Morgunblaðið - 27.04.2018, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Frábærir
tímar
framundan!
Fitform
60+ og 70+
Vornámskeið
á tilboði
7. maí - 9. júní
Nánar á jsb.is
og í síma 581 3730
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir orðið fyrir hörðum atgangi
einhvers sem vill sannfæra þig um eitthvað
eða selja þér eitthvað í dag. Vertu varkár.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu ekki að hefjast handa fyrr en
þú hefur kynnt þér málin vandlega og velt
fyrir þér frá öllum hliðum. Gættu þess að
þú hefur aðrar skuldbindingar sem ganga
fyrir öllu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert að eiga við fólk sem er erf-
itt að ná til tilfinningalega, en þú getur það
ef þú reynir. Sem betur fer ert þú í góðu
skapi og getur tekið gamni eða gert að
gamni þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ekki taka áhættu þó að þú viljir vera
sjálfstæður og teljir að þú þarfnist ekki leið-
sagnar. Tilraunir þínar til að bæta hlutina
geta komið þér í vandræði í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ástvinir þurfa á skilningi þínum að
halda meira en nokkru sinni fyrr. Dagurinn í
dag er góður til þess að sannfæra vini um
hvaðeina sem þér er mikilvægt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Viðamikið samstarfsverkefni sem þú
ert nú að taka þátt í krefst mikils af þér.
Svo virðist sem allir séu mjög hrifnir af
áætlunum þínum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er engin ástæða til annars en
brosa framan í lífið þesa dagana. Létta af
þér einhverjum verkefnum, sem aðrir geta
sinnt, svo þú getir annað þínum hlut.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Áhættusamt verkefni blasir við,
en hversu áhættusamt er undir þér komið.
Leitaðu ráðgjafar og notaðu heilbrigða skyn-
semi og beittu þig aga, þá farnast þér vel.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ástæðulaust að fá sekt-
arkennd yfir öllu sem þú gerir fyrir sjálfan
þig. Slakaðu á þótt rétt sé að hafa skikk á
hverjum hlut.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu ekki að hespa hlutina af,
það virkar bara illa á samstarfsmenn þína
auk þess sem árangurinn verður slakur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu einn hlut fyrir í einu því ef
þú ert með of mörg járn í eldinum þá
nærðu ekki tökum á neinu. Einhverjir
árekstrar við aðra valda þér leiðindum og
áhyggjum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft að gera það upp við þig
hvaða stefnu þú vilt taka í lífinu. Láttu ekk-
ert trufla þig á meðan því þá muntu verða
sáttur við útkomuna.
Guðmundur Arnfinnsson erglöggur á hesta:
Gráni var enginn góðhestur,
geðstirður eins og flóðhestur,
pratinn og þrár
og par ekki frár,
en Pegasus vængjaður ljóðhestur.
Helgi R. Einarsson yrkir um
flóttann:
Til Svíþjóðar frá Sogni
í sól og blæjalogni
hann sveif á braut
og sæll þess naut
Sindri, þessi flogni.
Og síðan um hliðarsporin:
Hann gyrti sig breiða í brók
brosti og ákvörðun tók.
Freistingar víða
í felum hér bíða.
Nú fær hann sér pylsu og kók.
Ágúst Dalkvist rifjar upp að
„hlaup kom í Múlakvísl fyrir nokkr-
um árum úr Mýrdalsjökli, það stórt
að brúin yfir ána fór. Hugsanlegt
var að lítið gos í Kötlu hefði valdið
hlaupinu. Var þetta afar hvimleitt
fyrir þá sem bjuggu fyrir austan
ána þar sem ekki var fært suður svo
dögum skipti:
Hlutir eru fjarri fínu
fyrir austan vissa á
því Katla gamla prumpar pínu
og puðraðist með bleytu smá.“
Hallmundur Guðmundsson segist
hafa starfað við brúargerð hjá
Vegagerðinni þá þetta gerðist og
verið einn þeirra sem unnu við upp-
setningu bráðabirgðabrúarinnar,
og reyndar líka við þá nýju sem nú
stendur. Hann segist hafa ort
duggulítinn vísnabálk um þetta æv-
intýri þeirra piltanna en verið
svoddan leir að ekki sé birtandi. En
fyrsta vísan var tiltölulega skamm-
laust ort utan aukastuðlapars í síð-
ustu línu:
Pínd var Katla og pirruð smá,
prumpaði frekar blautu.
