Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 37

Morgunblaðið - 24.03.2018, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Boðberar kærleikans eru jarðneskir englar sem leiddir eru í veg fyrir fólk til að veita umhyggju, miðla ást, og fylla nútíðina innihaldi og tilgangi, veita framtíðarsýn vegna tilveru sinnar og kærleiksríkrar nærveru. Þeir eru jákvæðir, styðja, uppörva og hvetja. Þeir sýna hluttekningu, umvefja og faðma, sýna nærgætni og raunverulega umhyggju, í hvaða kringumstæðum sem er án þess að spyrja um endurgjald. (Sigurbjörn Þorkelsson) Stutt er í vorið, páskar í nánd, gleði í hjarta er mér barst sú frétt að hjartkær bróðir minn, Gunnar, væri farinn yfir móðuna miklu. Það var eins og fréttin næði ekki Gunnar Hafsteinn Elíasson ✝ Gunnar Haf-steinn Elíasson fæddist 24. febrúar 1931. Hann lést 18. mars 2018. Útför Gunnars fór fram 22. mars 2018. inn að hjartarótum, þó svo vitað væri hvert stefndi og við hjón hefðum átt kveðjustund með þessum öðlingi stuttu fyrir andlát hans. Það var ekki fyrr en ég hringdi í son minn til að tilkynna honum andlát bróð- ur míns að eitthvað brotnaði hið innra, minningar hrönnuðust upp og tárin flóðu, en gráturinn gerir gott, hann líknar og græðir. Að alast upp í stórum systkina- hóp er dýrmætt en að kveðja tvo bræður með stuttu millibili er harla erfitt. Er ég staldra við og lít um öxl þá finn ég svo glöggt hvað þessi fallegi bróðir minn var einstakur gleðigjafi og fyrirmynd í lífi okkar systkina á svo ótal margan hátt. Gunnar var í mínum huga eins og skáldið orti „jarðneskur engill“. Fyrir mér var þessi bróðir minn höfuð ættarinnar, alltaf til staðar, tók mikinn þátt í heimilis- lífinu og studdi okkur systkinin á einn og annan hátt. Þá ekki síst var hann stoð og stytta móður okkar en skipstjórinn faðir okkar var oft langdvölum að heiman og barnahópurinn stór. Er Gunnar festi ráð sitt þá byrjuðu þau hjón að búa í kjallaranum hjá foreldrum okkar. Við Sirrý, yngstu systurn- ar, gerðum okkur æði heimakomn- ar hjá ungu hjónunum og aldrei var stuggað við okkur þó svo við skokkuðum niður stigann til þeirra í tíma og ótíma. Að vera í kringum þessi hjón var alltaf gleði og gam- an, sem breyttist ekki í tímans rás og vinátta þeirra hjóna, gestrisni og kærleikur í okkar garð og sonar okkar hjóna var einstakur. Allar þær samverustundir og minningar sem ég frá blautu barnsbeini og allt til þessa dags á um þig og fjöl- skyldu þína, elsku bróðir, er mér ómögulegt að setja á blað, svo margar og samtvinnaðar eru þær, það myndi nálgast ævisögubrot. Umfram allt er ég þakklát í hjarta mínu fyrir að hafa átt þig fyrir bróður og minningarnar munu dvelja hið innra alla tíð, þær eru geymdar en ekki gleymdar. Guðs blessun og þakklæti til ykkar, kæru systur og fjöldskyldur, hvað þið hugsuðuð einstaklega vel um hann bróður minn, eins og ykkar var von og vísa. Dýpstu samúðar- kveðjur og þakklæti til ykkar allra. Guðrún systir. Gunnar Elíasson gekk í Lions- klúbb Akraness árið 1958. Þar sinnti hann í gegnum árin flestum þeim verkefnum sem til féllu. Fyr- ir störf sín var hann gerður að Melvin Jones-félaga árið 1991, en það er æðsta viðurkenning Lions- hreyfingarinnar. Hann varð ævi- félagi klúbbsins í ársbyrjun 2012. Ég átti þess kost að starfa með Gunnari í Lionsklúbbi Akraness í nokkur ár. Dálítið sérstakt, ég fann fyrir hlýju hans í minn garð frá fyrstu stundu þar til yfir lauk. En þannig var Gunnar, velviljað ljúfmenni, glaðlyndur og jákvæð- ur. Bestu stundirnar okkar voru við matargerð