Morgunblaðið - 27.04.2018, Síða 27

Morgunblaðið - 27.04.2018, Síða 27
til margra ára. Við kynntumst öll þegar við störfuðum við sérdeild- ina í Laugarnesskóla. Það var gott að vinna með henni Erlu. Hún var dugleg og drífandi og bar hag barnanna sem hún kenndi ávallt fyrir brjósti. Eftir að við fórum sitt í hverja áttina í starfi hittumst við reglulega og áttum saman skemmtilegar stundir. Þá sögðum við frá því sem á daga okkar hafði drifið, rifjuðum upp gamla daga og ræddum um allt milli himins og jarðar. Og við hlógum. Það var auðvelt að hlæja með henni Erlu. Hún hafði einstaklega skemmti- legan hlátur og átti gott með að sjá broslegar hliðar á tilverunni. Þegar hún sagði frá stelpunum sínum, þeim Emmu og Sæunni Sif, fór ekki á milli mála hversu stolt hún var af þeim. Við vitum líka að hún og Heiðar, kletturinn í lífi hennar, bjuggu þeim traust og gott heimili. Þau hlúðu vel að þeim og gáfu þeim gott veganesti út í lífið. Þegar við kvöddumst eftir gefandi samverustundir, með fyrirheit um að hittast fljótt aftur, var faðmlag hennar hlýtt og brosið bjart. En skjótt skipast veður í lofti og samverustundirnar með henni Erlu verða ekki fleiri. Við sitjum eftir með sorg og söknuð í hjarta og minnumst yndislegrar vin- konu. Við sendum Heiðari, Sæunni Sif, Emmu, Jóni Gabríel, Jónu og fjölskyldu hennar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Vignir Ljósálfur, Kristín og Anna Vigdís. Öllum brotum var þröngvað í sjónhending saman og ég saknaði brotanna: hvert um sig hafði sitt líf, gljáa og lit. (Þorsteinn frá Hamri) Við vorum þrjár, Guðrún Erla, Svanhvít og ég, sem leigðum sam- an íbúð í þrjú ár, allar samstúd- entar úr ML. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og langt er síðan leiðir skildi. En ég man þessi ár, þessi áhyggjulausu há- skólaár á Logalandinu. Ég man: Hvað hún var glaðlynd; Hvernig hún gat skellihlegið; Hvernig henni lá ekki illt orð til nokkurs manns; Hve hún hafði mikinn áhuga á kennaranáminu; Hvernig hún reyndi að kenna okkur að meta danska rétti, skrýtna osta og rauðvín með; Hvernig hún burstaði þykkt sítt hárið uns það glóði … Þessum minningabrotum var snögglega þröngvað saman í sjónhending þegar ég frétti ótímabært lát hennar fyrir skömmu. En enn hafa þau sitt líf, sinn gljáa og sinn lit. Og ég mun aldrei gleyma henni. Ég votta eiginmanni, dætrum, systur og öðrum vandamönnum Guðrúnar Erlu innilega samúð. Blessuð sé minning hennar. Harpa Hreinsdóttir. Kveðja frá samstúdentum frá Menntaskólanum að Laugarvatni árið 1978 Bekkjarfélagar Guðrúnar Erlu Ingvadóttur úr samheldnum út- skriftarárgangi frá ML kveðja í dag með sorg í hjarta góða vin- konu sem fallin er frá allt of snemma. Erla hefur í gegnum tíð- ina verið hrókur alls fagnaðar í hópnum, bæði á skólaárunum á Laugarvatni og einnig á þeim 40 árum sem liðin eru síðan. Þar dvöldust flestir á heimavist í fögr- um fjallasal og ýmislegt var brall- að og eignuðust menn þar vini til lífstíðar. Fullyrða má að dvölin á Laugarvatni hafi lagt grunn að ævilangri vináttu þeirra sem út- skrifuðust með Erlu 1978. Á 10 ára útskriftarafmælinu 1988 gaf árgangurinn skólanum minning- argjöf um Guðrúnu Gunnarsdótt- ur frá Hvolsvelli sem féll frá að- eins 25 ára að aldri árið 1983. Erla er því annar bekkjarfélag- inn sem við kveðjum og erum við um leið minnt á hversu lífið er við- kvæmt og fallvalt. Við vorum dugleg að hittast eftir menntaskólaárin þar sem m.a. voru rifjaðar upp minningar sem hafa glatt okkur alla tíð. Oft- ar en ekki snúast þær um alls konar uppátæki nemenda, ýmsar hefðir sem voru í hávegum á Laugarvatni. Þar má t.d. nefna skírnina þar sem öllum nýnemum er dýft í Laugarvatn, teygingar þar sem togað er í