Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 52

Morgunblaðið - 24.03.2018, Síða 52
LAUGARDAGUR 24. MARS 83. DAGUR ÁRSINS 2018 Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Best klæddu konur Íslands 2. Sváfu frekar lítið næstu nótt 3. Ráðgátan um „geimveruna“ leyst 4. Lögreglumaður í staðinn fyrir gísl  Strokkvartettinn Siggi kemur fram á sígildum sunnudegi í Norðurljósum Hörpu á morgun kl. 17. Á efnisskránni eru verk eftir Alfred Schnittke, Sjost- akovitsj, Beethoven og Orlando di Lasso. Kvartettinn skipa Una Svein- bjarnardóttir, Helga Þóra Björgvins- dóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Sigurður Bjarki Gunnarsson. Siggi á sígildum sunnudegi í Hörpu  Rof nefnist sýn- ing sem Bergþór Morthens opnar í Listasafninu á Akureyri, Ketil- húsi, í dag kl. 15. Sýningarstjóri er Guðrún Pálína Guðmundsdóttir. Bergþór lauk námi við Myndlistaskólann á Akureyri 2004 og MA-námi í myndlist við Valand-háskólann í Gautaborg 2015. Hann hefur haldið einkasýningar á Íslandi, í Rúmeníu og Svíþjóð. Rof stendur til 15. apríl. Bergþór Morthens opnar sýninguna Rof  Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með tónleika- röðinni Mozartmaraþoni þar sem hún flytur öll verk Mozarts fyrir fiðlu og píanó. Aðrir tónleikar raðarinnar af níu alls verða í Hannesar- holti á morgun, sunnudag, kl. 12.15. Þar leika Guðný og Gerrit Schuil sónötu í B-dúr, sex tilbrigði um franskt lag í g-moll og sónötu í Es-dúr. Mozartmaraþonið í Hannesarholti FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 5-13 m/s og lítilsháttar él um landið vestanvert og á annesjum norðanlands en hægari vestlæg eða breytileg átt annars staðar og yfirleitt bjart. Hiti 0 til 4 stig að deginum en víða næturfrost. Á sunnudag Austlæg átt, 5-13 m/s og snjókoma í fyrstu en síðan slydduél eða él á Norðausturlandi og Austfjörðum. Hægari breytileg átt annars staðar. Víða léttskýjað en stöku él, einkum inn til landsins. Hiti kringum frostmark. „Stundum er það fátt sem við getum tekið jákvætt með okkur úr leikjum en úr leiknum á miðvikudaginn er margt jákvætt sem við getum haldið áfram að byggja á, ekki síst varnarleikurinn, bar- áttuandinn og sjálfstraustið sem var í liðinu,“ segir Axel Stefánsson, þjálfari kvennalandsliðsins í handknattleik, sem mætir Slóveníu öðru sinni á fjór- um dögum í Celje á morgun. »1 Tökum margt jákvætt með okkur til Celje Keflavík hélt sér á lífi í ein- víginu við Hauka í 8-liða úr- slitum Dominos-deildar karla í körfubolta með 81:78-sigri í Hafnarfirði í gærkvöld. Staðan í einvíg- inu er 2:1. Keflavík er eina Suðurnesjaliðið sem enn er með í úrslitakeppninni en Tindastóll sópaði Grindavík út, 3:0, og Njarðvík hafði áður fallið úr leik, einnig 3:0, gegn KR. »2 og 3 Keflavík ein Suð- urnesjaliða eftir Á meðan nýkrýndir deildarmeistarar ÍBV í handknattleik karla flugu áleiðis til Rússlands vegna Evrópuleiks flaug einn reyndasti leikmaður liðsins, Magnús Stefánsson, til Vestmanna- eyja með bikarinn. Hann komst ekki til Rússlands vegna anna í vinnu sem framleiðslustjóri. „Það er vertíð í gangi,“ segir Magnús. Sambýliskona hans er hins vegar komin til Slóveníu með íslenska kvennalandsliðinu. »4 Komst ekki í Evrópuleik vegna vertíðarinnar Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Síðasti vinnudagur Hrólfs Jóns- sonar hjá Reykjavíkurborg var í gær. Hann komst á starfslokaaldur samkvæmt 95 ára reglunni (35 ára starfsaldur + lífaldur) fyrir