Æddi hennar sull í sjá
og sendi brú af brautu.
Um annað eldfjall, Heklu, var
þetta ort:
Næðir fjúk um beran búk
byltist skafl að hreysi;
tunglið yfir Hekluhnjúk
hangir í reiðileysi.
Úr Gránuvísum eftir Pál Bjarna-
son á Undirfelli:
Margan fráan fékk ég hest,
fóru af því sögur,
þó hefur Grána borið best
beina minna drögur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af góðhestum, hliðarspori
og hlaupi í Múlakvísl
Í klípu
„SMÁ FAGMENNSKU, PLÍS! ÞEGAR VIÐ
BIÐJUM SJÚKLINGA AÐ AFKLÆÐAST, ÞÁ
FLISSUM VIÐ EKKI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVAÐ ERTU AÐ FELA FYRIR AFTAN BAK?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera
hamingjusamur í
rigningunni.
TRÉ FÉLL Á
BÍLINN MINN!
HVAÐ Á ÉG
AÐ GERA?!
JÓN! JÓN!
ÞETTA SKALTU
GERA…
GAKKTU ÚT Í BÚÐ AÐ
KAUPA MATINN MINN
ÞÚ ERT Í VONDUM MÁLUM!
HELGA SAGÐI AÐ ÞÚ ÆTTIR
EKKI AÐ FARA Á PÖBBINN!
ENGAR ÁHYGGJUR! ÉG
DRAKK BARA VODKA! HÚN
MUN EKKI FINNA NEITT Á
ANDARDRÆTTI MÍNUM!
NEI, EN HÚN MUN KANNSKI HEYRA Í
MAGANUM ÞÍNUM!
SLOMP
SKVAMP
Ekki er nóg með að gömlu málm-hausarnir í Slayer ætli að heim-
sækja ævintýraeyjuna um hvíta-
sunnuna heldur er nú einnig farið að
minna á heimsókn Guns N’ Roses.
Sveitin ætlar að spila á hljóðfærin sín
í Laugardalnum seint í júlí.
x x x
Tískumiðlar landsins hljóta aðsafnast saman á þessum við-
burði, þó ekki væri nema til þess að
athuga hvort söngvari hljómsveitar-
innar, Axl Rose, kjósi ennþá að vefja
tóbaksklút um höfuðkúpuna þegar
hann treður upp. Tískuálitsgjafar
hljóta að geta skrifað marga dálka
um það útspil kappans.
x x x
Einnig er áhugavert að hugsa tilþess hvaða Íslendingur fær það
vandasama hlutverk að þjónusta
hljómsveitarmeðlimi. Ekki vildi Vík-
verji vera í þeim sporum að reyna að
gera Rose til geðs. Sá mun vera
dyntóttari á góðum degi en Michael
Jackson var á slæmum degi. Sá sem
sniglast í kringum sveitina verður
vafalaust löðursveittur í íslenska
sumarhitanum að sortera gulu M&M
molana frá þeim rauðu.
x x x
Víkverji fagnar því að geta hlýtt áþekkta erlenda málmvísinda-
menn hérlendis. Eitthvað þurfa
menn að hafa fyrir stafni á meðan
beðið er eftir því að Arsenal verði
Evrópumeistari og þess að Sunda-
brautin komi. Víkverji er auk þess
orðinn margs fróðari um þetta list-
form eftir ítarlega umfjöllun í
SunnudagsMogganum á síðustu ár-
in.
x x x
Eins og gjarnan þegar árin færastyfir málmvísindamennina þá er
áhugavert að sjá hversu mikið púður
er eftir í hólkunum. Rose gat á árum
áður haft hamskipti. Gat þess vegna
farið beint úr Sweet Child of Mine og
sest við hvítan flygil til að flytja Nov-
ember Rain eins og virðulegur org-
anisti. Myndbandið við síðarnefnda
lagið hefði þess vegna getað verið
tekið upp á Íslandi þar sem Slash tók
menntað gítarsóló með einmanalega
sveitakirkju í baksýn. vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Guð er hvorki vísaði
bæn minni á bug né tók frá mér
miskunn sína.
(Sálm: 66.20)