alla útlimi sam- tímis, naflaskoðun, táskoðun, bjölluslag, stigasöng og vatns- slag. Þegar bekkjarfélagarnir hafa hist hefur gleðin verið við völd og þótt stundum hafi liðið nokkur ár á milli endurfunda skiptir það ekki máli. Böndin á milli bekkjarfélaga styrkjast við slíka endurfundi og einnig hafa menn fylgst með lífi og starfi fé- laganna. Erla var frá upphafi í hópi þeirra sem lögðu áherslu á að rækta vinaböndin og við minn- umst með hlýju allra samveru- stundanna með henni, bæði í ML og alla tíð síðan. Eftirminnilegast er blíða brosið hennar og vænt- umþykjan sem streymdi frá henni. Hennar verður sárt sakn- að úr vinahópnum. Erla helgaði sig menntun barna og ungmenna alla sína starfsævi og lagði þar sérstaka al- úð við að sinna nemendum með sérþarfir og þeim sem áttu á ein- hvern hátt undir högg að sækja. Það kom okkur bekkjarfélögun- um sem höfum þekkt hana frá menntaskólaárum ekki á óvart. Erla sérhæfði sig í náms- og starfsráðgjöf og lagði alúð sína í það starf allt þangað til hún varð að hætta störfum vegna veikinda. Erla hefur í um það bil eitt ár átt í erfiðri baráttu við illskeyttan sjúkdóm og kom það okkur öllum í opna skjöldu, en mörg okkar vissu ekki hversu alvarleg veik- indin voru. Bestu vinkonur henn- ar frá menntaskólaárunum stóðu þétt við hlið hennar í lok barátt- unnar og fyrir nokkrum vikum þá færðu þær Erlu blóm frá bekkj- arfélögunum með góðum kveðj- um og þótti henni afar vænt um það. Einnig hefur fjölskylda hennar og Jóna systir hennar og fjölskylda staðið vaktina. Við vilj- um í lokin senda Heiðari eigin- manni Erlu, dætrum þeirra þeim, Emmu Guðrúnu og Sæunni Sif, Jónu systur Erlu og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Eitt er víst að í tengslum við 40 ára út- skriftarafmælið í vor munum við bekkjarsystkini Erlu halda minn- ingu hennar á lofti. Minning um kæra vinkonu lifir. Guðni Olgeirsson. Lífsneisti skólasystur minnar og vinkonu, Guðrúnar Erlu, er slokknaður. Varla er hægt að trúa þeirri staðreynd að hinn ill- vígi sjúkdómur, krabbameinið, hafi lagt hana að velli, svo lífs- glaða og sterka konu á besta aldri. Í vor verða 40 ár síðan við bekkjarsystkinin í ML settum upp stúdentshúfurnar okkar; hinu langþráða takmarki var náð. Þá var gleðin við völd og bros á hverju andliti. Gleði og bros, já, það var einmitt það sem ein- kenndi Erlu, hún var alltaf svo brosmild og glaðleg og hafði ein- staklega góða nærveru. Erla átti auðvelt með að um- gangast börn og unglinga enda gerði hún kennarastarf að aðal- starfi sínu og síðar náms- og starfsráðgjöf. Hún var samvisku- söm, heilsteypt, ráðagóð, ákveð- in, rökföst, hjálpsöm og mátti ekkert aumt sjá og var henni mjög umhugað um nemendur sína. Eilítil ævintýramennska kitl- aði Erlu og ef til vill var grunn- urinn lagður að þeirri ævintýra- mennsku í æsku því að hún fór oft með foreldrum sínum og systur til annarra landa þar sem hún kynntist nýstárlegri menningu sem var nokkuð óvenjulegt á þeim tíma. Eftir stúdentspróf vann hún eitt sumar á Ítalíu og þrjú sumur í Kaupmannahöfn og eftir nokkra áeggjan féllst ég á að koma með henni til stórborgar- innar í tvö sumur til að vinna. Það var skemmtilegur tími; alltaf sól og blíða, við vorum alltaf í pilsum eða stuttbuxum, urðum fallega brúnar, þurftum eiginlega aldrei að sofa, vöknuðum um miðja nótt, miðað við okkar mælikvarða, til að fara í vinnuna, skoðuðum söfn og frægar byggingar, lentum í maríuhænufaraldri á ströndinni, sem okkur fannst ekki mjög skemmtilegt, þekktum orðið flestar búðir, krár og veitinga- staði, tókum ferju til Óslóar, gerðum svo ótalmargt saman. Þannig var Erla, hún vildi upp- lifa, njóta og fræðast þegar tæki- færi gáfust áður en alvörulífsbar- áttan