nokkru og ætlar að snúa sér að ráðgjöf og tónlist. „Þetta er ágætis tími til þess að breyta til og spreyta sig á öðrum vígstöðvum,“ segir hann. Hrólfur hefur stofnað fyrirtækið 13 tungl og ætlar að markaðssetja sig sem ráðgjafa. Auk þess er hann að undirbúa tónleika í Hörpu 12. október nk., þar sem nýstofnuð hljómsveit hans ætlar að flytja 20 lög, þar af 15 eftir Hrólf, einkum blöndu af rokki og amerísku þjóð- lagarokki. „Ég hef samið um 40 lög og 25 til 30 texta og við höfum valið 15 þessara laga til þess að vinna með og endurútsetja,“ segir hann. Auk þess ætla þeir að flytja þrjú lög eftir Ragnar Jón, trommuleik- ara bandsins og son Hrólfs, og tvö tökulög. Fyrir utan feðgana eru Daníel Friðrik Böðvarsson gítar- leikari, Ingólfur Magnússon bassa- leikari og Ástvaldur Traustason pí- anóleikari í hljómsveitinni. Á tónleikunum koma líka fram marg- ir gestir með sveitinni, þar á meðal KK, Ingveldur Ýr Jónsdóttir óperusöngkona, Vigdís Ásgeirs- dóttir söngkona og nokkrar bak- raddir og hljóðfæraleikarar. „Við sjáum fyrir okkur allt að 12 manns á sviðinu þegar mest verður,“ segir Hrólfur. Tónlistin ríkur þáttur Tónlistaráhugi Hrólfs byrjaði á barnsaldri og hefur verið sem rauð- ur þráður í gegnum lífið. „Sem lítill pjakkur fór ég í Gítarskóla Emils en ekki leið á löngu þar til einn kennarinn sagði að menn yrðu ekk- ert endilega betri tónlistarmenn með námi og þá útskrifaði ég mig úr Gítarskólanum,“ rifjar hann upp. Hann segist samt hafa átt sín- ar fyrirmyndir; Led Zeppelin, Crosby, Stills, Nash & Young, Cat Stevens og fleiri, og haldið áfram að glamra á gítarinn. Auk þess hafi hann spilað mikið og sungið á kvöldvökum hjá skátunum og í skátaútilegum. Hrólfur hóf störf hjá slökkvilið- inu í Reykjavík 1980, varð slökkvi- liðsstjóri 1991 og gegndi embætt- inu til 2004. Þar tók hann þátt í að stofna hljómsveitina Eldbandið og fljótlega eftir að hann hóf störf hjá Reykjavíkurborg var hann eitt ár í Borgarbandinu. Hann byrjaði sem sviðsstjóri framkvæmda- og eigna- sviðs Reykjavíkurborgar 2004 og tók síðan við sem skrifstofustjóri skrifstofu eigna og atvinnuþróunar 2012. Meðfram námi í Kaupmanna- höfn 2009-2010 samdi hann nokkur lög og eftir heimkomuna fékk hann Jón Ólafsson og Stefán Má Magn- ússon til þess að vinna með sér 10 laga diskinn Tímaglasið og fékk bandið Swords of Chaos, sem sonur hans lék með, til þess að spila með sér lögin í garðpartíi á menningar- nótt 2010 auk þess sem haldnir voru útgáfutónleikar í Tjarnarbíói. 2014 lögðu feðgarnir Hrólfur og Ragnar Jón sín fimm lögin hvor til á diskinn Á okkar vegum og fengu Guðmund Pétursson, Jakob Frí- mann Magnússon og Þorgeir Guð- mundsson, tengdason Hrólfs, til liðs við sig og þá voru útgáfu- tónleikar haldnir í Sögusafninu. „Útgáfan og tónleikarnir hafa ekki farið hátt en nú langar mig til þess að dusta rykið af lögunum og halda þessa tónleika í Hörpu með stæl,“ segir Hrólfur. Hrólfur gerir sér ekki miklar væntingar um frægð og frama í tónlistinni en er opinn fyrir öllu og segir að hápunkturinn verði í haust, en miðar á tónleikana fara í sölu á harpa.is eftir helgi. „Ég get vel hugsað mér að verða tónlistar- maður,“ segir hann og horfir björt- um augum til framtíðar. Hrólfur næst í Hörpu  Hefur náð starfslokaaldri og snýr sér að öðru Morgunblaðið/Eggert Tónlistarmaður Hrólfur Jónsson vinnur að undirbúningi tónleika í Hörpu 12. október í haust.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.