Morgunblaðið - 24.03.2018, Page 26

Morgunblaðið - 24.03.2018, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Alzheimer-sjúkdóm-urinn er algengasta birt- ingarmynd heila- bilunar. Hér sem annars staðar hefur tilfellum sjúkdómsins fjölgað mikið undanfarið. Ís- lenskt heilbrigðiskerfi virð- ist síður en svo í stakk búið til að bregðast við þessum vanda og má segja að hér ríki óviðunandi ástand. Í viðtali í Sunnudagsblaðinu, sem fylgir Morgunblaðinu í dag, segir Steinunn Þórð- ardóttir, lyf- og öldrunar- læknir, að staða fólks með heilabilanir og aðstandenda þess sé afar slæm hér á landi. Steinunn lærði og starfaði í Svíþjóð og hefur starfað með sjúklingum með heila- bilun hér á landi undanfarin fjögur ár. Hún segir að stuðningur sé lítill og að- standendur geti lent í erfiðu umönnunarhlutverki, jafnvel um árabil. Hún segir að til séu úrræði á borð við dag- þjálfun og hjúkrunarheimili, en vandinn sé sá að öll skref sé hæg og flókin. „Biðin eftir að komast inn í dagþjálfun er um ár, jafn- vel lengri,“ segir Steinunn í viðtalinu. „Ég var með sjúk- ling í síðustu viku sem hefur beðið í tvö ár. Þessir sjúk- dómar eru þess eðlis að fólki versnar oft mikið á biðtímanum svo biðin er ekki góð. Hins vegar getum við læknar ekki sótt um dagþjálfun fyrr en fólk er komið á þann stað að það þurfi þess virkilega með. Niðurstaðan er oft sú að þegar viðkomandi kemst í dagþjálfun er makinn ör- magna og jafnvel hefur sjúklingnum hrakað þannig að hann er orðinn of lélegur fyrir dagþjálfunina og þarf að komast á hjúkrunarheim- ili. Eftir því er önnur eins bið.“ Steinunn lýsir einnig hvað erfitt getur verið að fá mat fyrir sjúklinga, sem þurfa að komast á hjúkrunarheim- ili. Færni- og heilsumats- nefnd sér um að meta það og þarf til dæmis að fara yf- ir hvort reynt hafi verið að endurhæfa sjúkling nægi- lega og önnur úrræði hafi verið reynd til fulls. Vand- inn sé hins vegar sá, segir Steinunn, að fólk með heila- bilun sé oft mjög ákveðið og vilji ekki þiggja endurhæf- ingu. Fyrir vikið komist nefndin iðulega að þeirri niðurstöðu að önnur úrræði hafi ekki verið fullreynd þegar sótt er um pláss á hjúkrunarheim- ili. Í þokkabót geti biðin verið heilt ár eða lengri þegar beiðni hefur verið samþykkt og lengst er biðin hjá þeim, sem enn eru heima hjá aðstandendum, því að spítalarnir ganga fyr- ir. Steinunn segir að því fylgi mikið álag að horfa upp á sinn nánasta hverfa sér vegna heilabilunar og að- standendur geti jafnvel þurft að hætta að vinna og leggja eigið líf til hliðar til að annast foreldra eða maka. Hún lýsir því hvernig örvænting aðstandenda get- ur orðið slík að þeir grípa til örþrifaráða. „Fólk hefur jafnvel brugðið á það ráð að fara með fólkið sitt á bráða- móttökuna og nánast skilja það eftir því það er upp- gefið,“ segir hún. „Maður skilur aðstandendur full- komlega að gera þetta en þá tekur við mjög löng bið inni á spítala sem er heldur ekki með neina aðstöðu eða þjálf- un fyrir þessa sjúklinga og þessum sjúklingahópi líður oft mjög illa í nýjum að- stæðum sem eru alls ekki ákjósanlegar.“ Að sögn Steinunnar hefur ástandið í þessum málum versnað hér á landi á þeim fjórum árum, sem liðin eru síðan hún kom heim. Hún gagnrýnir harkalega að hér skuli ekki hafa verið mótuð nein stefna um málefni flokks með heilabilun. Um- fangið er mikið og eru heila- bilunarsjúkdómar farnir að kosta heilbrigðiskerfið meira en allur kostnaður við krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma samanlagt. Steinunn tekur svo djúpt í árinni að segja að verði ekk- ert að gert muni þetta „steypa heilbrigðiskerfinu“. Margir þekkja tilvik á borð við þau, sem lýst er hér fyrir ofan, en gera sér ef til vill ekki