Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Side 16
VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.3. 2018 E þíópía bíður Solveigar Sveinbjörns- dóttur handan við hornið; land með litríka menningararfleifð og fallegt mannlíf. Í dag býr fólk þar við hræðilegan raunveruleika þurrka og átaka og milljónir manna eru í neyð. Hjálparstarfsmenn leggja sitt af mörkum til að bjarga mannslífum og er Solveig ein af þeim. Blaðamaður nær að grípa hana í spjall nokkrum dögum fyrir brottför. Á notalegu kaffihúsi gleymum við tímanum enda er af nógu að taka; sögurnar eru svo margar og áhugaverðar að það er í raun efni í heila bók. Solveig segir sögur frá framandi löndum og ótrúlegum ævintýrum en þau eru óþrjótandi verkefni hjálparstarfsins. Óbærilegur hiti, skordýr, ónýtir vegir, drullusvað, sníkjudýr og hættulegar skotárásir eru vinnuaðstæður sem hún býr við oft á tíðum í vinnu sinni erlendis. Milljónir í neyð Eftir nám hér heima í félagsráðgjöf hélt Sol- veig til Ástralíu þar sem hún kláraði meist- aranám í friðar- og átakafræðum (Peace and Conflict Studies) en hún hlaut styrk frá Rót- arýhreyfingunni til námsins. Síðan 2006, með nokkrum hléum, hefur Solveig unnið í fátæk- um og oft stríðshrjáðum löndum. Í Srí Lanka, þar sem hún hefur dvalið þrisvar, vann hún við friðargæslu þegar stríð stóð þar yfir á milli stjórnvalda og Tamil Tígra og síðar fór hún í tvígang þangað eftir Tsunami-flóðið í sjálf- boðastarf í barnavernd með frönskum hjálp- arsamtökum. Hún bjó í ár í Súdan, áður en landið breyttist í Suður-Súdan, þar sem heim- ili hennar var ósköp fátæklegt tjald í af- skekktu þorpi. Á Íslandi hefur hún tekið að sér hlutverk fé- lagsmálastjóra um tíma í sveitarfélögunum Sandgerði og þánefndum Bessastaðahreppi. Hún hefur unnið hjá Reykjavíkurborg með hælisleitendunum og nú síðast með kvóta- flóttafólki í Árborg og Hveragerðisbæ. „Mér fannst dálítið erfitt að hætta eftir rúmt ár hjá sveitarfélagi Árborgar og Hvera- gerðisbæ enda margt þar af góðu samstarfs- fólki sem ég er þegar farin að sakna. Sam- félagið í heild sinni fannst mér alveg til fyrirmyndar í móttökunni sem og framlag Rauða krossins. Svo margir lögðu sitt af mörk- um, hvort sem það tengdist tómstundum barnanna eða fyrirtækjum sem buðu vinnu og studdu fólkið fyrstu skrefin á atvinnumark- aðnum á Íslandi. Menningarmiðlari var einnig til staðar til að brúa bil ólíkra menningarheima og aðstoða við framgöngu gagnkvæmrar að- lögunar sem er svo nauðsynleg. Það hefur ver- ið mikil reynsla og gott að hafa þekkingu og innsýn í þessi ólíku verkefni; með hælisleit- endum, fylgdarlausum börnum og svo kvóta- flóttafólki á Íslandi,“ segir Solveig. „Það er margt í mótun í þessum ört vaxandi málaflokki en það hefur tekið langan tíma. Í upphafi tel ég að ekki hafi tekist að bregðast hratt og vel við neyð sem tengdist auknum fjölda hælisleitenda í leit að vernd á Íslandi. Í neyð er ekki hægt að bíða eftir stórum kerfis- breytingum heldur þarf að hafa hraðar hendur og móta samræmt verklag allra aðila. Sam- hliða er hægt að gefa tíma í kerfisbreyting- arnar. Fórnarkostnaðurinn á ekki að vera neinn. Enginn á að þurfa að líða fyrir hægfara ferla þegar það er hægt að vinna faglegra og hraðar án mikils