tæki við. Okkur fannst við vera orðnar heimskonur, stúlk- urnar frá Íslandi. Þetta var ógleymanlegur tími enda rifjuð- um við hann oft upp og þá var nú hlegið. Það er yndislegt að eiga svona góðar og fallegar minning- ar um Erlu sem verða aldrei teknar frá manni. Það verða því blendnar tilfinn- ingar sem bærast með okkur skólasystkinunum í útskriftar- hópnum í maí; gleði og sorg, til- finningar sem banka upp á hjá hverri manneskju í þessu jarð- neska lífi. Erla hefði örugglega viljað að við minntumst hennar með birtu og hlýju, frekar en að standa hnípin í hóp, og þannig viljum við varðveita minninguna um hana. Hún vildi nefnilega ekki að við yrðum sorgmædd yfir ör- lögum hennar, hún vildi hlífa okk- ur enda bar hún harm sinn nánast í hljóði og tókst á við sjúkdóminn á þann hátt. Ég kveð góða vinkonu og þakka vináttuna og samfylgdina alla þessa áratugi. Ég kem til með að sakna svo margs, m.a. löngu símtalanna þar sem margt bar á góma, allra heimsóknanna og þéttu faðmlaganna þegar við kvöddumst; síðasta faðmlagið var óvenjusterkt og kraftmikið þrátt fyrir veikan mátt. Ég og fjölskylda mín sendum Heiðari, Emmu og Sæunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning vinkonu minnar, Guðrúnar Erlu. Svanhildur Edda Þórðardóttir. Það er sárt að þurfa að kveðja hana Guðrúnu Erlu fyrir aldur fram en yndislegri manneskju er vart hægt að hugsa sér. Ég kynntist Guðrúnu Erlu þegar ég starfaði í Fellaskóla um hríð. Guðrún Erla og mamma mín, Anna María Snorradóttir, voru æskuvinkonur og skólasyst- ur á Selfossi þannig að við tengd- umst strax traustum böndum. Við Guðrún Erla unnum mikið saman í Fellaskóla og urðum fljótt góðar vinkonur. Guðrún Erla reyndist mér traustur vinur og leitaði ég til hennar með margvísleg mál. Guðrún Erla var mikill fag- maður í starfi sínu sem námsráð- gjafi. Hún lét sér annt um alla nemendur og var alltaf tilbúin að hlusta, leiðbeina og þerra tár. Guðrún Erla hafði einstaklega fallega framkomu, hún var blíð og góð og létt í lund. Hún hafði ein- lægan áhuga á fólki og mikið innsæi og var alltaf tilbúin til að aðstoða aðra. Guðrún Erla var mikil fjöl- skyldukona og gleðin og stoltið leyndi sér ekki þegar hún talaði um dætur sínar sem áttu hug hennar og hjarta. Guðrún Erla var ein af þessum perlum sem ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast og eiga að. Hvíl í friði, kæra vinkona. Ég sakna þín, ég syrgi farinn vin, í sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn, er hóf sig yfir heimsins dægurglys. Á horfna tímans horfi ég endurskin, ég heyri ennþá glaða, þýða róminn, frá hreinni sál með hárra vona ris. (Steinn Steinarr) Álfheiður Eva Óladóttir. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 ✝ Sigurður Árna-son fæddist á Ísafirði 5. maí 1926. Hann lést á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 16. apríl 2018. Foreldrar hans voru Árni Jón Árnason bankarit- ari, f. 17.5. 1894, d. 13.7. 1939, og Guð- björg Tómasdóttir húsmóðir, f. 6.12. 1898, d. 23.4. 1960. Systkini hans voru Theo- dór Árnason verk- fræðingur, f. 11.1. 1924, d. 27.3. 2013, Svanhildur Árnadóttir hús- móðir, f. 25.2. 1929, d. 15.7. 2016, og Árni Jón Árnason verka- maður, sam- mæðra, f. 2.7. 