Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 24
24 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 FERMING 2018 FERÐATÖSKURNAR FRÁ HERSCHEL ERU VINSÆLAR FERMINGARGJAFIR Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Suður-Kóreu og Japan hafa áhyggjur af þeirri ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að velja John Bolton sem þjóðar- öryggisráðgjafa sinn vegna stuðn- ings hans við hernaðaraðgerðir í Norður-Kóreu til að fyrirbyggja að einræðisstjórnin þar geti ógnað Bandaríkjunum með kjarnavopnum. Trump hefur tilkynnt að John Bolton, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, taki við embætti þjóðar- öryggisráðgjafa af HR McMaster. Bolton var á meðal helstu stuðn- ingsmanna hernaðarins í Írak árið 2003 vegna meintra gereyðingar- vopna einræðisstjórnar Saddams Husseins og hefur varið þá ákvörðun George W. Bush, þáverandi forseta, að fyrirskipa innrás í landið, þótt gereyðingarvopn hafi ekki fundist þar. Trump hefur hins vegar sagt að innrásin hafi verið hörmuleg mistök. Sendir Kim skilaboð Bolton hefur á síðustu árum hvatt til þess að Bandaríkjamenn komi ein- ræðisstjórninni í Norður-Kóreu frá völdum og beiti til þess hervaldi ef nauðsyn krefur. Nokkrir fréttaskýr- endur telja að Trump hafi valið Bolt- on nú til að undirbúa fyrirhugaðan fund forsetans með Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, ekki síðar en í maí. „Með því að velja Bolton, sem hefur hvatt til fyrirbyggjandi árása á Norður-Kóreu, er Trump að senda einræðisstjórninni skilaboð, segja henni að hún þurfi að hefja viðræður til að komast hjá svo harkalegum hernaðaraðgerðum,“ hefur The Washington Post eftir Kim Sung- han, fyrrverandi aðstoðarutanríkis- ráðherra Suður-Kóreu. Trump hefur gefið til kynna að hann telji að hægt sé að ná sam- komulagi við Kim Jong-un um að ein- ræðisstjórnin afsali sér kjarnavopn- um en Bolton hefur dregið það í efa. Hann telur að ekki sé hægt að treysta henni og heimfærði gamlan brandara upp á hana nýlega þegar hann var spurður hvort hann tryði því að hún vildi í raun og veru frið- mælast: „Spurning: Hvernig veistu að Norður-Kóreustjórn er að ljúga? Svar: Hún hreyfir varirnar.“ Bolton hefur sagt að besta leiðin til að komast hjá átökum sé að auka hernaðarmáttinn og skírskotað til rómverska málsháttarins „viljir þú frið skaltu búa þig undir stríð“. Margir fréttaskýrendur telja að fyrirbyggjandi árásir á Norður- Kóreu geti leitt til mikilla blóðs- úthellinga – líkt og innrásin í Írak – því að talið er að einræðisstjórnin svari þeim með sprengjuárásum á Suður-Kóreu, m.a. á Seoul sem er með 25 milljónir íbúa. Vill taka hart á N-Kóreustjórn  John Bolton verður næsti þjóðarör- yggisráðgjafi Trumps í Hvíta húsinu Um þriðjungur æðstu embættismanna Hvíta hússins lét af störfum á síðasta ári, miklu fleiri en á fyrsta ári annarra forseta í nútímasögu Bandaríkjanna. Ekkert lát hefur verið á mannaskiptunum í ár Horfnir úr Hvíta húsinu Michael Flynn Þjóðaröryggisráðgjafi Neyddur til að segja af sér 13. febrúar, eftir 22 daga í embætti Sean Spicer Fjölmiðlafulltrúi Reince Priebus Skrifstofustjóri Sagði af sér 22. júlí Lét af störfum 31. júlí Anthony Scaramucci Samskiptastjóri Steve Bannon Aðalstjórnmálaráðgjafi Tom Price Heilbrigðisráðherra Vikið frá 31. júlí eftir 10 daga í embættinu Lét af störfum 18. ágúst Neyddur til afsagnar 20. september 2017 Rob Porter Ritari forsetaskrifstofunnar Hope Hicks Samskiptastjóri Gary Cohn Efnahagsráðgjafi Rex Tillerson Utanríkisráðherra Tilkynnti afsögn sína 7. febrúar Tilkynnti 28. febrúar að hún léti af störfum Sagði af sér 6. mars vegna verndartolla Vikið úr embætti 13. mars Ljósmyndir: AFP HR McMaster