tilkostnaðar. Fagþekking spilar þarna inn í sem oft er ekki nýtt nægi- lega vel. Því miður er þetta raunveruleikinn víðar, eins og í málefnum fatlaðra og geðfatl- aðra. Við eigum að geta gert betur,“ segir Sol- veig. „Svo fer maður í þessi stóru verkefni þar sem milljónir eða hundruð þúsunda eru á flótta og það þarf að búa til verkferla í kring- um þá vinnu,“ segir Solveig sem nú er flogin til Eþíópíu í verkefni hjá Unicef á vegum utanríkisráðuneytisins. „Þegar ég var búin að taka ákvörðun fyrir nokkrum vikum fann ég hvernig allar frumur líkamans tóku kipp. Af því að ég er búin að vera dálítið lengi núna á Íslandi, í rúmt ár samfellt. Ég upplifi mig eins tré, nú þarf ég að fara að hrista af mér moldina og umpotta mig. Ég fann hvernig frumurnar byrjuðu að und- irbúa sig. Svo fer maður að hugsa, treysti ég mér í þetta? Er ég tilbúin? Við sem getum ætt- um að reyna að hjálpa, að reyna að draga úr þjáningum. Það eru svo margir að leggja sitt af mörkum einmitt til þess, hvort sem það er í sköpun, rannsóknum, faglegri fréttamennsku eða heiðarlegum viðskiptum. Þetta er mín leið að leggja mitt af mörkum. Þannig ég má ekki veigra mér við eða hætta við bara af því að ég er smeyk við aðstæðurnar.“ Þurrkar, flóð og átök í Eþíópíu Í Eþíópíu kemur Solveig til með að vinna í sex mánuði að verkefnum sem tengjast barna- vernd í suðausturhluta landsins, í Sómalí- og Orómía-héraði. „Ástandið hefur lengi verið erfitt; þurrkar, flóð á einstaka svæðum og átök. Það eru miklir þurrkar núna og fyrirséð að það verður upp- skerubrestur, fjórða árið í röð. Þannig að það hefur verið neyðarástand á þessu svæði til langs tíma en eftir 2016 hafa aðstæður fólksins versnað til muna, sérstaklega þar sem fólk er ekki eingöngu að reyna að lifa af sökum upp- skerubrests, heldur lifir í ótta og óöryggi sem fylgir átökum sem blossa upp víða á landa- mærum héraðanna,“ segir Solveig. Hún segir að rúm milljón manns hafi þurft að flýja heimili sín. „Það eru þeir sem urðu fyrir barðinu á átökunum en svo eru aðrar sjö milljónir sem metið er að þurfi neyðaraðstoð í formi matar og annarra lífsnauðsynlegra gagna, þar á meðal 3,5 milljónir barna. Þeir sem þurfa mestu aðstoðina hafa orðið fyrir barðinu á hvoru tveggja; þurrkum og átökum. Þetta er fólk á flótta innan síns lands,“ segir Solveig sem verður með starfsstöð bæði í höfuðborginni Addis Ababa og í héruðunum og mun því vinna í nálægð við flóttamannabúðir sem dreifast vítt um héruðin tvö. „Mitt hlutverk er að meta nánar hvar neyðin er mest, samræma vinnulag og sinna eft- irfylgd verkefna í samvinnu við stjórnvöld. Nú þegar er vitað um 12.500 börn sem hafa orðið viðskila við foreldra sína,“ segir Solveig en hún hefur m.a. sérhæft sig í verkefnum tengdum fylgdarlausum börnum. „Ástandið í Eþíópíu í dag hefur mjög lítið komið fram í fréttum, og meira að segja þegar mér bauðst þetta starf nýlega þá þurfti ég að lesa mér til um ástandið. Það eru önnur stærri stríð og átök sem komast í fréttir því upp- skerubrestur er svo tíður í Eþíópíu og nær því ekki athygli alþjóðasamfélagsins. En vegna átakanna sem bætast við þá er þetta stærri vandi en fólk gerir sér grein fyrir.