Morgunblaðið - 27.04.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
KRINGLU OG SMÁRALIND
HERRASKÓR
SKECHERS FLEX ADVANTAGE HERRASKÓR MEÐ STÖMUM BOTNI SEM
HENTAR VEL TIL VINNU Á SLEIPU OG HÁLU GÓLFI. STÆRÐIR 41-47,5
ERUM EINNIG MEÐ DÖMUTÝPUR MEÐ SAMA BOTNI.
VERÐ: 12.995
Uwe Beyer, akstursþjálfari frá
Mercedes Benz, hefur verið hér á
landi við að leiðbeina íslenskum
rútubílstjórum. Fer þjálfunin fram
á vegum bílaumboðsins Öskju sem
flutti inn nýja rútu m.a. til þessa
verkefnis. Rútan er af gerðinni To-
urismo, sem hefur verið endur-
byggð og breytt í útliti, sem m.a.
hefur í för með sér minni eldsneyt-
iseyðslu.
Að sögn Guðna Sveins Theodórs-
sonar, ökukennara og milligöngu-
manns í verkefninu, er Uwe mörg-
um íslenskum bílstjórum að góðu
kunnur í gegnum akstursþjálfun-
arnámskeið sem Ökuland ökuskóli
hefur haldið á sérhönnuðu æfinga-
svæði við Hockenheim-kappakst-
ursbrautina í Þýskalandi.
Íslenskum rútubíl-
stjórum leiðbeint
Rútuakstur Uwe Beyer, til vinstri, og
Guðni Sveinn Theodórsson frá Ökulandi.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Nýr Landspítali ohf (NLSH) hefur
auglýst útboð, í samstarfi við Rík-
iskaup og Framkvæmdasýslu rík-
isins, vegna framkvæmda við Hring-
brautarverkefnið. Um er að ræða
framkvæmdir vegna jarðvinnu fyrir
meðferðarkjarnann, götur, göngu-
stíga, bílastæði og annan lóðafrá-
gang, ásamt fyrirhuguðum bílakjall-
ara. Tilboðin verða opnuð hjá
Ríkiskaupum 6. júní nk.
Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri NLSH, segir í samtali
við Morgunblaðið að lengi hafi verið
beðið eftir þessum áfanga. Það hefur
löngum verið um það deilt hvort Nýr
Landspítali eigi að rísa við Hring-
braut eða annars staðar. Aðspurður
hvort hann teldi, nú þegar fram-
kvæmdir væru komnar á þetta stig,
að deilum um staðsetningu Nýja
Landspítalans við Hringbraut væri
hugsanlega lokið, sagði Gunnar:
„Við höfum verið að vinna eftir lög-
um númer 64 frá 2010, sem kveða á
um það að verkefnið skuli fara fram
við Hringbraut. Auðvitað eru ólíkar
skoðanir gagnvart stórum fram-
kvæmdum. Það verða alltaf ein-
hverjir sem munu gagnrýna Hring-
brautarvalið.“
Gunnar segir að vissulega megi
búast við miklu raski, enda mikil
framkvæmd hér á ferð. Verkefnið sé
ekki óumdeilt.
Gunnar segir að kostnaðurinn við
þennan áfanga verði mikill og hlaupi
á milljörðum, enda um að ræða alla
jarðvinnu fyrir meðferðarkjarnann,
auk mjög stórs hluta af gatnagerð-
arverkefninu.
Hann segir að útboð vegna jarð-
vinnu við nýjan meðferðarkjarna sé
stór áfangi í Hringbrautarverkefn-
inu. Nýr meðferðarkjarni, sem muni
verða 66 þúsund fermetrar, muni
gerbreyta allri aðstöðu fyrir sjúk-
linga, starfsmenn og aðstandendur.
Samkvæmt áætlunum muni bygg-
ingu spítalans verða lokið 2024 í
samræmi við framlagða fjár-
málaáætlun 2019-2023. Fulln-
aðarhönnun standi nú yfir og hafi
verið notuð aðferðarfræði not-
endastuddrar hönnunar sem leiði
það af sér að hagsmunaaðilar taki
virkan þátt í hönnunarferlinu.
„Hönnun hússins er í höndum
Corpus-hópsins, en Spital-hópurinn
sér um gatna-, veitna- og lóðahönn-
un“ segir Gunnar.
Líkt og fram kemur í máli Gunn-
ars er meðferðarkjarninn stærsta
byggingin í uppbyggingu Hring-
brautarverkefnisins, en aðrar bygg-
ingar eru nýtt sjúkrahótel, sem þeg-
ar er risið og verður tekið í notkun
innan skamms, rannsóknahús og
bílastæða-, tækni- og skrifstofuhús.
