Morgunblaðið - 27.04.2018, Side 39

Morgunblaðið - 27.04.2018, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2018 Sönghópurinn Voces Thules kemur ásamt gestum fram á tónleikum á dagskrá Sígildra sunnudaga í Norðurljósasal Hörpu á sunnudag- inn kemur klukkan 17. Yfirskrift tónleikanna er Polyphonia. Efnisskráin spannar fjölradda sönghefðir frá öndverðu. Elstu lögin koma úr íslenskum og breskum mið- aldahandritum, meðal annars fjöl- radda söngur úr tíðum heilags Magnúsar Orkneyjajarls og vor- söngurinn „Sumer is icumen in“ ásamt tveimur íslenskum miðalda- tvísöngvum með latneskum messu- textum. Þá verða flutt fjölradda sálmalög frá 16. öld, sem varðveitt- ust í íslenskum handritum með ís- lenskum textum, sem og verk frá gullöld fjölröddunarinnar, meðal annars þættir úr „Missa papae Mar- celli“ eftir Palestrina ásamt verald- legum madrigölum. Einn af þeim barst til Íslands og umbreyttist í þjóðlagið „Vera mátt góður“. Tónleikarnir eru tileinkaðir minn- ingu Halldórs Vilhelmssonar, óperu- söngvara og húsasmiðs, en hann var einn af stofnfélögum Íslensku óp- erunnar. Hann hefði orðið áttræður 24. apríl síðastliðinn. Halldór átti töluverðan þátt í að sönghópurinn Voces Thules var stofnaður og átti meðal annars hugmyndina að viða- mesta verkefni hópsins, heildar- flutningi og útgáfu á Þorlákstíðum. Halldór tók þátt í nokkrum verk- efnum sem urðu undanfari að stofn- un hópsins þar sem viðfangsefnin voru fjölradda verk frá 16. öld. Gestir hópsins á tónleikunum verða nemendur á miðaldatónlistar- námskeiði í tónlistardeild Listahá- skólans sem Voces Thules hefur um- sjón með, ásamt félögum úr Camerata-hópnum sem leggur stund á flutning endurreisnar- og barokktónlistar og er skipaður nem- endum í söng og hljóðfæraleik. „Sum verkanna hefur Voces Thu- les flutt áður en annað, sem við flytj- um sem stækkaður hópur, tökumst við á við í fyrsta sinn á tónleikun- um,“ segir Sigurður Halldórsson, einn félaga Voces Thules. „Út- færslur á þessum verkum eru oft mismunandi en á þessum tónleikum flytjum við verk samin á talsvert löngum tíma, þau yngstu við lok 16. aldar.“ Sigurður segir hafa gengið vel að æfa verkin upp með söngvurum sem sumir eru að kynnast tónlist miðalda í fyrsta skipti. „Við höfum sungið þessa tónlist lengi og erum kannski búnir að gleyma að það getur verið strembið að koma sér inn í sumt en það hefur samt gengið afskaplega vel enda er úrvalsfólk í hópnum. Og sumir eru reyndir söngvarar og tón- listarmenn, jafnvel þekktir á lands- vísu, en eru nú í nýju tónlistar- umhverfi og það er áhugavert. Nýtt fólk kemur með ný sjónarhorn og nálgun,“ segir Sigurður. Miðaldatónlistarnámskeiðið nú er það níunda sem LHÍ stendur fyrir í samstarfi við Voces Thules, þar sem nemendur fá reynslu í að vinna með atvinnutónlistarhóp og taka þátt í opinberum tónleikum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Miðaldatónlist Sönghópurinn Voces Thules æfði í gær ásamt gestum sínum fyrir tónleikana á sunnudag. Fjölradda sönghefðir  Voces Thules kemur fram ásamt nemendum á miðalda- tónlistarnámskeiði  Yngstu verkin frá lokum 16. aldar Sænska akademían (SA) íhugar að veita engin Nóbelsverðlaun í ár vegna þeirrar krísu sem upp er kom- in innan SA. Það væri þá í fyrsta sinn í sögu verðlaunanna, sem afhent hafa verið árlega síðan 1901. Í sam- tali við Sænska ríkisútvarpið (SVT) staðfestir Carl-Henrik Heldin, tals- maður Nóbelsstofnunarinnar, að rætt hafi verið um það hvernig standa skuli að verðlaunaafhending- unni í ár. „Það er aðkallandi spurn- ing hvort SA muni veita Nóbels- verðlaun í ár eða ekki, en ég get ekki tjáð mig frekar um málið,“ segir Heldin. „Við erum sem stendur að skoða málið,“ hefur SVT eftir And- ers Olsson, starfandi ritara SA. Sam- kvæmt ónafngreindum heimildar- manni SVT mun vera til skoðunar að veita engin Nóbelsverðlaun í bók- menntum þetta árið, en tvenn á næsta ári, fyrir bæði 2018 og 2019. „Ég held að þetta sé eina leiðin til að koma í veg fyrir álitshnekki,“ hefur SVT eftir heimildarmanninum sem kýs að koma ekki fram undir nafni. Verðlaunin hafa verið afhent í des- ember ár hvert, en tilkynnt um verð- launahafa í október. „Ég frábið mér viðtal, en get þó sagt að það væri í ljósi aðstæðna inn- an SA og með hagsmuni verð- launanna að leiðarljósi best að af- hendingunni væri frestað í ár,“ segir Peter Englund, einn þeirra