Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Blaðsíða 2
Forsíðumyndin er frá Getty Images/ iStockphoto Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Heill! Sá þessa mynd og fór að hafa áhyggjur. Er ekki allt gott aðfrétta úr Móunum?“Þannig hljómaði skeyti frá kærum vini úti í bæ sem barst mér snemma í vikunni en hann vísaði þarna til myndar af tölvuskjá af tíu mest lesnu fréttunum á mbl.is. Þær fjölluðu svo að segja allar um hræðileg morð, mannskæð slys, morðtilraunir, stríð og andlát. Mest fór fyrir fréttum af grimmum örlögum spænska drengsins Gabriels en þarna var líka að finna fréttir um mannskæðasta flugslys í Nepal í áratugi og þyrluslys í Austurá í New York, þar sem enginn lifði af, eiturefnaárásina á gamla Rússann og dóttur hans í Bretlandi og andlát tískufrömuðarins Huberts de Givenchys sem ég verð reyndar að viðurkenna að ég hafði aldrei heyrt nefndan. Þá var O.J. gamli Simpson kominn upp á dekk með meinta morðjátningu. Loks var þarna frétt um börn í bráðri lífshættu í styrjöldinni í Sýr- landi. Það er gömul saga og ný að mál sem þessi veki áhuga lesenda fréttamiðla og án þess að hafa gert á því vísindalega rannsókn stenst þeim líklega ekkert snúning, nema þá helst nekt og brjóst. Birtist ein- hver einhvers staðar nakin/n eða sleppi brjóstum sínum lausum þá sýna dæmin að fréttin er fljót að rjúka upp vinsældalistann. Enda þótt mynd fylgi sjaldnast með. Þetta á eflaust við á heimsvísu en ef við lítum okkur nær þá má bæta við fréttum af því þegar einhver „frægur“ skellir húsinu sínu eða íbúðinni á sölu. Þá fer þorri þjóðarinnar af hjörunum. Nú eða ef eitthvað óvenjulegt hendir einhvern sem við könnumst við. Rataði ekki frétt um það að blóð- blettur hefði verið þveginn úr kjól Ragnhildar Steinunnar á elleftu stundu fyrir beina útsendingu Júróvisjón (eða Ísóvisjón) á toppinn yfir mest lesnu fréttirnar á mbl.is fyrir skemmstu? Svo eru það „lét sig ekki vanta“-fréttirnar. Þær drekkum við í okkur eins og móðurmjólkina. Þarna er ég að tala um myndasyrpur frá viðburðum, eins og tónleikum eða leikhúsfrumsýningum, þar sem fræga og fína fólkið kemur gjarnan saman og stillir sér brosandi upp fyrir framan myndavélina. Loks ber að nefna fréttir af heimsfrægu fólki sem statt er á Íslandi. Ennþá fara öll skilningarvit á yfirsnúning þegar slíkar fréttir berast enda þótt þetta sé í seinni tíð orðið nánast vikulegur viðburður. Var til dæmis ekki sjálfur Cristiano Ronaldo hérna í vikunni? Það ætlar að ganga hægt að berja úr okkur sveitamanninn! Er ekki allt gott að frétta úr Móunum? Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Þær fjölluðu svo aðsegja allar um hræðileg morð, mann-skæð slys, morðtilraunir, stríð og andlát. Anna Sigrún Gunnarsdóttir Já, helst föt af og til. Síðast keypti ég kjól og stuttermaboli í jólagjafir. SPURNING DAGSINS Verslar þú á netinu? Sigursteinn Hákonarson Voðalega lítið. Síðast keypti ég sokka frá Krabbameinsfélaginu til þess að styrkja Mottumars. Ástrós Sigfúsdóttir Já, ég kaupi mjög oft föt. Ég kaupi mikið af bolum. Leifur Páll Guðmundsson Já. Föt aðallega. Boli, buxur og peysur. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Morgunblaðið/Eggert AGNES BJÖRT ANDRADÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Rafbylgja með vandræði og hjarta í vasanum Agnes Björt Andradóttir spilar á tónlistarhátíðinni Sónar í Hörpu með hljómsveit sinni Sykur laugardag- inn 17. mars . Hægt er að næla sér í miða á midi.is. Af hverju Sykur? Insúlín. Við hverju má búast á tón- leikum Sykurs á laugardaginn? Rafbylgju með vandræði og hjarta í vas- anum. Fín súpa – heit súpa. Spánný lög og gamalgróin. Holdsflakk og himnarof. Hvað er það skemmtilegasta við að taka þátt í viðburði sem þess- um? Stemningin í loftinu þegar margt skapandi fólk kemur saman. Lyktin af ungviðinu og komandi straumum. Útrásin! Opnar Sónar dyr fyrir unga ís- lenska tónlistarmenn? Auðvitað er alltaf gaman að spila fyrir nýja hlustendur, hvort sem þeir eru erlendir eða ekki. Það er vel staðið að þessari hátíð og óneitanlega góð reynsla. Eru einhverjir tónlistarmenn sem þú mælir sérstaklega með á Sónar? Sunna, Lindstrøm, Countess Malaise og Under- world. Hvað er í vændum hjá þér? Myndband við Loving None, að taka upp Sykur plötu og klára námið mitt við Myndlistarskólann í Reykjavík.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.