í Reykjavík á miklum uppgangstímum í sögu bæjarins. Vöruúrval í versl- ununum hafi þá verið eins og best gerðist erlendis enda lítið um tolla og höft. Leggja rækt við glæsta sögu  Afkomendur Ditlevs Thomsen í Danmörku minntust verslunarveldis hans í Íslandsheimsókn  Nýja Reykjavík Konsúlat-hótelið í Hafnarstræti heldur sögu Thomsens Magasíns á lofti Morgunblaðið/Árni Sæberg Íslandsheimsókn F.v. Nynne Isager Henriksen, eiginkona Ulfs Thomsen, Anka N. Isager, 4 ára sonur Ulfs og Nynne, Hannah Isager, 11 ára dóttir þeirra; Ulf Isager, sonur Bjørns Thomsen og Henriette; Henriette, eiginkona Bjørns Thomsen; Jon Thomsen, sonur Bjørns og Henriette; Sofie Husby Pedersen, eiginkona Jons Thomsen; og barnabörn Ditlevs Thomsen kaupmanns: Steen Thomsen, fyrrverandi tölvunarfræðingur, Ninna Thomsen, fyrrverandi kenn- ari, og Bjørn Thomsen, fyrrverandi arkitekt, ásamt Mira Thomsen, 2 ára dóttur Jons og Sofie. Ljósmynd/Úr myndasafni Reykjavík Konsúlat-hótels Verslun Thomsens Magasín með hinum mörgu verslunarhúsum sínum setti mikinn svip á Reykjavík um og upp úr aldamótunum 1900. Ljósmynd/Úr myndasafni Reykjavík Konsúlat-hótels Hjónin Ditlev Thomsen yngri kaupmaður með Ágústu konu sinni á virðu- legu og vel búnu heimili þeirra í Reykjavík um aldamótin 1900. 20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Þvottadagar WW70vottavélKG. 1400 SN. co Bubble olalaus mótor. erð nú 59.900,- V70M urrkari A++ KG. barkarlaus urrkari. armadæla í stað ments. erð nú 76.900,- TM 59.90 0,- Væntanleg ur URRKARI 6DBM720G ekur 7 kg af þvotti. ður: 99.900,- Nú: ,- 16097949 15% ÞVottAVél L6FBE720I Tekur 7 kg af þvotti. 1200 snúningar. Öll hugsanleg þvottakerfi. Íslensk notendahandbók. Verð áður: 89.900,- 914913404 15% Lágmúla 8 - Sími 530 2800Umboðsmenn um allt land - Ormsson.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.