“ Solveig hefur tvisvar áður unnið í Eþíópíu fyrir Unicef, í sex mánuði hvort skipti. „Fyrst var ég að vinna í stóru verkefni með yfirvöld- um að loka heimilum fyrir munaðarlaus börn rekin af yfirvöldum og félagsamtökum sem ekki uppfylltu lágmarksumönnunarstaðla. Börn voru í raun að deyja á þessum stofn- unum. Það þurfti að bregðast hratt við og loka stofnunum og finna skjól og vernd fyrir börn- in,“ útskýrir hún. „Í seinna skipti var ég að vinna í flótta- mannabúðum á landamærum við Suður-Súdan þar sem ég stýrði samstarfsverkefni í barna- vernd í flóttamannabúðum og nærliggjandi bæjum,“ segir Solveig. Um var að ræða sam- starfsverkefni þar sem Unicef, Rauði kross- inn, Barnaheill, Plan International og stjórn- völd tóku höndum saman í þeim tilgangi að veita flóttafólki hjálp með áherslu á vernd og stuðning við börn. „Það er margt sem hefur verið erfitt að sjá og upplifa og kannski þess vegna er ég að þessu. Fyrir mér er þetta forgangur alls.“ Bjó með kvikindunum í tjaldi Hvernig var að búa í tjaldi í heilt ár í Súdan? „Við sváfum í venjulegum tjöldum eins og þeim sem maður man eftir úr útilegum sem barn á 8. áratugnum. Þetta var svona týpískt grænt hermannatjald. Það var lítil girðing á milli flóttafólksins og okkar starfsmannatjalda og nálægðin því mikil,“ segir hún og rifjar upp þessa sérstæðu lífsreynslu. „Á morgnanna vaknaði ég við sólarupprás við sóphljóð og seiðandi söng nágrannanna minna flóttafólksins en fyrstu verkefni dagsins þeirra voru að sópa saman þurri lausri mold- inni af harðri jörðinni, safna spreki, kveikja undir hlóðum og hita vatn. Litlu börnin voru nývöknuð, berrössuð að skottast um. Ég fylgd- ist oft með þeim á meðan ég beið í sturturöð- inni. Þetta voru þær fallegu stundir sem nærðu mann,“ segir hún. „En svo var það annar raunveruleiki sem viðkom praktískri aðstöðu minni sem ekki vek- ur eins sælar minningar. Eins og þetta heimili mitt! Þegar rigndi þá lak tjaldið. Ég setti alltaf dótið mitt í annan beddann, en það voru tveir beddar í tjaldinu. Á regntímabilinu var allt rennandi blautt og kvikindin komu inn. Ég vaknaði við froskakvak undir rúminu og ef ég fór burt í nokkra daga var komið geitungabú þar inn. Svo voru alls kyns lirfur í alla vega lit- um eftir mánuðum. Stundum rauðar og svart- ar, stundum grænar og gular. Risastórar og í raun mjög fallegar. Ég fékk eitthvert sníkju- dýr í magann frá menguðu vatni sem varð til þess að ég fékk enga næringu og missti mátt og mörg kíló. Ég var einnig óheppin að fá ann- ars konar sníkjudýr eða pöddu í kálfann sem byrjaði að grafa sig inn hægt og rólega þannig að í lokin varð til stærðar hola inn að beini. Þá var mér kippt út til Khartoum, höfuðborgar Súdans, og ég sett beint á sýklalyf,“ segir Sol- veig og brosir á meðan blaðamaður gapir í for- undran. „Ég bjó líka í smátíma í moldarkofa en þar flugu inn leðurblökur á nóttunni. Ég nennti ekki að kippa mér upp við það. Enda lítið sem ég gat gert. Það var gat á þakinu og ekki for- gangur að ganga í að laga það. Síðan voru það fljúgandi kakkalakkarnir sem sóttust í tölvu- birtuna á kvöldin og festust í hárinu á mér þegar setið var utandyra við skýrsluskrif í lok dags. Það var ekkert annað að gera en að slá þá frá sér þar til maður gafst upp enda varð maður bara að venjast sumu.