Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Page 23
18.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
Eldbökuð pítsa
með beikoni,
döðlum og gráðosti
PIZZADEIG
400 g hveiti, helst „00“
250 ml vatn
10 g salt
1.5 g ger
Blandið volgu vatni (við
stofuhita) við gerið og leyfið
að liggja í 10 mínútur.
Setjið salt út í vatnið og
hrærið vel saman.
Vigtið hveitið í skál og
hellið svo vatninu saman við
hveitið og blandið saman.
Þegar þetta er komið
ágætlega saman veltið
þessu úr skálinni og hnoðið
á borði í 10 mínútur.
Setjið aftur í skálina og
látið hefast í 1 klukkustund
við stofuhita.
Takið deigið aftur úr skál-
inni og skiptið í þrennt og
mótið kúlur úr því.
Geymið kúlurnar undir
rökum klút í minnst 2 tíma
en allt að 4 tímum.
Stillið ofninn á hæsta hita
og hafið blástur á. Setjið
ofnplötu neðst í ofninn sem
snýr öfugt. Kveikið á ofni 40
mínútum áður en pítsa er
sett inn. Gott er að setja
pítsuna á smjörpappír og
trébretti áður en hún fer í
ofn.
ÁLEGGIÐ
pizzasósa að eigin vali
rifinn mozzarella ostur
niðurskornar beikonsneiðar
döðlur, skornar í smá bita
mulinn gráðostur, eftir smekk
Setjið áleggið á pítsuna í
þessari röð: sósa, ostur,
gráðostur, beikon og döðl-
ur. Rennið pítsunni svo inn í
ofninn af trébrettinu. Takið
hana út þegar þið sjáið að
hún er tilbúin.
100 g rjómaostur
10 g majónes
10 g rifinn ostur, t.d. tind-
ur, ísbúi eða pizza-ostur
1 msk eplaedik
dass pipar mulinn
5 g Ölverk lauksulta (sjá
hliðaruppskrift)
Setjið allt í skál og
blandið saman með
höndunum.
Setjið í eldfast mót og
stráið auka osti yfir og
bakið á blæstri við
200°C þar til þetta fer
að „búbbla“.
Mjög gott með Pret-
zel eða jafnvel nachos
flögum.
ÖLVERK LAUKSULTA
200 g rauðlaukur
50 g púðursykur
5 g olía
1,2 g salt
1 dl af bjór
dass af pipar
Ölverk
bjórostadýfa
Skerið lauk í 3 mm
sneiðar. Hitið olíu í
potti og setjið svo lauk
og salt út í. Steikið
hann þar til hann er
gegnsær, í u.þ.b. 10
mínútur.
Bætið bjór út í og
næst er sykrinum
hrært saman við. Sjóð-
ið þar til nánast allur
bjór er gufaður upp,
eða í u.þ.b. klukku-
tíma. Hrærið reglu-
lega í pottinum.
Smakkið til með salti
og pipar.
Það má nota hvaða
bjór sem er í sultuna
en best er að nota
vandaðan kraftbjór frá
íslensku örbrugghúsi.
Þessi sulta er einnig
góð með mörgum ost-
um, á hamborgarann
eða með ostapítsu.
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Súkkulaði- og heslihnetu-
smjörs Nutella
nokkur jarðarber
1 banani (eða meira ef þarf)
flórsykur til skrauts
Búið til venjulegan pítsu-
botn. (Sjá uppskrift annars
staðar á síðu.) Fletjið
botninn út og gatið með
gafli. Setjið hann á smjör-
pappír og bakið í ofninum
á háum hita (tekur stuttan
tíma). Látið hann kólna
aðeins og smyrjið svo með
súkkulaðinu. Skerið jarð-
arber og banana í litla bita
og raðið á pítsubotninn.
Stráið að lokum flórsykri
yfir.
Eftir-
réttarpítsa