Morgunblaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2018 Stjórn styrktarsjóðsins Reykjavíkur Loftbrúar hefur samþykkt breyt- ingar á áherslum og umfangi sjóðs- ins, skv. tilkynningu. Í stað smærri mánaðarlegra úthlutana í formi far- miða verður úthlutun sjóðsins nú ein á ári þar sem valin verða allt að fimm verkefni úr hópi umsækjenda sem fá veglegt tveggja milljóna króna gjafa- bréf sem hægt verður að nota að vild í ferðir og aukafarangur með Iceland- air, segir þar. Að sjóðnum standa Ice- landair, Reykjavíkurborg, FÍH (Félag íslenskra hljómlistarmanna), FHF (Félag hljómplötuframleið- enda) og STEF (Samtök tónskálda og eigenda flutningsréttar). „Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á sjóðnum er styrk- ur frá Reykjavík Loftbrú hrein búbót fyrir tónlistarfólk sem getur nýtt gjafabréfið til að kaupa flug og auka- farangur með Icelandair en breyting- arnar á Reykjavík Loftbrú eru gerð- ar til að geta stutt enn betur við bakið á tónlistarfólki sem er í markvissri útrás með sína tónlist. Markmiðið með Reykjavík Loftbrú er einmitt að styðja við bakið á íslensku tónlistar- fólki sem vill hasla sér völl á erlendri grundu og kynna um leið Reykjavík sem tónlistar- og menningarborg og spennandi viðkomustað ferða- manna,“ segir í tilkynningunni. Opið er fyrir umsóknir um styrki frá Reykjavík Loftbrú á vef Útflutnings- skrifstofu íslenskrar tónlistar, uton.is og er umsóknarfrestur til og með 17. apríl. Styrkir verða veglegri en áður Morgunblaðið/Golli Kátur Sigtryggur Baldursson, framkvæmdastjóri Útflutningsmiðstöðvar ís- lenskrar tónlistar en hún er meðal þeirra sem standa að Reykjavík Loftbrú. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Fyrir viku skrifaði ég pistilum ferð mína á Færeyskutónlistarverðlaunahátíðina. Helgardvölin varð hin besta og mikið af ánægjulegum uppá- komum. Kristian Blak, mikilhæf- asti tónlistar-aðgerðasinni eyjanna, var eins og grár köttur í kringum okkur gestina og var það vel! Sótti okkur m.a. á flugvöllinn og keyrði okkur þaðan til Þórshafnar. Ég sat fram í með meistaranum og eðli málsins samkvæmt skröfuðum við um færeyskt tónlistarlíf og starf hans þar. Blak er ekkert minna en ótrú- legur maður, „eldsál“ fyrir allan pening- inn (orð sem Færeyingar nota yfir innblásið og starfsamt fólk) og rekur hann útgáfu sína Tutl af mikilli festu, með hárná- kvæman fókus á hvað beri að gera til að hámarka sýnileika og dreif- ingu (tutl er orð yfir öldugjálfur). Merkilegast er þó, og að því komst ég með því að tala við menn honum tengda, að hann er ekki með höf- uðið í skýjunum eða í óraunhæfum dagdraumum. Áratugalangt og ósérhlífið starf hans skilar nefni- lega áþreifanlegum árangri. Hann stendur t.d. að tveimur tónlistar- hátíðum (Summartónar og Winter Jazz) sem fara fram um allar eyj- arnar og er nokkurs konar eins manns her þar eins og einhver nefndi. Tutl er þó ekki hefðbundið út- gáfufyrirtæki, frekar mætti kalla það útgáfusamlag. Blak stendur í fjárútlátum saman með tónlist- armönnum en í 21 árs gömlu viðtali við Árna Matthíasson í blaði þessu sagði hann m.a., og er það merki- legt miðað við hvernig mál hafa þróast síðan þá: „Enginn lifir af því Eldsálin Kristian Blak Ljósmynd/Stella María Kraftaverkamaður Kristian Blak tók vel á móti þessum tveimur íslensku poppspekúlöntum á dögunum, þeim Ólafi Páli Gunnarssyni og pistilritara. að leika á hljóðfæri. Það eru starf- andi fjölmargir tónlistarkennarar, en enginn hljóðfæraleikari, þeir fá ekki nóg að gera heima fyrir og all- ir þeir bestu setjast að í útlöndum þar sem nóg er við að vera. Það gefur augaleið hvað það skipti miklu máli fyrir færeyskt listalíf ef þar byggju starfandi tónlistar- menn, sem gætu eins ferðast um heiminn til tónleikahalds, en myndu auðga listalíf ómælt með búsetu sinni heima.“ Hér hefur Blak náð að spá vel fyrir framtíðinni eða öllu heldur hefur ósk hans ræst. Færeyjar búa í dag yfir mörgum öflugum tónlist- armönnum sem einmitt gera út frá eyjunum, ferðast um allan heim, en eiga höfuðvígi þar og auðga eyj- arnar svo sannarlega. Eivör Páls- dóttir er vitaskuld besta dæmið þar um. Starfandi tónlistarmönn- um í eyjunum hefur m.ö.o. fjölgað en þróun tónlistarlífs í eyjunum síðustu tvo áratugi hefur verið með makalausum hætti. Ég og Blak ræddum m.a. um dreifingu á efni Tutl og ég hef aldrei heyrt mann tala jafn vel um Spotify og viðlíka streymisveitur. Að sjálfsögðu heldur hann firnavel um reiðtygin þar og sagði hann mér að tekjur Tutl hefðu margfald- ast eftir að hann keyrði vörur út- gáfunnar inn á veiturnar. Hann væri í sambandi við dreifiaðila víða um heim sem þjónustuðu hann hvað stafræna þáttinn varðaði. Þetta sagði hann mér, mildur í fasi, en utangátta prófessors-áran sem leikur um hann er vel blekkjandi. Blak otaði svo að mér nokkr- um plötum þegar ég heimsótti hann í Tutl plötubúðina en vínylút- gáfa hefur nú aukist hjá honum eins og öðrum. Hann benti mér á nokkrar pappapakkningar utan um nýjustu plötu Hamferðar, sem voru víst á leiðinni út í heim. Svei mér þá, hann hefur ábyggilega pakkað þeim inn sjálfur. » Færeyjar búa ídag yfir mörgum öfl- ugum tónlistarmönnum sem einmitt gera út frá eyjunum, ferðast um all- an heim, en eiga höf- uðvígi þar. Kristian Blak er for- svarsmaður færeysku plötuútgáfunnar Tutl og algert gúrú hvað viðkemur tónlistarlífi í eyjunum. Höfundur sótti hann heim fyrir stuttu. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 13. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 14. s Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 15. s Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Fim 10/5 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um höfnun og hindranir. Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Efi (Kassinn) Fim 5/4 kl. 19:30 Síðustu Margverðlaunað og spennandi verk ! Faðirinn (Kassinn) Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Ég get (Kúlan) Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Mán 9/4 kl. 11:00 Vík Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Þri 10/4 kl. 11:00 kirkjub.klaustur Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.