Morgunblaðið - 27.04.2018, Qupperneq 44
Tilbúnir í stríð ef leik-
menn Turda vilja það
Aron Rafn Eðvarðsson, landsliðs-
maður í handknattleik, er á leið til
Rúmeníu ásamt liðsfélögum sínum í
ÍBV þar sem þeir freista þess að kom-
ast í úrslitaleikina í Áskorendabikar
Evrópu. Þeir mæta til Turda með
þriggja marka forskot úr fyrri leikn-
um. „Við erum sagðir spila fast, er
ekki rætt um það? Þar af leiðandi er-
um við tilbúnir í stríð ef leikmenn
Turda vilja það,“ segir Aron Rafn í ít-
arlegu viðtali við Morgunblaðið. »4
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 117. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Fékk aðsvif í miðri sýningu
2. Andlát: Sigrún Olsen
3. Mynduðu kross á Heimakletti
4. Rekinn fyrir sænska síld
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kór Fella- og Hólakirkju og Vörðu-
kórinn halda tónleika saman í Fella-
og Hólakirkju á morgun kl. 17 og
verður boðið upp á vordrykk og lif-
andi tónlist hálftíma fyrir tónleikana
í anddyri kirkjunnar. Vörðukórinn er
skipaður söngvurum frá Flúðum og
nágrenni og munu kórarnir bjóða upp
á fjölbreytta efnisskrá og syngja lög
á borð við „Hudson Bay“ og „La verg-
ine degli Angeli“. Einsöng syngja
Inga J. Backman og Kristín R. Sigurð-
ardóttir og Sigrún Harðardóttir leikur
á fiðlu. Stjórnandi og meðleikari
kirkjukórsins er Arnhildur Valgarðs-
dóttir og stjórnandi Vörðukórsins Ey-
rún Jónasdóttir.
Tveir kórar í Fella-
og Hólakirkju
Hljómsveitin Lily of the Valley held-
ur tónleika á skemmtistaðnum Dillon
á Laugavegi í kvöld kl. 22. Hljóm-
sveitina skipa Mímir Nordquist, Tinna
Katrin, Logi Marr, Hrafnkell Már, Leó
Ingi og Guðmundur Thor. Seldir verða
bolir og geisladiskar á staðnum til
styrktar baráttunni gegn ofbeldi og
einelti gagnvart börnum.
Lily of the Valley
leikur á Dillon
Á laugardag Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða stöku
skúrir eða él. Hiti 0 til 8 stig að deginum, hlýjast S-lands.
Á sunnudag Ákveðin sunnanátt með rigningu eða slyddu.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt 5-13 m/s V-lands og skúrir eða
slydduél S- og V-til, en yfirleitt þurrt NA-lands. Hiti 0 til 8 stig að
deginum, hlýjast syðst, en víða næturfrost, einkum NA-til.
VEÐUR
Þrátt fyrir betri spila-
mennsku er íslenska karla-
landsliðið í íshokkí enn
stigalaust eftir þrjá leiki í A-
riðli 2. deildar heimsmeist-
aramótsins í Tilburg í Hol-
landi. Ísland mætti Belgum í
gær og þurfti að sætta sig
við 6:3-tap. Tveimur um-
ferðum er ólokið og Ísland
mætir Kína á morgun í nán-
ast hreinum úrslitaleik um
áframhaldandi sæti í deild-
inni. »2-3
Þriðji ósigur Ís-
lands í Tilburg
Valskonur eiga von um að verða Íslands-
meistarar í körfubolta í fyrsta sinn í
sögunni eftir að hafa tryggt sér odda-
leik við Hauka í úrslitaeinvígi Íslands-
mótsins. Valur vann leik liðanna á Hlíð-
arenda í gær eftir mikla spennu á
lokamínútunni, 68:66, en oddaleikurinn
verður á Ásvöllum á mánudagskvöld.
Haukar fóru illa með færi til að tryggja
sér sigur eða framlengingu. »3
Síðasti blóðdropinn
mun falla á Ásvöllum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Haldið var upp á upphaf fertugasta
starfsárs Jarðhitaskólans með ráð-
stefnu í Hörpu í gær, þar sem núver-
andi og fyrrverandi nemendur hitt-
ust og sérfræðingar víða að héldu
fyrirlestra.