Útboð vegna jarðvinnu stór
áfangi Nýja Landspítalans
Framkvæmdastjórinn segir að einhverjir muni alltaf gagnrýna staðsetningu
Mannvirki Líkan af meðferðarkjarna nýs Landspítala sem á að rísa sunnan við núverandi aðalbyggingu spítalans.
Héraðsdómur
Reykjavíkur hef-
ur hafnað beiðni
Valitors um dóm-
kvaðningu
tveggja nýrra
matsmanna í máli
fyrirtækjanna
Datacell og Suns-
hine Press Pro-
ductions gegn Valitor. Úrskurður
þess efnis var kveðinn upp í gær. Í
málinu krefjast fyrirtækin þess að
Valitor greiði Sunshine Press Pro-
ductions tæpa 7,7 milljarða króna í
bætur og DataCell um 405 milljónir
króna. Áður höfðu stefnendur aflað
mats dómkvaddra matsmanna sem
var lagt fram í dómi fyrir rúmum
tveimur árum síðan. Málið snýst um
það hvert fjártjón Datacell og Suns-
hine Press Productions hafi verið
við það að greiðslugátt fyrir Wiki-
leaks hafi verið lokað í 617 daga.
Beiðni Valitors um
matsmenn hafnað
Heilsumiðstöðin sem rekur Hótel Ísland, og
er aðili að rammasamningi Sjúkratrygginga
Íslands (SÍ) um hótelþjónustu á höfuðborg-
arsvæðinu, hefur orðið við ósk SÍ um að
framlengja tímabundið aðild sína að
rammasamningnum þar sem tafir hafa orð-
ið á opnun sjúkrahótels á Hringbraut. Fram
kemur í fréttatilkynningu frá Hótel Íslandi
að aðstandendur (ættingjar eða vinir sjúklings) þurfi ekki lengur að greiða
fyrir gistingu dvelji þeir í herbergi með sjúkratryggðum hótelgesti. Gunnar
Svavarsson segir að nýja sjúkrahótelið verði tekið í notkun með haustinu.
Opnun þess hafi tafist vegna þess að þéttingarkerfi klæðningar hússins
hafi ekki verið talin uppfylla jarðskjálfta- og öryggiskröfur.
Verður opnað með haustinu
NÝTT SJÚKRAHÓTEL VIÐ HRINGBRAUT
Nýja sjúkrahótelið við Hringbraut.
Pétur Hrafn Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi í Kópavogi, er áfram efstur
á lista Samfylkingarinnar, sem
kynnti stefnumál sín í gær fyrir
kosningarnar 26. maí. Vill flokk-
urinn m.a. að öll börn fái leik-
skólapláss frá 12 mánaða aldri og
að starfsaðstæður leikskólakenn-
ara og starfsfólks verði bættar.
Fjölbreytt framboð verði á húsnæði
í Kópavogi og ráðast þurfi gegn fá-
tækt í bænum. Einn liður í því verði
að hækka íþrótta- og tómstunda-
styrki fyrir börn í 80 þúsund kr.
Í öðru sæti á listanum er Bergljót
Kristinsdóttir, Elvar Páll Sigurðs-
son er í þriðja sæti og Donata H.
Bukowska í því fjórða.
Heiðurssæti listans skipar núver-
andi bæjarfulltrúi flokksins, Ása
Richardsdóttir.
Kópavogur Fjórir efstu frambjóðendur á
lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Pétur Hrafn áfram
efstur í Kópavogi
Guðlaug S.
Kristjánsdóttir,
sjúkraþjálfari
og forseti bæjar-
stjórnar Hafnar-
fjarðar, skipar
efsta sætið á nýj-
um Bæjarlista í
Hafnarfirði fyrir
komandi kosn-
ingar. Guðlaug
fór inn í bæjar-
stjórn í síðustu kosningum fyrir
Bjarta framtíð. Í tilkynningu segir
að Bæjarlistinn sé óháður stjórn-
málaflokkum, skipaður fólki sem
vilji hafa jákvæð áhrif á nær-
umhverfi sitt. Í öðru sæti er Birgir
Örn Guðjónsson lögreglumaður og
Helga Björg Arnardóttir tónlistar-
maður í þriðja sæti.
Guðlaug gengur til
liðs við Bæjarlistann
Guðlaug S.
Kristjánsdóttir
Mun fleiri hafa kosið utankjör-
fundar hjá embættum sýslumanns
en fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar, 2014. Í gær höfðu um
270 manns kosið á öllu landinu, í
samanburði við um 100 fyrir fjórum
árum, þegar mánuður var til kosn-
inga. Í Reykjavík hafa 207 kosið,
voru 60 á sama tíma árið 2014.
Fleiri kosið utan
kjörfundar en síðast
2018