1945. Sigurður verður jarðsung- inn frá Fossvogskapellu í dag, 27. apríl 2018, klukkan 15. Siggi bróðir lét ekki lífið vefj- ast fyrir sér frekar en dauðann. Lausnin var að fresta engu til morguns sem hægt er að gera í dag. Tímaskynið var óbrigðult og hvergi lausir endar. Þannig lifði hann lífinu og þannig dó hann. Hann gaf sér rétt tíma til að kveðja, svo var hann farinn. Engir vafningar, ekkert vesen. Siggi var lítillátur maður með sterkar skoðanir en hann hélt þeim fyrir sig, eins og hefð er fyrir í ættinni. Þegar ég kom til sögunnar hafði hann munstrað sig á skútu, sem hélt honum við efnið til starfsloka við góðan orðstír. Siggi í Fossberg var af- greiðslumaður af lífi og sál. En lífinu fylgja áskoranir og þeim fékk hann snemma að kynnast. Hann þurfti ungur að flytjast frá fæðingarbæ sínum Ísafirði til Reykjavíkur vegna atvinnu föður síns, sem innan fárra ára lést af slysförum. Það var mikið áfall eins og gefur að skilja. Hann tjáði sig lítið um það, sagði bara að faðir sinn hefði verið mjög góður maður. Stað- festa og æðruleysi einkenndi Sigga alla tíð og þeir eiginleikar komu að góðum notum. Hann sem alltaf hafði verið hraustur og laus við kvilla þurfti upp úr miðjum aldri að glíma við mörg heilsufarsleg áföll en þau hristi hann jafnan af sér og átti góða kafla inn á milli. Glíman við Elli kerlingu var snörp og leikslokin fyrirséð. Upprunaleg hreysti hans og jafnaðargeð dugðu þó lengi vel. Systkini okkar voru mikið atgervisfólk og fóru sínar eigin leiðir. Svanhildur fór norður í land og fann þar af- bragðsmann, Kristján Bene- diktsson á Þverá í Öxarfirði, og eignaðist með honum átta börn en fyrir átti hún son. Theodór var einhleypur eins og við hinir strákarnir en einn okkar systk- inanna gekk hann menntaveg- inn og gerðist verkfræðingur og vann sér mikið traust og álit í þeim fræðum. Ættfræði stundaði hann líka af mikilli einurð. Einurð Svan- hildar var ekki síðri. Þegar skyldum hins stóra og erils- sama heimilis var af henni létt og heilsa tekin að hnigna sýndi hún enn hvað í henni bjó og ein- henti sér í listina, sem hafði reyndar lengi blundað með henni. Árangurinn sést meðal annars á því að heimilli okkar Sigga er beinlínis betrekkt með fögrum og fjölbreyttum mál- verkum. Siggi vann ekki stór afrek eins og áðurnefnd systkini hans en einurð átti hann í ríkum mæli. Mér veitti hann alltaf tak- markalausa þolmæði og stuðn- ing. Einurð hans var líka fólgin í því að standa af sér allar rast- irnar og stórsjóina sem lífs- róðurinn bauð upp á og komast loksins í gegnum brimgarðinn sjálfan. Þar sem sandfjara fyr- irheitna landsins tekur við mjúk undir il. Blessuð sé minning hans. Árni Jón Árnason. Í dag kveð ég kæran frænda sem reyndist mér ákaflega vel og gaman var að heimsækja, sem ég gerði um áratugaskeið. Þegar ég var á vertíð í Grinda- vík á áttunda áratugnum var á vísan að róa að heimsækja þá bræður Sigga og Árna. Þeir voru alltaf á sínum stað og tóku mér opnum örmum. Ég óska að góður guð gefi Sigga góða heimkomu. Tómas M. Guðgeirsson. Við Sigurður Árnason vorum vinnufélagar hjá GJ Fossberg vélaverzlun í rúman áratug þangað til hann lét af störfum vegna aldurs, sem ég hygg að hafi verið árið 1995. Og í raun- inni höfðum við verið vinnu- félagar lengur, því ég vann þar öll sumur frá 1973 á meðan ég var í námi. Starfsævi Sigurðar hjá Fossberg var þó miklu lengri, því hann hóf þar störf á fimmta áratug 20. aldar. Af- greiðslustörf í vélaverzlun Fossberg urðu því ævistarf hans og stóðu í um 50 ár. Hann mundi eftir móðurafa mínum og stofnanda fyrirtækisins, Gunn- laugi J. Fossberg, sem féll frá árið 1949. Sigurður var aðeins á fimm- tugsaldri þegar hann varð fyrir heilsuáfalli og átti dálítið erfitt með mál eftir það. En Sigurður stóð sig eins og hetja. Það er ekki alltaf auðvelt að afgreiða í verslun, því getur fylgt mikið álag og miklar kröfur eru gerð- ar til afgreiðslufólks. Vinnudag- urinn langur, fyrst í kjallaran- um á Vesturgötu 3 og síðan í stórhýsinu sem Fossberg reisti á Skúlagötu 63 (nú Bríetartún 13). En Sigurður gaf aldrei eftir og náði meira að segja að kom- ast í ljósmyndabók hjá þekktum ljósmyndara þar sem hann sést standa í sloppnum