“ Hvernig tilfinning er það eftir langan vinnu- dag að þurfa að skríða inn í rakt tjald sem er allt fullt af pöddum og öðrum kvikindum? „Ég hafði tölvuna mína og horfði á Grey’s Anatomy á kvöldin; Meredith og McDreamy voru algjörir bjargvættir og bestu vinir mínir á löngum kvöldum þegar rigndi grimmt,“ segir hún og hlær. En Solveig átti reyndar fleiri vini en læknana á skjánum. „Við vorum um 25 hjálparstarfsmenn, bæði alþjóðastarfsmenn og heimamenn, sem áttum fasta búsetu í Agok-búðunum og svo voru aðr- ir sem komu og fóru. Þannig að við höfðum félagsskap hvert af öðru og um helgar var grilluð geit og við fengum okkur bjór. Geitin var tjóðruð við tré inni í búðunum og um helg- ar vaknaði maður við umkomulaust jarm. Síð- an var henni slátrað og daginn eftir komu litlu kiðlingarnir í sama lit að leita að mömmu. Þá vorum við búin að borða hana. Hræðilegt fólk! Þetta var eins og með fljúgandi kakkalakkana, sumu varð maður bara að venjast,“ segir Sol- veig og hlær. „Annars var alltaf sami maturinn. Dal, sem er baunaréttur, og seigt geitakjöt með rauðri sósu. Og okra, sem er svona slímugt grænmeti en mjög hollt. En sósan var rosalega góð, það bjargaði þessu alveg. Maður gerir engar kröf- ur í þessum aðstæðum. Þetta er bara vinna og þetta var lúxus hjá okkur á fá framreiddan mat á hverjum degi.“ Skotárás á þyrluna Hefurðu lenti í lífsháska? „Já, í Súdan. Ég var ráðin af Unicef til þess að fara í uppbyggingarstarf á þessu svæði. Ég kom með þyrlu á staðinn því vegurinn var ekki öruggur vegna átaka. Ég fór beint til öryggis- varðarins til þess að fá upplýsingar um ástand- ið. Hann var þar í rólegheitunum með fætur uppi á borði og samtalið var mjög afslappað í upphafi. En allt í einu brutust út átök, og ég nýkomin á staðinn,“ segir Solveig sem hafði aðeins verið þarna í um tvær klukkustundir. „Það höfðu verið einhver smáátök kvöldinu áður en í þessu mögnuðust átökin til muna. Þá var sett í gang neyðarbrottflutningur starfs- fólks en það þurfti að koma öllum burtu af staðnum, meira að segja læknum án landa- mæra sem fara yfirleitt síðastir af vettvangi. Ég fór með fyrstu ferð í þyrlu ásamt öðrum konum en við nokkrar gerðum athugasemdir við þá forgangsröðun. Við vildum að hjálpar- starfsmenn sem ættu ung börn hefðu forgang, óháð kyni. En við sáum svo að það gekk ekkert að malda í móinn enda allt fyrirfram ákveðið Hvert líf er dýrmætt Í rúman áratug hefur Solveig Sveinbjörnsdóttir verið á flakki um heiminn við hjálparstörf en hún hefur búið í Srí Lanka, Sýrlandi, Eþíópíu, Filippseyjum, Gana, Fiji og í Súdan þar sem hún bjó í heilt ár í tjaldi ásamt froskum, lirfum, leðurblökum og fljúgandi kakkalökkum. Síðastliðið ár starfaði hún með kvótaflóttamönnum í Árborg og Hveragerðisbæ en er nú flogin á vit nýrra ævintýra og áskorana. Solveig segir hvert líf dýrmætt og finnur hjá sér þörf að hjálpa fólki í neyð. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Solveig er hér umkringd fylgdarlausum börnum í Súdan árið 2008 en þar vann hún á vegum Unicef. Börnin höfðu orðið viðskila við fjölskyldur sínar. Solveig lenti í skotárás þegar hún var í Súdan og þurfti að flýja undan kúlunun. Skotið var á þyrl- una sem kom henni burt af svæðinu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.