Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.03.2018, Page 40
SUNNUDAGUR 18. MARS 2018
www.husgagnahollin.is
558 1100
Fjölbreytt og
spennandi fyrir
páskana í Höllinni
www.husgagnahollin.is
V E
F V E R S L U N
A
LLTAF OP
IN
SALLY
Hægindastóll. Brúnt
eða svart PU-leður.
AFSLÁTTUR
22%
89.692 kr. 114.990 kr.
BRISTOL
Hægindastóll.
Grátt
sléttflauel.
29.993 kr. 39.990 kr.
AFSLÁTTUR
25%
NEW
WILSON
Borðstofustóll.
Tágarseta.
Svört eða
viðarlit
viðargrind
og lappir.
9.993 kr.
13.990 kr.
AFSLÁTTUR
29%
„Það má alveg slá því föstu að þetta sé stóll úr rakarastofunni í
Eimskipafélagshúsinu og mjög líklega einn af stólunum sem
voru þar þegar stofan var opnuð árið 1921,“ segja Þorberg Ólafs-
son og Kolbeinn Hermann Pálsson, sem báðir störfuðu á stof-
unni sem afi þess síðarnefnda, Sigurður Ólafsson, og síðar faðir
hans, Páll Sigurðsson, ráku. Þegar Þorberg og Kolbeinn hófu
störf á stofunni á sjöunda áratugnum voru komnir nýir stólar af
gerðinni UG en stóllinn á myndinni er af gerðinni REX.
Tilefni heimsóknar Þorbergs og Kolbeins í geymsluhúsnæði í
Reykjavík að skoða téðan stól er símtal frá eiganda hans, Krist-
birni Haukssyni, sem hafði samband við Morgunblaðið eftir að
grein um rakarastofuna í Eimskipafélagshúsinu birtist fyrir
nokkrum vikum. Kristbjörn keypti stólinn á Akureyri fyrir
tveimur árum en þar á undan var hann um tíma á Ísafirði. „Ég
ætlaði að hafa hann heima og hafa það huggulegt í honum en
hann er alltof þungur, um 400 kg, þannig að ég kom honum vel
fyrir hérna í geymslunni,“ segir Kristbjörn sem safnar gömlum
hlutum af ýmsu tagi, meðal annars bílum og leikföngum.
Kolbeinn Hermann Pálsson
og Þorberg Ólafsson bregða
á leik í stólnum góða.
Morgunblaðið/Hari
Hundrað ára rakarastóll
Stóllinn virkar ennþá og er hin ágætasta mubla.
Upprunalegur stóll úr rakarastofunni í Eimskipshúsinu ennþá í fínu ástandi.
Björn Bjarnason, bæjarfulltrúi
Kommúnistaflokksins, flutti til-
lögu um það fyrir réttum áttatíu
árum, að bæjarstjórn Reykjavík-
ur mótmælti þeirri „hlut-
drægni“ útvarpsins að segja frá
því, að Jónas Jónsson, bæjar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
ætlaði að tala um byggingu nýs
ráðhúss. Þetta væri gert í áróð-
ursskyni fyrir ákveðinn flokk.
Var Björn hinn byrstasti, að sögn
Morgunblaðsins.
Á fundi bæjarstjórnar kvaðst
Jónas enga tillögu ætla að flytja
um málið, og hann vissi ekki
hvort hann myndi gera það síð-
ar, þá helst til að skipa nefnd í
málið, því sennilega væri ekki
ráðlegt að gera neitt í málinu,
nema að ákveða hvar ráðhúsið
ætti að vera, þegar það kannski
einhvern tíma yrði byggt. Því
sem stæði væri líklega enginn
byggingameistari til, sem fær
væri um að taka málið að sér.
Þá flutti Jónas dagskrártillögu
um það, að vísa tillögu Björns
frá, þar sem bæjarstjórn réði
ekki fréttum útvarpsins, og hann
hefði ekki beðið fyrir fréttina.
Þótti bæjarfulltrúum þessar um-
ræður skipta heldur litlu máli og
voru báðar tillögurnar felldar.
GAMLA FRÉTTIN
Deilt um
keisarans
skegg
Hvorugur bæjarfulltrúanna, Björn Bjarnason kommúnisti né Jónas Jónsson
framsóknarmaður, lifðu til að sjá Ráðhús Reykjavíkur rísa við Tjörnina.
Morgunblaðið/Heiddi
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Roger Federer
tennisleikari
Ólafur Adolfsson
bæjarfulltrúi á Akranesi
Quentin Tarantino
kvikmyndaleikstjóri