og koma í fram- kvæmd að bera fram veislukost, t. d. fyrir jólafundi klúbbsins. Hann var reyndur á þessu sviði hafði unnið við meðhöndlun matvæla í mörg ár og gjörþekkti allar þær kúnstir sem góðri matargerð fylgdu. Þannig lærði ég af honum betri meðhöndlun grænmetis og frábæra sósugerð svo dæmi séu nefnd. Dóttir mín sagði einhvern tíma að hún vildi kjöt með sósu heima, frekar en fara á veitinga- stað, þökk sé meistara Gunnari. Gunnar flutti ásamt konu sinni, Guðjónínu Sigurðardóttur, á dval- arheimilið Höfða fyrir nokkrum árum. Hann var þá sprækur sem lamb á vordegi en veikindi konu hans voru alvarleg og lést hún eft- ir skamma dvöl á Höfða. Fráfall hennar lagðist þungt á Gunnar enda hann viðkvæmur og einstak- lega umhyggjusamur. Hann sagði einhvern tíma við mig svo rólegur og brosandi að nú gæti hann farið líka. Við Lionsfélagar þökkum sam- verustundirnar og kveðjum góðan dreng, blessuð sé minning hans um ókomin ár. Fjölskyldu hans sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Ófeigur Gestsson. ✝ GuðborgFranklínsdóttir fæddist í Litla- Fjarðarhorni í Strandasýslu 5. maí 1924. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 12. febrúar 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Franklín Þórðar- son, bóndi í Litla- Fjarðarhorni, f. 11. nóvember 1879, d. 17. júlí 1940, og Andrea Jónsdóttir húsmóðir, f. 20. sept- ember 1881, d. 12. janúar 1979. Guðborg var yngst 13 systkina sem eru: Þórður, f. 1903, d. 1991, Sigurður, f. 1903, d. 1983, Herm- ína, f. 1906, d. 2000, Eggþór, f. 1908, d. 1994, Anna Margrét, f. 1910, d, 2015, Guðbjörg Magnea, f. 1912, d. 2005, Aðalheiður, f. 1914, d. 2012, Guðmundur Helgi, f. 1915, d. 2005, Hallfríður Nanna, f. 1916, Benedikt Krist- inn, f. 1918, d. 2010, Jón Líndal, f. 1919, d. 1999, og Margrét, f. 1922. Guðborg giftist hinn 29. des- ember 1945 Óskari Albert Sig- urðssyni, sjómanni og verka- 1978. Fyrir átti Þórdís tvær dæt- ur, fósturdætur Guðmundar, þær Ragnhildi Sigurðardóttur, f. 20. október 1969, gift Hermanni Jónssyni, f. 7. ágúst 1969, sonur þeirra er Kolbeinn Mikael, f. 27. apríl 2013, og Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur, f. 19. desember 1974, gift Steinari Þór Þorfinns- syni, f. 16. júlí 1974, þeirra börn eru Þór Jökull, f. 19. febrúar 2007, Þórdís Tinna, f. 13. febr- úar 2010, og Sigþór Máni, f. 5. nóvember 2013. Sambýliskona Guðmundar er Áslaug Trausta- dóttir, f. 31. desember 1958, dóttir hennar er Silja Jansdóttir Jermestad, f. 1. maí 1985, gift Åsmund Nordgulen, f. 23. mars 1987. Dætur þeirra eru Björk, f. 28. september 2013, og Sóley, f. 15. ágúst 2016. 4) Óskar Helgi, f. 8. júlí 1954, kvæntur Aðalheiði Erlu Jónsdóttur, f. 17. maí 1957. Börn þeirra eru: a) Kári Páll, f. 22. desember 1981, sambýlis- kona hans er Marta Leite, f. 10. apríl 1983, b) Björk, f. 19. júlí 1986, gift Giorgos Oikonomou, f. 12. september 1986, dóttir þeirra er Ariadne Marín, f. 29. mars 2017, c) Ásdís Helga, f. 3. október 1991, sambýlismaður hennar er Ingvar Bjarki Ein- arsson, f. 13. janúar 1991, og d) Stefán Andri, f. 19. apríl 2001. Útför Guðborgar fór fram frá Siglufjarðarkirkju 24. febrúar 2018 og var gerð í kyrrþey að hennar ósk. manni frá Mó, Dalvík, f. 20. maí 1918, d. 15. desem- ber 2007. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Jón Guð- jónsson, sjómaður og formaður frá Mó, f. 9. desember 1885, d. 7. janúar 1943, og Anna Sig- urðardóttir hús- móðir, f. 17. októ- ber 1883, d. 7. júní 1971. Börn Guðborgar og Alberts eru: 1) Sigurmar Kristján, f. 7. maí 1946, fyrri kona hans var Mar- grét Elíasdóttir, f. 13. desember 1946, þau skildu. Seinni kona Sigurmars er Álfheiður Inga- dóttir, f. 1. maí 1951, sonur þeirra er Ingi Kristján, f. 12. febrúar 1991, sambýliskona hans er Anna Kristín Baldvins- dóttir, f. 5. desember 1988, sonur hennar er Karl Þórisson, f. 17. maí 2009. 2) Andrea Guðrún, f. 12. nóvember 1947, d. 17. ágúst 1951. 3) Guðmundur Jón, f. 13. október 1951, var kvæntur Þór- dísi Þórðardóttur, f. 2. maí 1951, þau skildu. Sonur þeirra er Þórður Albert, f. 5. september Tengdamóðir mín Guðborg var yngst 13 systkina sem öll fæddust í torfbæ, Litla-Fjarðar- horni í Kollafirði á Ströndum, glaðværu og gestrisnu menning- arheimili. Hún náði 93ja ára aldri sem þykir ekki mikið í þeim stóra hópi. Eftir lifa Nanna 102ja ára og Margrét 96 ára. „Pabbi seldi aldrei mjólkina og það var alltaf nóg af fiski,“ sagði Borga spurð um langlífi og góða heilsu systk- inanna. Skólagangan var eins og á al- þýðuheimilum til sveita, farskóli í tvo vetur, þrjá mánuði í senn. En Borga var heppin, hún fór á Hús- mæðraskólann á Ísafirði einn vetur og naut sín vel í námi og fé- lagsskap skólasystra. Hún geymdi mikið af handavinnunni frá skólanum, allar myndir og minningabækur og skólasysturn- ar héldu lengi sambandi sín í milli. Á einkunnablaðinu sáum við að hún fékk 10 í íslenskum stíl og yfir 9 í flestum öðrum grein- um. Það var að vonum. Þessi unga og myndarlega kona kom til Siglufjarðar sextán ára gömul til að aðstoða á barn- mörgu heimili systur sinnar. Á þeim árum var Siglufjörður nafli alheimsins og fjörðurinn fullur af síldveiðiskipum úr öllum lands- hlutum. Silfur hafsins rann ómælt í vasa þeirra sem gátu unnið myrkranna á milli og karl- ar og konur flykktist norður. Margir kenndu sig alla tíð við Siglufjörð þótt þeir flyttu í aðra landshluta og á tímabili hélt ég að Siglfirðingar væru fleiri en Ís- lendingar! – svo marga Siglfirð- inga hittum við hvar sem við er- um á ferð innan lands og utan. Á Siglufirði lágu leiðir þeirra Guðborgar og Alberts saman. Hann kom frá Dalvík, hún af Ströndum og þau bjuggu allan sinn búskap á Siglufirði. Á heim- ilinu bjó líka Andrea móðir Guð- bjargar og varð 97 ára. Synirnir eru þrír en telpuna misstu þau fjögurra ára úr berklum. Albert gat talað um missinn og rifjað upp heimsóknina á Kristneshæli þegar hann og Sigurmar fengu einu sinni að hitta telpuna. Borga sagði minna en myndina af And- reu litlu og minningarkortin hafði hún við rúmstokkinn alla tíð. Sagt er að þeir séu þögulir Strandamenn og tengdamóður minni kippti í kynið. Þar var ekki töluð vitleysan eða farið með slúður. Borga las mikið og var vandlát á lesefni. Hún náði sér jafnan í nýútkomnar bækur á bókasafnið en bækur sem hún hélt uppá marglas hún og setti í bókaplast til að verja hnjaski. Hún vildi ekki láta hafa fyrir sér en tók þó vel á móti strákunum sínum í árlega jólahreingerningu. Hún var hraust til líkama og sál- ar allt til æviloka. Það var „ekki komið að því“ að fá hjálp heima við eða fara á elliheimili. Og við héldum líka öll að það væri næg- ur tími – Albert hefði orðið 100 ára í vor, Borga 94 og Nanna 103, nánast í sömu vikunni og allir hlökkuðu til. Ferðin sú verður önnur en til stóð. Allt er breytt og amma á Sigló tekur ekki á móti okkur. Hún hné niður á heimili sínu og lést 12. febrúar síðastlið- inn á sjúkrahúsinu á Akureyri. Á kveðjustund sem ber brátt að er margt ósagt. Ég minnist heimsókna og ferðalaga innan- lands og utan, spjalls um bækur og handavinnu, um