Morgunblaðið hitti að máli þrjá
einstaklinga sem sótt hafa skólann
hérlendis. Öll höfðu orð á mikilvægi
þess að geta komið og kynnst þekk-
ingu, innviðum og verkefnum í jarð-
varma hérlendis, enda af nógu að
taka hvað varðar reynslu og verklega
þáttinn af jarðvarmavirkjun.
Charlin Bodley er fyrsti nemand-
inn frá Austur-Karíbahafseyjunni
Sankti Lúsíu, en hún er nýkomin til
landsins til að taka þátt í sex mánaða
þjálfun skólans.
„Mitt sérsvið er verkefnisstjórnun
og fjármögnun jarðhitaverkefna. Við
erum í könnunarferli fyrir boranir
heima fyrir eins og er og verkefnið er
fjármagnað af Alþjóðabankanum,“
segir Bodley, sem segir erfitt fyrir
lítið eysamfélag að ráðast í svo
áhættusöm verkefni.
Von um ódýrari orku
„Eins og er neyðumst við til að
notast við kolefnisbruna við orku-
framleiðslu. Það gerir orkuna á
Sankti Lúsíu með þeirri dýrustu í
heimi, en auk þess höfum við skuld-
bundið okkur með Parísarsam-
komulaginu til að draga úr mengun
og kolefnislosun.“
Peketsa Mangi lauk
þjálfun hjá Jarðvarma-
skólanum árið 2015.
Hann er yfirmaður þró-
unarsviðs jarðvarmaorku
til innviðauppbyggingar
hjá KenGen, lands-
virkjun Kenýa. „Ég valdi
þetta sérsvið því það eru
tækifæri í jarðvarmaorku
til uppbyggingar í Kenýa.
Stjórnvöld hafa á stefnuskrá að auka
hlut hennar í orkuframleiðslu. Það
var tækifæri að fá að taka þátt í þjálf-
un Jarðvarmaskólans til að afla
þekkingar og mynda sambönd við
sérfræðinga annars staðar frá.“
Tækifæri en þekkingu skortir
Getenesh Hailegiorgis Abebe sótti
þjálfun Jarðvarmaskólans árið 2015
og er nú í meistaranámi í jarðeðl-
isfræðirannsóknum við Háskóla Ís-
lands. Hún segir námið hérlendis
hafa hjálpað sérfræðikunnáttu sinni í
að afla gagna til að nota við rann-
sóknir. „Það eru jafnvel enn fleiri
tækifæri í Eþíópíu til nýtingar á jarð-
varmaorku en í Kenýa. En það skort-
ir fagfólk og því er verið að einblína á
aðra orkugjafa ennþá þar.“
Þekking til uppbyggingar
Jarðhitaskólinn
þjálfar áræðna
sérfræðinga
Morgunblaðið/RAX
Sérfræðingar F.v. Peketsa Mangi frá Kenýa, Getenesh Hailegiorgis Abebe frá Eþíópíu og Charlin Bodley frá
Sankti Lúsíu. Með þeim á myndinni er Lúðvík Georgsson skólastjóri Jarðhitaskólans.
Jarðhitaskóli Háskóla Sameinuðu
þjóðanna hefur starfað á Íslandi frá
1979. Orkustofnun hýsir
skólann og ber á honum
rekstrarlega ábyrgð.
Námið felst í sex mánaða
þjálfun sérfræðinga frá
þróunarlöndum þar sem
jarðhiti er til staðar.
Áhugi á nýtingu jarð-
hita fer sífellt vaxandi og
berast skólanum óskir
um þjálfun og kennslu bæði frá þró-
unarlöndum og iðnríkjum sem vilja
efla notkun endurnýjanlegra orku-
linda. Frá upphafi starfseminnar
hafa samtals 647 einstaklingar frá
60 löndum stundað nám við skól-
ann. Þar að auki heldur skólinn
reglulega námskeið í þróun-
arlöndum og hafa tæplega 1700
manns frá 30 þróunarlöndum sótt
þau frá því námskeiðahald hófst ár-
ið 2005.
Á sjöunda hundrað nemendur
ÁHUGI Á NÝTINGU JARÐVARMA FER SÍFELLT VAXANDI OG
ÓSKIR UM ÞJÁLFUN BERAST FRÁ ÞRÓUNAR- OG IÐNRÍKJUM
Borhola við Kröflu.