fyrir innan búðarborðið. Ljóst má vera að frumkvæðið að þeirri mynda- töku hefur komið frá ljósmynd- aranum, sem sá þar gott mynd- efni. Samgangur okkar Sigurðar var ekki mikill síðustu árin. Þó hitti ég hann og Árna bróður hans fyrir einu og hálfu ári og hef ég grun um að Árni hafi reynst honum vel. Ég vil fyrir mína hönd og gamalla vinnufélaga þakka Sig- urði öll árin hjá Fossberg. Guð blessi minningu Sigurðar Árna- sonar. Einar Örn Thorlacius, fyrrv. forstjóri GJ Foss- berg vélaverzlunar. Sigurður Árnason Þeir þutu upp á hvern fjallstindinn á fætur öðrum hann Einar Haukur og Geiri frændi minn, ungir og sprækir. Þeir könnuðu hálendið, skráðu og skoðuðu, Geiri grösin og blómin, Einar örnefni og sögu. Hann sem hafði legið á Vífilsstöðum með berklana yfir sér eins og dimman skugga og fengið þann dóm að hann mundi ekki til stórræða í lífinu, kæmist með herkjum upp stiga. En Einar lét ekkert buga sig. Hann elskaði landið sitt, ekki síst Snæfells- nesið og Ytra-Skógarnes, þar sem hann átti sín bernskuár. Oft sagði hann söguna af skírn sinni, en þar var það sjálfur Árni Þórarinsson sem lagði höndina á litla kollinn hans, þá gamall maður, en einmitt þessi sama hönd hafði árið 1886, þeg- ar séra Árni var að ljúka prestaskólanum, haldið undir kistuhornið þegar borin var til Einar Haukur Kristjánsson ✝ Einar HaukurKristjánsson fæddist 25. ágúst 1930. Hann and- aðist 3. apríl 2018. Útför Einars fór fram 17. apríl 2018. grafar Þórunn Hannesdóttir, síð- asta biskupsdóttir- in í Skálholti, fædd 1794, móðir Stein- gríms Thorsteins- sonar, rektors Lærða skólans. Það var ljúft að ganga með þeim Einari og Önnu Jónu um hvíta sandströndina á Löngufjörum, horfa út á hafið og hlusta á Ein- ar rifja upp minningar sínar frá löngu liðnum dögum. Oft tínd- um við svartbaksegg og suðum á okkar óteljandi ferðum þar sem Einar sá um fróðleikinn og Anna Jóna um lífsins kræsingar og lystisemdir. Betri ferðafélaga hef ég ekki átt. Einar var ein- staklega ljúfur maður, hægur og íhugull en alltaf reiðubúinn að taka þátt, fræða og aðstoða. Oft tók hann Ragnar son minn á herðarnar þegar litlir fætur urðu þreyttir og ekki brást að girnilegur poki með suðusúkku- laði og rúsínum var dreginn upp þegar þrek samferðamannanna minnkaði á langri göngu. Þau Anna Jóna voru ólík hjón, en þó svo samhent, og deildu svo mörgu. Einar hafði alltaf næði til þess að sitja með bækurnar sínar, grúska og skrifa, það virti Anna Jóna, vissi að það voru hans ær og kýr. Hún reiddi fram matinn af mik- illi list og margir nutu stund- anna við litla borðið í eldhúsinu á Hrísateignum og eiga þaðan ljúfar minningar. Einar var ekki aðeins afar næmur á náttúruna, hann var einnig frábær stílisti, og bera árbækur Ferðafélagsins um Snæfellsnesið, bæði norðan og sunnan fjalla, glöggan vott um það. Þar flýtur fróðleikurinn fram líkt og lækur, ljóðrænn og hlýr. Lilja var augasteinn foreldra sinna, þau umvöfðu hana ást og hlýju og glöddust með henni í námi og starfi, jafnt heima sem erlendis, og síðar með hennar fallegu fjölskyldu. Versnandi heilsa og síðar fráfall Önnu Jónu og erfið elliár Einars komu því miður í veg fyrir að þau gætu notið barnabarnanna sinna sem skyldi, en hvert sem leið þeirra liggur munu þau finna hlýju streyma frá minn- ingum samferðamanna þeirra. Með Einari og Önnu Jónu eru horfnir af sjónarsviðinu einir minna bestu vina og söknuður- inn er sár, en allar góðu minn- ingarnar munu ylja um ókomin ár. Ég sendi Lilju og fjölskyldu hennar mínar innilegustu sam- úðarkveðjur, en hún umvafði pabba sinn ást og hlýju til hinstu stundar. Guð blessi minningu Einars Hauks Krist- jánssonar. Guðfinna Ragnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.