Morgunblaðið - 27.04.2018, Page 22

Morgunblaðið - 27.04.2018, Page 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 562 1717 Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is bilalif.is Skráðu bílinn FRÍTT hjá okkur Með óvísindalegri ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar hefur það tíðkast að áætla stofnstærð hrognkelsa og gefa í kjölfarið ráð- leggingu um hámarks- afla. Í umræðum um stofnmatið er látið að því liggja að um sé að ræða niðurstöðu ábyggilegra vís- indalegra aðferða, en svo er alls ekki. Niðurstöðurnar eru byggðar á því hvað veiðist af grásleppu í stofn- mælingu botnfiska (togararallinu). Það er vægast sagt furðulegt að vís- indastofnun á sviði náttúrufræða skuli beita mælingum sem gerðar eru við botninn til að meta stofn- stærð hrognkelsis sem heldur sig í yfirborði sjávar utan hrygningar- tímans. Það ætti einnig að hringja hávær- um viðvörunarbjöllum um áreiðan- leika stofnstærðarmats ef stofn- stærð hængs í ákveðinni fisktegund sveiflast með allt öðrum hætti en stofnstærð hrygnunnar. Það er ein- mitt niðurstaða Hafró í tilfelli grá- sleppunnar og rauðmagans! Ástæðan fyrir því að stofnmat tveggja ára er lagt til grundvallar fyrir ákvörðun á hámarks- afla grásleppu er hve mikil óvissa er í mæl- ingunum – sannleik- urinn er sá að aðferðin sem stofnmatið byggist á er vitleysa. Ef það á að skilja stofnsveiflur og bæta forsendur veiðiráð- gjafar þurfa áhersl- urnar að fara af því að telja fiska. Mikilvæg- ara er að átta sig á samkeppni hrognkelsa við aðrar tegundir um fæðu og því hve stór hluti gráslepp- unnar lifir af hrygninguna. Hin eilífa fiskatalning Eftir Sigurjón Þórðarson » Það ætti að vekja spurningar um áreiðanleika stofn- stærðarmats grásleppu að mat á fjölda hænga sveiflast með allt öðrum hætti en mat á fjölda hrygna. Sigurjón Þórðarson Höfundur er líffræðingur. sigurjon@sigurjon.is Árið 2014 stundaði ég framhaldsnám í sjúkraþjálfun í Ástr- alíu, þrjár annir sem jafngilda 75 ECTS- einingum. Eins og lög og reglur gera ráð fyr- ir var ég í fullu starfi í tvö ár eftir útskrift og sótti um sérfræðileyfi í íþróttasjúkraþjálfun í maí 2017. Nú, 10 mán- uðum síðar, fékk ég synjun frá land- læknisembættinu, sem sér um veit- ingu slíkra leyfa. Embættinu ber að leita umsagnar frá námsbraut sjúkraþjálfunar við HÍ, sem það og gerði. Eftir tvær umsagnir þar sem ég fékk kost á að koma með athugasemdir er niður- staða embættisins að nám mitt sé of stutt og ekki með nægjanlega mikla aðferða- og tölfræði. Reglugerð nr. 1127/2012 fjallar um veitingu sér- fræðileyfis til sjúkraþjálfara. Í 8. gr. kemur fram að námsbraut í sjúkra- þjálfun eigi að meta hvort umsækj- endur standist 6. gr. sömu reglu- gerðar. Þar eru þrjú skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis; í fyrsta lagi að hafa starfsleyfi sem sjúkraþjálf- ari á Íslandi, í öðru lagi að hafa lok- ið meistaraprófi eða doktorsprófi frá viðurkenndum skóla eða hafa sambærilega menntun og í þriðja lagi að hafa starfað í fullu starfi við viðeigandi sérsvið undir handleiðslu í að lágmarki tvö ár eftir útskrift. Námsbrautin telur nám mitt ekki standast þessar kröfur og vísar í viðmið um æðri menntun og próf- gráður. Hvergi í reglugerð 1127/ 2012 er minnst á að standast þurfi þessi viðmið. Námsbraut gefur sterklega til kynna að ég muni fá sér- fræðileyfi ef ég klára 15 ECTS-einingar í