Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Side 12
Þ að er ekkert launungarmál að sam- ræmd könnunarpróf í grunn- skólum landsins hafa verið gagn- rýnd, ekki bara núna í ár þegar tæknilegir annmarkar settu prófin úr skorðum, þar sem til dæmis aðeins 1.700 nemendur af 4.000 gátu lokið prófi í íslensku, heldur einnig síðustu árin. Hefur gagnrýnin meðal annars snúið að því að prófin séu ekki í takt við nútímakennsluaðferðir, séu gamaldags og trufli skólastarf. Prófin hafa líka verið gagnrýnd fyrir innihald og spurningar og má þar einkum nefna ís- lenskuprófin, sem málfræðingar, kennarar og foreldrar hafa fundið ýmislegt að, en á næstu síðum er fjallað um þessa gagnrýni frá ýmsum hliðum. Ákveðið hefur verið að nemendum í 9. bekk gefist kostur á að þreyta að nýju könnunar- prófin í ensku og íslensku og er þátttaka val- kvæð, samkvæmt ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra og Menntamálastofnun hefur ráðið þrjá óháða sér- fræðinga til að fara yfir ferlið við fyrirlögn sam- ræmdra könnunarprófa og leitað ráða hjá fyrr- verandi forstöðumanni Námsmatsstofnunar. Hafsteinn Karlsson, skólastjóri Salaskóla í Kópavogi, segir að nemendur hafi í ár orðið fyr- ir miklu áfalli. „Ég held það hafi ekki komið nógu skýrt fram í þessu öllu að þetta fór sérlega illa í þá. Krakkarnir voru búnir að undirbúa sig ofboðs- lega vel og leggja mikinn metnað í þetta, sum voru jafnvel búin að kaupa sér aukatíma. Þetta fór sérstaklega illa í nemendur sem voru að þreyta prófin í séraðstæðum, þá sem þurfa les- aðstoð eða lengri tíma en líka bara alla. Það fóru nemendur að gráta og þótt tæknivandamálið sé leyst situr þetta eftir í nemendum og okkur starfsfólki skólans líka. Manni finnst mikið á nemendur lagt að það eigi að endurtaka þennan leik,“ segir Hafsteinn. Umdeild samræmd próf Skólasamfélagið er í uppnámi eftir fyrir- lögn samræmdra prófa í 9. bekk í síðustu viku, þar sem stór hluti nemenda tók prófið við óviðunandi aðstæður. Tæknilega hliðin er þó aðeins einn þáttur gagnrýni á prófin. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Getty Images/iStockphoto ÚTTEKT 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018 Menntamálastofnun, MMS, tók að fullu til starfa haustið 2015 og er stjórnsýslustofnun á sviði menntamála sem skal stuðla að auknum gæðum skólastarfs og framförum í þágu menntunar. Verkefni sem áður voru á hendi Námsgagna- stofnunar, Námsmatsstofnunar og mennta- og menningarmálaráðuneytis eru nú hjá MMS. Af stórum verkefnum MMS ber stofnuninni til dæmis að sjá grunnskólanemendum fyrir fjöl- breyttum og vönduðum námsgögnum sem eru í samræmi við aðalnámskrá, einnig á MMS að geta haft hlutverk varðandi námsgögn á öðrum skólastigum. MMS á þá að hafa eftirlit og meta með mælingum árangur af skólastarfi, svo sem með umsjón samræmdra prófa í grunnskólum, og MMS undirbýr skimunarpróf sem nær til bæði leik- og grunnskóla. Stofnunin sér um framkvæmd aðgangsprófa í Háskóla Íslands og hefur einnig að segja um eft- irlit og mat á leik-, grunn- og framhaldsskólum. Stofnunin sinnir eftirliti og mælingum á stöðu skólakerfisins út frá alþjóðlegum viðmiðum, annast söfnun, greiningu og birtingu upplýsinga um menntamál og veitir á grundvelli þeirra stjórnvöldum, fagaðilum og almenningi upplýs- ingar og leiðbeiningar. MMS kemur að framkvæmd ýmissa stjórn- sýsluverkefna, til dæmis viðurkenningu einka- skóla á framhaldsskólastigi og framhalds- fræðsluaðila, innritun nemenda í framhalds- skóla og undirbúningi að staðfestingu náms- brauta- og áfangalýsinga framhaldsskóla, m.a. í tengslum við styttingu náms til framhalds- skóla. HLUTVERK MENNTAMÁLASTOFNUNAR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.