krakkana sem hún fylgdist með á Face- book. Og umhyggjunnar sem hún sýndi okkur öllum og við búum að um ókomna tíð. Álfheiður Ingadóttir. Elsku amma. Amma á Sigló, eins og þú hefur alltaf heitið í okkar huga. Þegar langri samfylgd lýkur er það okkar, sem eftir erum, að gera upp samferðartímann og reyna að létta okkur viðskilnað- inn. Við minnumst þín fyrir margt, auðvitað fyrir gæsku þína og örlæti svo fátt eitt sé nefnt, gjafir sem fyrir barnshugann voru svo rausnarlegar að þær þöndu út sjáöldrin í ungum aug- um. Við minnumst þín fyrir öll þau skipti sem við spiluðum við eldhúsborðið á Laugarveginum og í Löngumýrinni, húmorinn, hlýjuna og pönnukökur með rjóma. Einnig fyrir alla þá rósemi og yfirvegun sem þú stafaðir frá þér og hafði þægileg, róandi áhrif á fólk í kringum þig. Og síðast en ekki síst fyrir allt fallega hand- verkið þitt sem þú gafst okkur, heklaða eða prjónaða muni sem voru og eru bæði vandaðir og smekklegir, mjúkir og hlýir; bera ekki aðeins vott um væntum- þykju heldur einnig skarpan, næman huga. Hluti sem hafa ekki aðeins hagnýtt notagildi eins og að halda á okkur hita, heldur fegra líka daglega tilveru okkar. Í minningunum virðist þú allt- af svo fáguð og veraldarvön við allar aðstæður, eins þótt það væri bara í litla eldhúsinu á Laugar- veginum heima hjá ykkur afa, að reykja Salem-sígaretturnar þín- ar og leggja kapal. Og augljós- lega svo greind og fróð, sennilega búin að lesa allar bækurnar á bæjarbókasafni Siglufjarðar. Hefðir ekki skorið þig úr á neinni samkomu menntamanna í neinni háborg menningar. Oft höfum við velt fyrir okkur hvar í samfélag- inu þú hefðir endað, hefðu að- stæður þínar verið öðruvísi og tækifærin fleiri. Hefðirðu til dæmis orðið fræði- eða vísinda- kona á einhverju sviði? Fengið stöðu við einhvern háskóla? Elsku amma á Sigló. Að leið- arlokum viljum við þakka þér fyr- ir það fjölmarga sem þú hefur gefið okkur og kennt. Lygnt geymir vatnið leið mína yfir fjallið, felur hana rökkri og ró í nótt. Vær geymir svefninn söknuð minn í lautu, með degi rís hann aftur úr djúpsins ró. (Snorri Hjartarson) Kári Páll, Björk, Ásdís Helga og Stefán Andri Óskarsbörn. Guðborg Franklínsdóttir Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Innilegar þakkir til allra fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, RÖGNU JÓHÖNNU MAGNÚSDÓTTUR frá Bolungarvík, Lækjasmára 2. Sérstakar þakkir fær starfsfólk blóðlækningadeildar á Landspítalanum. Jón Bjarni Geirsson Andri Jónsson Elsa Jónsdóttir Lilja Jónsdóttir tengdabörn og barnabörn Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför frænda okkar, SIGURÞÓRS SIGURÐSSONAR, Höfn, Hornafirði. Aðstandendur Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra BÖÐVARS PÁLSSONAR, Búrfelli, Grímsnesi. Lísa Thomsen Sigurður Böðvarsson Guðrún Bragadóttir Laufey Böðvarsdóttir Bryndís Á. Böðvarsdóttir Pétur Ingi Haraldsson Anna Ýr Böðvarsdóttir Sigurður Benediktsson Lára Böðvarsdóttir Sturla Jónsson barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, RAGNHEIÐAR ESTERAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Þröm, Laugarvatni. Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hana á Lundi síðustu æviárin. Hulda Björk Þorkelsdóttir Hörður Ragnarsson Guðmundur B. Þorkelsson Bryndís Guðlaugsdóttir Bjarni Þorkelsson Margrét Hafliðadóttir Þorbjörg Þorkelsdóttir Þorkell Þorkelsson Sigríður Eiríksdóttir Hreinn Þorkelsson Auður Rafnsdóttir Gylfi Þorkelsson Anna María Óladóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.