að- ferða- og tölfræði á framhaldsstigi. Slíkt stenst ekki umrædd viðmið sem vísað var í. Þar stendur að meist- aranám þurfi að vera 90-120 ECTS-einingar og rannsóknarverkefni eða lokaverkefni að minnsta kosti 30 ECTS-einingar. Það var mitt að kynna mér lög og reglugerðir áður en ég valdi mér nám. Einnig notaðist ég við for- dæmi í veitingu sérfræðileyfa í sjúkraþjálfun. Út frá eldri reglu- gerð, þeirri sem reglugerð 1127/ 2012 tók við af, fengu sjúkraþjálf- arar sérfræðileyfi með um 60 ECTS-eininga nám og litla sem enga aðferða- og tölfræði. Þegar ný reglugerð tekur gildi á hún aðeins við um þá sem hefja nám eftir það. Svo þarf að ljúka námi og vinna í fullu starfi í tvö ár eftir útskrift. Landlæknisembættið hefur svo samkvæmt stjórnsýslulögum 90 daga til að svara umsókninni. Svo fyrstu mögulegu fordæmi út frá reglugerð 1127/2012 hefðu getað komið fram í kringum apríl 2016. Í svari landlæknisembættisins er vísað í að á árunum 2008-2013 hafi fjórir fengið sérfræðileyfi í sjúkra- þjálfun eftir að hafa stundað nám í Ástralíu, sem sagt með minna en 90 ECTS-einingar. Matsaðilar á þeim tíma töldu þessa einstaklinga upp- fylla lög og reglugerðir. Árið 2014 var skipt um matsaðila og nú meta þeir aðilar að nám minna en 90 ECTS-einingar uppfylli ekki lög og reglugerðir sem embættinu eru sett. Landlæknir fellst nú á umsögn lögbundinna aðila að umsækjendur verði að uppfylla viðmið um æðri menntun og prófgráður. Land- læknir féllst á umsögn lögbundinna aðila fyrir árið 2014 að ekki þyrfti að uppfylla viðmið um æðri mennt- un og prófgráður þrátt fyrir að við- mið um æðri menntun og próf- gráður hafi fyrst komið fram árið 2006. Hvernig á að vera hægt að meta lög, reglur og fordæmi þegar landlæknisembættið er ekki sam- kvæmt sjálfu sér í veitingu sér- fræðileyfa? Lög og reglugerðir virð- ast vera túlkuð af matsaðilum hverju sinni og það samþykkt af landlæknisembættinu þrátt fyrir að túlkun núverandi nefndarmanna gangi þvert gegn túlkun fyrri nefndarmanna. Ég spyr því – er eðlilegt að mats- aðilar túlki lög og reglugerðir á sinn hátt eftir því hver situr í nefndinni og að landlæknisembættið sam- þykki hvað sem lagt er á borð þeirra og virði þannig að vettugi fordæmi sem hafa verið sett? Hvernig á að vera hægt að meta hvort ákveðið nám muni nægja til að fá sérfræðileyfi þegar landlækn- isembættið veit ekki í hvorn fótinn það á að stíga? Hver mun bera ábyrgð á fjárhagslegu tjóni mínu við að starfa á lægri taxta í um það bil eitt ár ef ákvörðun landlækn- isembættis verður snúið í kæru- ferli? Eftir Valgeir Viðarsson » Opið bréf til land- læknis og heilbrigð- isráðherra. Valgeir Viðarsson Höfundur er sjúkraþjálfari. valgeir@atlasendurhaefing.is Sérfræðileyfi í sjúkraþjálfun Nýlega birtist í frétt- um blaðsins að met- aðsókn væri í störf flug- liða hjá Icelandair og WOW. Ef grannt er skoðað þá þarf ekki að koma á óvart að fólk vilji komast í þessi störf. Hver vill ekki komast hjá því að greiða tekjuskatt af stórum hluta tekna sinna? Staðreyndin er sú að í áratugi hafa flugliðar fengið stóran hluta launa sinna greiddan í formi ferðadagpen- inga og komist upp með að svíkja þessar greiðslur þannig undan tekju- skatti. Þeir embættismenn sem hafa eftirlit með skattskilum og eiga að ganga í að talið sé rétt fram svo skatt- ar skili sér með réttmætum hætti í ríkiskassann eru ríkisskattstjóri og skattrannsóknarstjóri. Forsvars- menn