Morgunblaðið - 27.04.2018, Side 8

Morgunblaðið - 27.04.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 Gunnar Rögnvaldsson segir að„níu af hverjum tíu gjaldeyr- isviðskiptafærslum í heiminum eru í Bandaríkjadölum. Umfangið er 5,1 billjón dala á dag, segir í grein Wall Street Journal í dag Tveir þriðju allra forða seðla- banka heimsins eru í Bandaríkja- dölum Evran hefur sem forðamynt seðlabanka fallið úr 28 prósentu hlutfalli niður í 20 prósent eftir að í ljós kom að hún leiðir þau lönd sem tóku hana upp frekar inn í þjóðargjald- þrot, en til hag- sældar.    Hin kínverska mynt undra-lands á leið í japanskt hrun er 1,2 prósent af gjaldeyr- isforðum seðlabanka heimsins og hún er notuð í 1,6 prósentum af greiðslum. Það undraland ásamt Íran bindast nú samtökum um að skáka Bandaríkjadal. Með hverju, veit ég hins vegar ekki.    Fyrir evrulöndin snýr máliðmeð evruna þannig að þeim var kastað á bál pólitísks rétt- trúnaðar. Á því báli er efnahag evruríkja fórnað svo að pólitísk elíta í ESB-klaustrum geti baðað sig í ösku þeirra á báli rétttrún- aðar, og pískað sig daglega með evrum. Sjálfspyntingar í nafni rétttrúnaðar eru enda evrópsk sérfræði. Næsta skref evrulanda niður til botns er þegar tekið.    Heimilum evrulanda var rúst-að svo að stærstu evruríkin gætu flutt út. Eru þau nú svo út- flutningsháð að troll alþjóðavæð- ingar sem verið er að draga inn, áður tog þess tekur togaraflota heimsins niður, mun koma ESB endanlega fyrir sem hinum nýja þriðja heimi evruríkis. Evrusvæð- ið sjálft er í trollinu.“ Gunnar Rögnvaldsson Í fáum dráttum sýnt STAKSTEINAR Læknarnir Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson verða með fyrirlestur í Ísafjarðarbíói í dag, föstudag, kl. 18 í samstarfi við Ferðafélag Íslands. „Ósnortin víð- erni á Íslandi“ nefnist yfirskrift fundarins. Þar munu þeir Tómas og Ólafur sýna ljósmyndir og drónaskot frá miðhálendi Íslands en einnig af fossunum og víðernunum upp af Ófeigsfirði á Ströndum, þar sem áform hafa verið uppi um að reisa Hvalárvirkjun. Fyrirlesturinn tekur um 40 mín- útur og á eftir fara fram umræður. Aðgangur er ókeypis en búast má við nokkurri þátttöku þar sem fjöldi gesta er staddur á Ísafirði vegna Fossavatnsgöngunnar. Ósnortin víðerni sýnd á Ísafirði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ófeigsfjörður Fjallað verður m.a. um fossana í firðinum vestra. eldu á milli fimm girnilegra tegunda f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru ægilegir, ljúffengir og fljótlegir. ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS V a þ Veður víða um heim 26.4., kl. 18.00 Reykjavík 5 skýjað Bolungarvík 3 alskýjað Akureyri 4 alskýjað Nuuk 1 léttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló 9 heiðskírt Kaupmannahöfn 9 skúrir Stokkhólmur 11 skúrir Helsinki 11 skúrir Lúxemborg 12 heiðskírt Brussel 14 heiðskírt Dublin 10 skúrir Glasgow 11 léttskýjað London 13 skúrir París 15 heiðskírt Amsterdam 11 léttskýjað Hamborg 10 skúrir Berlín 11 skúrir Vín 12 rigning Moskva 9 skýjað Algarve 20 léttskýjað Madríd 24 heiðskírt Barcelona 20 léttskýjað Mallorca 18 heiðskírt Róm 23 heiðskírt Aþena 24 léttskýjað Winnipeg 8 léttskýjað Montreal 8 rigning New York 13 léttskýjað Chicago 12 heiðskírt Orlando 23 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 27. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:13 21:39 ÍSAFJÖRÐUR 5:04 21:57 SIGLUFJÖRÐUR 4:47 21:41 DJÚPIVOGUR 4:39 21:11 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Bergur Ebbi, rithöfundur og ljóð- skáld, og Ólafur Stefánsson, frum- kvöðull og fyrrverandi landsliðsfyr- irliði í handbolta, voru kosnir í stjórn UN Women á aðalfundi samtakanna í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Ís- landi. Elín Hrefna Ólafsdóttir lög- fræðingur og Karen Áslaug Vignis- dóttir hagfræðingur gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Íslenska landsnefndin er fyrir vikið fyrsta landsnefnd stofnunarinnar sem skipuð er til jafns konum og körlum. Umsvif íslenskrar landsnefndar UN Women hafa aukist mikið und- anfarin ár og jukust framlög lands- nefndarinnar til verkefna UN Wo- men um 40% á milli áranna 2016 og 2017. Framlag landsnefndarinnar til alþjóðlegra verkefna árið 2017 var 94 m.kr., bæði söfnunartekjur sem og tekjur af söluvarningi, jókst veru- lega en 83% aukning var á tekjum af söluvarningi frá fyrra ári, að því er segir í fréttatilkynningu samtak- anna. Árið 2017 sendi íslensk lands- nefnd UN Women annað árið í röð hæsta framlag til verkefna UN Wo- men, allra fimmtán landsnefnda og þá óháð höfðatölu. Ný stjórn UN Women á Íslandi Ljósmynd/aðsend Jafnrétti Stjórn UN Women. Á myndinna vantar tvo meðlimi.  Bergur Ebbi og Ólafur Stefánsson kosnir í stjórnina  Jafnt kynjahlutfall

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.