sem í byrjun mánaðar ákváðu að hætta hjá SA þegar ekki reyndist meirihluti fyrir því innn SA að afhenda lögregl- unni úttekt lögfræðistofunnar Hammarskiöld & Co sem Sara Dan- ius, þáverandi ritari SA, réð til að rannsaka tengsl Jean-Claude Arnault við alla meðlimi SA, en Arnault er kvæntur Katarinu Fros- tenson sem átti sæti í SA þar til um miðjan þennan mánuð. Eftir hrær- ingar síðustu vikna eru samtals sjö af 18 sætum SA auð en alls þarf 12 atkvæði sitjandi meðlima til að taka allar meiriháttar ákvarðanir. Horace Engdahl, sem var ritari SA 1999-2009, veitti í vikunni fyrsta viðtalið eftir átakafundinn 12. apríl þar sem bæði Danius og Frostenson yfirgáfu SA. „Í mínum huga snýst málið um lélega krísustjórnun og ósætti um hvernig vinna ætti úr stöð- unni sem upp kom í nóvember,“ seg- ir Engdahl í viðtali á P1 og vísar þar til þess að í nóvember birti Dagens Nyheter (DN) grein þar sem 18 kon- ur sökuðu Arnault um kynferðislega áreitni og ofbeldi, en þess ber að geta að DN skrifaði fyrst um ofbeldi Arnault fyrir um tveimur áratugum um það leyti sem ein kvennanna sendi Sture Allén, ritara SA 1986– 99, bréf þar sem hún lýsti ofbeldinu sem Arnault hafði beitt hana, en Al- lén hefur í sænskum fjölmiðlum lýst því yfir að hann taldi bréfið ekki mikilvægt á sínum tíma. „Ég vildi óska að ég hefði búið yfir meiri yf- irvegun í nóvember þegar við innan SA ræddum hvernig við ættum að bregðast við þeirri ógn sem birtist í greininni,“ segir Engdahl og tekur fram að erfitt hafi verið að meta sannleiksgildi greinarinnar vegna þess að frásagnirnar voru nafn- lausar og því hefði ekki verið rétt- lætanlegt að slíta öll tengsl við Ar- nault, sem var samt gert tveimur dögum eftir að lögreglan hóf að rannsaka mál Arnault í desember. Í seinustu viku kröfðust 700 vís- inda- og menntamenn þess að fyrr- nefnd lögfræðiúttekt um málefni Ar- nault yrði gerð opinber. Engdahl hæddist að þessari kröfu í viðtalinu við P1 og sagði hana „heilalausa“. „Þetta klaufalega útspil hans [Eng- dahl] sýnir enn og aftur hvernig hann og hluti SA er lokaður inni í heimi sjálfhóls, vinaspillingar og valdatafls,“ segir Johan Fornäs, pró- fessor í samskipta- og fjölmiðlafræði við háskólann í Södertörn. silja@mbl.is Verður verðlaunum frestað? Bið Kazuo Ishiguro hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum 2017. Bandaríska blússöngkonan Karen Lovely kemur fram á tónleikum á veitingastaðnum Bryggjan brugg- hús í kvöld kl. 21 ásamt hljóm- sveit sem skipuð er gítarleik- urunum Mark Bowden og Ben Rice, Róberti Þórhallssyni á bassa og Dave Melanie á tromm- ur. Lovely kom fram á Blúshátíð Reykjavíkur árið 2016 og þótti einkar kraftmikil í flutningi sín- um og lífleg á sviði. Hún mun, ásamt hljómsveitinni, flytja blús- tónlist af ýmsum gerðum í kvöld og fer miðasala á tónleikana fram á midi.is. Lovely blúsar á Bryggjunni brugghúsi Kraftmikil Karen Lovely í ham. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fim 7/6 kl. 20:00 50. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fös 8/6 kl. 20:00 51. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Lau 9/6 kl. 20:00 52. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Sun 10/6 kl. 20:00 53. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Fim 3/5 kl. 20:00 25. s Fim 10/5 kl. 20:00 29. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Fös 4/5 kl. 20:00 26. s Fös 11/5 kl. 20:00 30. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Lau 5/5 kl. 20:00 27. s Mið 2/5 kl. 20:00 24. s Sun 6/5 kl. 20:00 28. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Sun 10/6 kl. 19:30 34.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Fim 14/6 kl. 19:30 35.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Sun 29/4 kl. 19:30 48.sýn Sun 6/5 kl. 19:30 49.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Aðfaranótt (Kassinn) Fös 11/5 kl. 19:30 Frums Fös 18/5 kl. 19:30 5.sýn Fös 25/5 kl. 19:30 9.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 19/5 kl. 19:30 6.sýn Lau 26/5 kl. 19:30 10.sýn Mið 16/5 kl. 19:30 3.sýn Mið 23/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 17/5 kl. 19:30 4.sýn Fim 24/5 kl. 19:30 8.sýn Lokaverkefni leikarabrautar sviðslistadeildar LHÍ Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 2/5 kl. 20:00 Mið 9/5 kl. 20:00 Mið 16/5 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.