Þjóðaröryggisráðgjafi Trump tilkynnti í fyrradag að McMaster myndi láta af störfum 9. apríl Árásarmaður varð að minnsta kosti þremur mönnum að bana og særði sextán, þar af tvo alvarlega, þegar hann stal bíl og tók fólk í gíslingu í sunnanverðu Frakklandi í gær. Ríki íslams, samtök íslamista, lýsti árás- inni á hendur sér. Árásarmaðurinn beið bana í skot- bardaga við lögreglu. Innanríkisráð- herra Frakklands, Gerard Collomb, sagði að árásarmaðurinn, Redouane Lakdim, hefði áður komist í kast við lögregluna fyrir fíkniefnasölu og hún hefði því fylgst með honum en ekki talið hættu á að hann fremdi hryðju- verk. Lakdim var 26 ára og sagður af marokkóskum uppruna. Á lista yfir mögulega öfgamenn Fréttaveitan AFP hefur eftir heimildarmönnum í frönsku lögregl- unni að árásarmaðurinn hafi verið á lista yfir menn sem talið er mögulegt að styðji íslamskar öfgahreyfingar. Franskir saksóknarar sögðu að maðurinn hefði sagst hafa gert árás- ina í nafni Ríkis íslams. Dagblaðið Le Parisien sagði að maðurinn hefði búið hjá foreldrum sínum í bænum Carcassone. Blaðið hefur eftir nágrönnum hans að hann hafi verið „rólegur“ og „vingjarnleg- ur“ í viðmóti og sótt mosku bæjarins reglulega. Hélt fólki í gíslingu Árásarmaðurinn stal fyrst bíl í Carcassone, drap farþega hans og særði bílstjórann. Hann skaut einnig á lögreglumann sem var að hlaupa sér til heilsubótar ásamt félögum sínum. Maðurinn ók síðan að stórmark- aðinum Super U í bænum Trebes, réðst inn í hann, hélt viðskiptavinum og afgreiðslufólki í gíslingu í rúmar þrjár klukkustundir og varð að minnsta kosti tveimur að bana. Lögreglumanni lýst sem hetju Sjónarvottar sögðu að maðurinn hefði verið vopnaður hnífum, byssu og handsprengjum og hrópað „All- ahu Akbar“ (Allah er mikill) áður en hann réðst inn í stórmarkaðinn. Collomb innanríkisráðherra sagði að sérsveit lögreglumanna hefði ver- ið send á staðinn um leið og gíslatak- an hófst. Henni hefði tekist að ná gíslum út úr byggingunni en árásar- maðurinn haldið einum þeirra og hótað að drepa hann ef sérsveitin réðist til inngöngu. Árásarmaðurinn féllst á að láta gíslinn lausan í skipt- um fyrir lögreglumann sem bauðst til að fara óvopnaður inn í verslunina til hans. Lögreglumaðurinn var þar hjá árásarmanninum þegar reynt var að fá hann til að gefast upp. Lög- reglumaðurinn skildi farsíma sinn eftir á borði í versluninni til að fé- lagar hans gætu fylgst með því sem gerðist. „Þegar við heyrðum skot- hvelli réðst sérsveitin til inngöngu,“ sagði innanríkisráðherrann. Coll- omb bætti við að lögreglumaðurinn hefði særst alvarlega og hrósaði hon- um fyrir hugrekki, sagði að hann væri sannkölluð hetja. Einn sérsveitarmannanna særðist einnig í árásinni. Mikill öryggisviðbúnaður hefur verið í Frakklandi vegna hryðju- verka íslamista frá því í janúar 2015 þegar tólf manns létu lífið í árás á skrifstofu háðtímaritsins Charlie Hebdo í París. 130 manns til viðbótar biðu bana í skot- og sprengjuárásum íslamista á bari, veitingahús, Batacl- an-tónleikastaðinn og íþróttaleik- vang í París í nóvember 2015. 84 létu lífið í júlí 2016 þegar maður ók vöru- flutningabíl inn í mikinn mannfjölda á strandgötu í Nice á þjóðhátíðar- degi Frakka. Ríki íslams lýsti árás- unum á hendur sér. bogi@mbl.is Íslamisti varð þremur mönnum að bana  Ríki íslams lýsir hryðjuverki í Frakklandi á hendur sér Gíslataka í Frakklandi Aud e D6113Trebes Trebes AUDE PARÍS Heimild: maps4news.com/©HERE 1 km Narbonne Árásarmaðurinn stal bíl, drap far- þega og skaut á lögreglumann kl. 10.30 að staðartíma Carcassonne Maðurinn tók fólk í gíslingu, drap fleiri menn og féll í árás lögreglu Super U 10 km

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.