þessara stofnana hafa hins veg- ar lagt sig í framkróka við að tryggja áframhaldandi skattundanskot af þessum toga með tómlæti sínu. Þetta er jú samhangandi dagpeninga- greiðslum og öðrum vafasömum sporslum til ríkisstarfsmanna eins og t.d. alþingismanna og embættis- manna sem eru þó í engu samræmi við það sem gengur og gerist hjá þeim sem starfa í einkageiranum að undanskildu millilandafluginu. Flug- liðar fá greidda ferða- dagpeninga sem eru lögum samkvæmt fram- talsskyldir en sam- kvæmt sömu lögum að- eins frádráttarbærir frá tekjuskattstofni að því leyti sem þeim er sann- anlega varið til greiðslu ferðakostnaðar í tilfall- andi ferðum á vegum vinnuveitanda utan venjulegs vinnustaðar. En flugliðar bera engan kostnað af þessum svo- kölluðu ferðum og þar að auki er venjulegur vinnustaður flugliða flug- förin sem þeir sinna störfum sínum um borð í og því er alls ekki um að ræða tilfallandi ferðir utan venjulegs vinnustaðar. Þetta fyrirkomulag á einnig við um „ferðir“ þar sem þessir starfsmenn koma til baka úr flugi samdægurs. Af þessum dulbúnu launagreiðslum sem kallaðar eru ferðadagpeningar ber því að greiða fullan tekjuskatt en hefðin er sú að færa alla þessa fjárhæð til frádráttar að fullu frá tekjuskattstofni enda hafa þessar starfsstéttir getað reitt sig á að hvorki embætti ríkisskattstjóra né skattrannsóknarstjóra muni róta upp nokkru moldviðri varðandi þessi und- anskot. Þess í stað kjósa bæði þessi embætti að leika sér sér við bauna- talningar sem litlu máli skipta og best njóta þau sín í að valda sem flestum í einkageiranum ama, aðilum sem þó eru að sperra sig við að skila ein- hverju sem er til þess fallið að greiða launin þeirra sem og annarra al- menningsþjóna. Ráðherrar og þingmenn hafa hvergi fundist sem hreinsa vilja upp þennan sóðaskap enda hefur berlega komið í ljós að þeir njóta margir hverjir skattundanskotinna fríðinda sem oft á tíðum kallast þeim nöfnum að venjulegt fólk hefur ekki hug- myndaflug í slíkar nafngiftir. Fræg- astur er án efa aldursforseti þingsins og sá sem helst hefur reynt að slá sig til riddara með orðagjálfri um sam- félagslegan jöfnuð borgaranna á sama tíma og hann hefur búið til ára- tuga í Breiðholtinu með húsnæð- isstyrk frá almenningi. En þann styrk hefur hann fengið greiddan þar sem hann hefur í þykjustunni búið á fjarlægu horni landsins þó hann hafi tæplega komið þar nema í mý- flugumynd. Á meðan ráðherrar, þing- menn og aðrir ráðamenn í stjórnkerf- inu halda uppteknum hætti með einbeittum vilja til að halda þessu skattundanskotakerfi við lýði fljúga skattsvikarar háloftanna áfram með bros á vör, vissir um að ekki verði við þeim hróflað. Hvers vegna skyldu bíl- stjórar hjá Strætó og bílstjórar á flutningabílum sem aka milli lands- hluta ekki njóta sambærilegra fríð- inda fyrir sín störf og þá sambærilegs tómlætis hjá þeim embættismönnum sem ráðnir eru til að uppræta skatt- svik? Hvers vegna ætti starfsmaður fyrirtækis í Hafnarfirði sem á lög- heimili í Kópavogi ekki að njóta sam- bærilegra skatt„fríðinda“? Spyr sá sem ekki veit, þó hann hafi sínar grunsemdir. Eftir Örn Gunnlaugsson » Á meðan fljúgaskattsvikarar há- loftanna áfram með bros á vör, vissir um að ekki verði við þeim hróflað. Örn Gunnlaugsson Höfundur er atvinnurekandi. orng05@simnet.is Skattsvikin heilla Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.