Morgunblaðið - 27.04.2018, Qupperneq 19
J
Leiðtogafundur Kóreuríkjanna
Kim Jong-un, leiðtogi einræðisstjórnar Norður-Kóreu, og Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu,
hefja fundinn á markalínu sem skiptir hlutlausa beltinu við landamæri ríkjanna
Panmunjom
Sameiginlegt öryggissvæði
Varðstöð Norður-
Kóreumanna
Varðstöð Suður-
Kóreumanna
Frelsishúsið
- eftirlits-
bygging
Panmungak-
byggingin
Heimildir: AFP/Global Security/Sameinuðu þjóðirnar/Stjórn S-Kóreu/Yonhap
Marka-
línan NORÐUR-KÓREA
SUÐUR-
KÓREA
Fundarskálar
sem liggja
þvert yfir
markalínuna
PJONGJANG
SEOUL
KÍNA
NORÐUR-
KÓREA
SUÐUR-
KÓREA
GULAHAF
Kim Jong-un
og fylgdarlið hans
fara út úr byggingunni
til fundarins
1
Báðir leiðtogarnir
ganga að Friðarhúsinu
í fylgd hermanna sem
standa heiðursvörð
2 Forseti
Suður-Kóreu
og fylgdarlið
hans bíða
sunnan við
markalínuna
3Moon og Kim takast í hendur
kl. 9.30 að staðartíma (00.30 að ísl.)
4
Hlutlaust
belti
50 cm
4m
Um
5 cm
Marka-
línan
fundarstaðurinn
Friðarhúsið er
- ræðisstjórnin lýsti því þar með yfir að Norður-
Kórea væri orðin kjarnorkuveldi, að mati
fréttaskýrendanna.
Norður-Kóreumenn sögðust einnig ætla að
loka tilraunastöðinni Punggye-ri þar sem þeir
hafa sprengt alls sex kjarnorkusprengjur í til-
raunaskyni. Kínverskir vísindamenn fullyrtu
nýlega að tilraununum í Punggye-ri hefði í
reynd verið sjálfhætt því að tilraunastöðin væri
ónothæf vegna síðustu sprengingarinnar sem
hefði orðið til þess að göng, sem notuð voru til
að sprengja kjarnorkusprengjuna, hefðu hrun-
ið. Sérfræðingar í öryggismálum hafa dregið
þessa fullyrðingu í efa og sagt að ekki hafi kom-
ið fram neinar vísbendingar um að tilraunastöð-
in sé ónothæf.
Gæti reynst hættuspil
Fréttaskýrendur segja ólíklegt að Norður--
Kóreumenn samþykki að tilraunastöðin verði
rifin niður eða fallist á eftirlit með því að hún
verði ekki notuð. Þeir óttist að eftirlitsmenn
gætu aflað upplýsinga um kjarnorkutilraunirn-
ar sex ef þeir fengju að rannsaka stöðina. Talið
er því líklegra að Norður-Kóreumenn loki ein-
faldlega stöðinni, án eftirlits, og þeir gætu þá
hæglega tekið hana í notkun aftur síðar, að því
er fréttaveitan Reuters hefur eftir sérfræðing-
um í öryggismálum.
Walter Russell Mead telur mjög ólíklegt að
Kim fallist á algera kjarnorkuafvopnun eða
eftirlit með því að vopnunum verði eytt þar sem
einræðisstjórnin líti enn á þau sem einu trygg-
inguna fyrir því að Bandaríkin reyni ekki að
steypa henni af stóli. „Kimarnir vildu frekar
vera einræðisherrar í fátæku landi en fyrrver-
andi ráðamenn lands sem hefur hafið sig upp úr
fátæktinni.“
Trump hefur sagt að hann krefjist þess að
Norður-Kóreumenn eyði kjarnavopnum sínum
fljótt og loforð þeirra um að stöðva kjarnorku-
og eldflaugatilraunirnar dugi ekki til að refsiað-
gerðunum verði aflétt. The Wall Street Journal
hefur þó eftir sérfræðingum að niðurstaðan geti
orðið sú að Bandaríkjastjórn sætti sig að lokum
við samning sem fæli í sér að N-Kórea yrði í
reynd áfram kjarnorkuveldi en að kjarnorku-
og eldflaugatilraunirnar yrðu stöðvaðar.
Samningur sem fæli í sér að N-Kóreumenn
héldu kjarnavopnum gæti reynst dýrkeyptur og
erfitt yrði að hafa eftirlit með því að þeir stæðu
við hann. N-Kóreustjórn gæti t.a.m. notað vopn-
in síðar til að knýja fram sameiningu Kóreu-
ríkjanna á sínum forsendum.
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
Kæru vinir, velunnarar og viðskiptavinir.
Í tilefni af 25 ára afmæli Kirsuberjatrésins,
bjóðum við til afmælisveislu föstudaginn 27. apríl kl. 17.
að Vesturgötu 4
Okkur þætti vænt um að sjá sem flesta til að fagna þessum stóru
tímamótum með okkur.
Eitthvað gott í munn, fast og fljótandi
verður í boði og frábær tombóla.
Lúðrasveitin Svanur mun ganga frá Ingólfstorgi að Vesturgötu 4,
kl. 17 og halda uppi fjörinu með lúðrablæstri.
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
25 ára
Kirsuberin.
25%
afsláttu
r
verður
af
völdum
vörum
frá kl. 17
-19
Kirsuberjatréð
Fundur leiðtoga Kóreuríkjanna tveggja í dag
er þriðji leiðtogafundur landanna frá því að
Kóreustríðinu lauk árið 1953. Báðir fyrri
fundirnir voru haldnir í Pjongjang, höfuðborg
Norður-Kóreu.
Fyrsti leiðtogafundurinn var haldinn í júní
2000 þegar Kim Jong-il, faðir núverandi leið-
toga Norður-Kóreu, ræddi við Kim Dae-jung,
þáverandi forseta Suður-Kóreu. Umfjöllun
fjölmiðla og yfirlýsingar ráðamanna um fund-
inn einkenndust af mikilli bjartsýni. „Nýtt
tímaskeið hefur runnið upp fyrir þjóð okkar,“
sagði t.a.m. Kim Dae-jung, eftir fundinn.
Bandarísk stjórnvöld töluðu um „nýja dögun“
í samskiptum Kóreuríkjanna.
Annar leiðtogafundurinn var haldinn í
október 2007, ári eftir að Norður-Kóreumenn
sprengdu fyrstu kjarnorkusprengju sína í til-
raunaskyni. Leiðtogar ríkjanna undirrituðu
yfirlýsingu þar sem hvatt var til kjarnorku-
afvopnunar og samnings um varanlegan frið
á Kóreuskaganum.
Almenningur í Suður-Kóreu virðist nú
binda miklu minni vonir við leiðtogafundinn
við landamæri ríkjanna í dag en fyrsta fund-
inn fyrir átján árum. Margir Suður-Kóreu-
menn líta á viðræðurnar sem sýndarmennsku
og óttast að einræðisstjórnin í Norður-Kóreu
reki rýting í bakið á þeim síðar ef refsiað-
gerðunum verður aflétt.
S-Kóreumenn gera sér ekki miklar vonir
ÞRIÐJI LEIÐTOGAFUNDUR KÓREURÍKJANNA EFTIR STRÍÐIÐ