grein fyrir að þau eru ekki einangruð heldur reglan. Steinunn Þórðardóttir læknir talar tæpitungulaust í viðtalinu í Sunnudagsblaðinu. Ábend- ingar hennar eru þarfar og við þeim þarf að bregðast. Ófremdarástand ríkir í mál- efnum sjúklinga með heila- bilun og verði ekkert að gert mun það einfaldlega versna. Það er ekki boðlegt. Sjúklingar með heilabilun sitja á hakanum í heil- brigðiskerfinu} Ófremdarástand U m liðna helgi ályktaði landsfundur Sjálfstæðisflokksins meðal ann- ars um framtíðaruppbyggingu Landspítalans. Landsfundur ályktaði sem svo að „Lokið verði þeirri uppbyggingu á Landspítalalóð sem er komin á framkvæmdastig og tengist núverandi starfsemi. Farið verði tafarlaust í staðarvals- greiningu fyrir framtíðaruppbyggingu sjúkra- húsþjónustu með öryggi og sterkari samgöngu- leiðum að leiðarljósi.“ Í meðförum landsfundar hafði upphaflegum ályktunardrögum verið breytt í meginatriðum, en um þetta atriði sagði þar „Sjálfstæðisflokk- urinn telur mikilvægt að efla Landspítala há- skólasjúkrahús við Hringbraut með áframhald- andi uppbyggingu og bættri aðstöðu.“ Sem sagt: í drögum átti að klára við Hringbraut, í endan- legri ályktun átti að fara í staðarvalsgreiningu og byggja nýjan spítala á nýjum stað. Að afloknum landsfundi hrósaði ég landsfundarfulltrúum sérstaklega fyrir að hafa tekið af skarið með skynsam- legum hætti og losað verkefnið úr hjólförum umferðareyj- unnar við Hringbraut. Nú bregður svo við að talsmenn Sjálfstæðisflokksins túlka ályktun landsfundar með allt öðrum hætti en augljóst er að gera og á allt annan hátt en mig grunar að meginþorri landfundargesta hafi talið sig vera að álykta. Eftir landsfund er því nú haldið fram að ályktunin fjalli um að klára uppbygginguna við Hringbraut, en að það eigi undir eins, tafar- laust, að fara í staðarvalsgreiningu fyrir nýjan spítala á nýjum stað, þar sem áhersla er lögð á góðar umferðartengingar. Þessi eftiráskýring heldur auðvitað ekki vatni. Í fyrsta lagi, þá er það alveg nýtt að byggingar sem enn er verið að hanna séu kall- aðar á byggingastigi, þær eru á hönnunarstigi. Í öðru lagi, þá er engin þörf á að ráðast taf- arlaust í staðarvalsgreiningu fyrir nýjan spítala ef þar er átt við spítala sem á að byggja eftir nokkra áratugi. Í þriðja lagi, þá er engin ástæða til að hafa umferðarflæði og teningar í for- grunni hvað staðarval á framtíðarspítala varðar ef á honum á fyrst og fremst að skipta um mjaðmarliði, spegla hné og fjarlægja fæðingarbletti. Þessi þrjú kjarnaatriði í ályktuninni, eins og henni var breytt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, benda öll til þess að fundarmenn hafi talið sig vera að leggja þá línu að nýtt þjóðarsjúkrahús skuli byggt frá grunni á nýjum stað, þar sem aðstæður allar og aðkoma eru eins og best verður á kosið. Bergþór Ólason Pistill Landsfundur tekur af skarið um spítala, túlkunin slekkur á! Höfundur er þingmaður Miðflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Það voru skiptar skoðanir ímiðstjórn AlþýðusambandsÍslands um þá ákvörðunsem tekin var sl. miðviku- dag að ASÍ tæki ekki sæti í Þjóðhags- ráði. Heimildir af fundinum herma að vel megi vera að ef hefði verið látið á það reyna, hefði reynst vera meiri- hluti fyrir því að taka sæti í ráðinu en það var ekki gert. Eftir umræður varð niðurstaða miðstjórnarinnar sú að það væri bæði óskynsamlegt og beinlínis rangt að fara inn í Þjóðhagsráðið með klofna miðstjórn að baki forsetanum, sem tæki sæti í ráðinu fyrir hönd ASÍ. Lék enginn vafi á því að hreyfingin var klofin í málinu og það myndi ein- faldlega þýða að umboð forsetans í Þjóðhagsráðinu yrði mjög veikt. Rök þeirra sem telja rangt að taka þátt í Þjóðhagsráði að