Morgunblaðið - 27.04.2018, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
Ég ætla að eyða afmælisdeginum í París en verð með sum-argleði heima á Íslandi þegar líða tekur á vorið,“ segir Hró-bjartur Jónatansson lögmaður, sem á 60 ára afmæli í dag.
„Það er búið að setja saman dagskrá fyrir mig í ferðinni og ég
fylgi henni bara eftir. Það verður farið á söfn og Michelin-veitinga-
staður prófaður á laugardaginn. Það er ágætis veðurspá fyrir af-
mælisdaginn og þá verður labbað um skemmtilega staði um Mýr-
arnar og virt fyrir sér mannlífið og sest á kaffihús og fengið sér
kaffi og jafnvel rauðvín. Svo verður dinner-sigling niður Signu um
kvöldið.“
Hróbjartur er eigandi lögmannsstofunnar Jónatansson & co. „Ég
er búinn að vera í lögmennskunni í yfir 30 ár sem er ágætur tími að
mörgu leyti og fer maður ekki í smá naflaskoðun núna? Það hefur
enginn á dánarbeðinum kvartað yfir því að hafa ekki verið nógu
mikið í vinnunni.“
Meðal þess sem Hróbjartur hefur verið að fást við í frítímanum er
tónlistar- og textasmíði. „Ég stefni að því að gefa út hljómdisk með
lögum og textum eftir mig í vor, með dyggri aðstoð Péturs Hjalte-
sted útsetjara. Betra er seint en aldrei eins og einhver sagði. Það eru
svo margir góðir tónlistarmenn hérna á landinu að það væri synd að
nýta þá ekki, en ég vildi þó líka sjálfur koma að tónlistinni og því
syng ég nokkur lög sjálfur, en aðrir sem syngja á plötunni eru m.a.
Jóhann Sigurðarson, Pálmi Gunnars og Páll Rósinkrans. Tónlistin er
fyrir fólk sem vill slaka á.“
Eiginkona Hróbjarts er Valgerður Jóhannesdóttir viðskiptafræð-
ingur. „Hún sér um reksturinn á lögmannsstofunni og að allt sé upp
á punkt og prik þar.“ Börn þeirra eru Viktoría, Jóhannes og Jónatan
og fyrir átti Hróbjartur soninn Björn.
Kvöldverður í sigl-
ingu niður Signu
Hróbjartur Jónatansson er sextugur í dag
Hjónin Hróbjartur og Valgerður stödd í Tuileries-garðinum í París.
S
igurður Jónsson fæddist
27. apríl 1948 í Reykja-
vík en ólst upp á Sel-
fossi. Sem unglingur var
hann í sveit í Langholti í
Flóa hjá Eiríki Þorgilssyni – einnig
vann hann nokkur sumur hjá
Mjólkurbúi Flóamanna. Sigurður
stundaði íþróttir og keppti bæði í
sundi og frjálsum íþróttum.
Sigurður lauk kennaraprófi frá
KÍ 1971, stúdentsprófi þaðan 1972,
stundaði nám í uppeldisfræði við
Háskólann í Lundi í Svíþjóð 1972-
73 og lauk prófi í verkefnastjórnun
hjá Endurmenntun HÍ 2004.
Sigurður kenndi við Gagnfræða-
skólann á Selfossi, síðar Sólvalla-
skóla, 1973-96, að einu ári undan-
skildu er hann kenndi við Fjöl-
brautaskóla Suðurlands. Hann og
fjölskylda hans hafa verið búsett á
Selfossi frá 1973. Hann vann í sex
ár hjá KÁ, við ferðaþjónustu KÁ og
var síðan framkvæmdastjóri Brúar
er sá um byggingarframkvæmdir
Hótel Selfoss. Hann hóf síðan störf
sem forstöðumaður Vinnumiðlunar
Suðurlands 2003 þar til hann fékk
áfall í nóvember 2007 og varð að
hætta störfum.
Sigurður sinnti félags- og leið-
beinendastörfum í Ungmennafélagi
Selfoss, sat í aðalstjórn félagsins og
var formaður þess. Hann var rit-
stjóri hérðaðsblaðsins Suðurlands
1981-91, var fréttaritari Morgun-
blaðsins á Selfossi frá 1985 og for-
maður Okkar manna, félags frétta-
ritara Morgunblaðsins, 1987-97.
Sigurður sat í bæjarstjórn Selfoss
fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1990-98,
var formaður bæjarráðs 1994-95 og
1996-97, forseti bæjarstjórnar 1995-
96 og 1997-98. Hann sat í héraðs-
nefnd Árnesinga 1994-98 og í stjórn
SASS, Samtaka sunnlenskra sveit-
arfélaga 1990-98. Þá var hann for-
maður vinafélags heimilisfólks á
Ljósheimum sem var stofnað 2004
og sat í stjórn Stróks, stuðnings-
félags geðfatlaðra.
Sigurður Jónsson kennari – 70 ára
Stórfjölskyldan Það er fastur liður að fjölskyldan hittist heima hjá Sigurði
og Esther á Laxabakka á jóladag. Þessi mynd er frá árinu 2016.
Viljasterkur og lét ekki
bugast af miklu áfalli
Á vinnustofunni Sigurður vinnur ýmislegt handverk þar.
Reykjavík Óskírður Ragnarsson fæddist 29. mars kl. 7.35. Hann vó 3.702 g og var
50 cm langur. Foreldrar hans eru Dagmar Ólafsdóttir og Þórður Ragnar Þórðarson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is