svo komnu máli vógu mjög þungt við um- ræðurnar. Ákveðin hætta var talin á að verkalýðshreyfingin væri að ganga inn í einhvers konar björg með því að taka sæti í ráðinu og setjast niður til funda í Þjóðmenningarhúsinu með seðlabankastjóra, fjármála- og efna- hagsráðherra o.fl. til þess að ræða efnahagsmál, því það væru þau mál sem þeir hefðu mestan áhuga á að ræða. Þó ríkisstjórnin hafi ákveðið að útvíkka erindi ráðsins og ræða fé- lagslegan stöðugleika, yrði án efa erf- itt að koma öðrum sjónarmiðum að. Viðmælendur innan forystuliðs- ins bæta því við að við núverandi að- stæður séu enn minni líkur á árangri af samráði í Þjóðhagsráði þegar haft er í huga að tekist er á í vaxandi mæli bæði innan verkalýðshreyfingarinnar sjálfrar og á milli hreyfingarinnar og hluta ríkisstjórnarinnar um stór mál, ekki síst skattamál, sem ágreiningur er um. Hagdeild ASÍ hefur uppfært útreikninga á þróun skattbyrði sem birt var í skýrslu í fyrra, og í ljós kemur að sú öfugþróun sem átt hefur sér stað að mati ASÍ hélt áfram á ár- unum 2016 og 2017. Skattbyrði há- tekjufólks hefur haldið áfram að minnka en skattbyrði lágtekjufólks hélt áfram að aukast. Einnig voru þau sjónarmið áberandi að umræðan í samfélaginu væri orðin mjög hávær um ójöfnuð og réttlætiskennd fólks væri misboðið, ekki síst vegna ákvarðana kjararáðs og sú umræða hefur svo magnast upp að undan- förnu þegar fréttir berast af hækk- unum ofurlauna forstjóra stórfyrir- tækja. Auk þessa hafi svo ályktanir landsfundar Sjálfstæðisflokksins um liðna helgi um skattamál o.fl. fallið í grýttan jarðveg í verkalýðshreyfing- unni. Lítill trúverðugleiki Það hafi því lítinn sem engan trúverðugleika að verkalýðshreyf- ingin fari inn í Þjóðhagsráðið við þessar aðstæður. Það sjónarmið hafi því orðið ofan á að taka ekki sæti í ráðinu, samtal við stjórnvöld þurfi vissulega að eiga sér stað á komandi vikum og mánuðum en ekki sé skyn- samlegt að það samtal fari fram á formlegum vettvangi Þjóðhagsráðs, skv. heimildum Morgunblaðsins. Það gefur augaleið að formenn- irnir fjórir sem tekið hafa þétt hönd- um saman eftir sigur Sólveigar Önnu Jónsdóttur í formannskjörinu í Efl- ingu hafa mikil áhrif á atburðarásina innan verkalýðshreyfingarinnar þessa dagana og tónninn er orðinn miklum mun harðari. Þau Sólveig Anna, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, og Aðalsteinn Á. Bald- ursson, formaður Framsýnar, tala reglulega saman, hittast oft og ráða ráðum sínum og hafa náð ákveðnu frumkvæði í hreyfingunni. Rangt að taka sæti með klofning að baki Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ráðherrabústaðurinn Fulltrúar launþegahreyfingarinnar voru vikulega boðaðir á fundi með oddvitum ríkisstjórnarflokkanna á fyrstu vikum ársins. Fjórmenningarnir í forystu VR, Eflingar, Framsýnar og Verkalýðs- félags Akraness (VLFA), sem hafa stillt saman strengi í kjaramálum að undanförnu, voru algerlega mótfallnir því að ASÍ tæki sæti í Þjóðhagsráði. Hafa þeir rætt það sín í milli og skv. heimildum Morg- unblaðsins var Ragnari Þór Ing- ólfssyni, formanni VR, ,,boðið að fara þarna inn“ eins og það var orðað en hann þvertók fyrir að VR tæki sæti í ráðinu. Félagið ætli hins vegar að vinna náið að kjara- málum með Eflingu, Framsýn og VLFA. Daginn eftir kom miðstjórn ASÍ svo saman og ákvað að taka ekki sæti í ráðinu. Fjórmenningarnir telja Þjóð- hagsráð gagnslaust við núverandi aðstæður. Áherslan innan þess á stöðugleika taki mið af því að halda niðri launum hinna lægst launuðu í landinu. Fjórmenning- arnir ætla að hittast á nýjan leik á næstu dögum til að fara yfir stöð- una. Telja ráðið gagnslaust FJÓRMENNINGARNIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.