Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.4. 2018 Þegar Kim Bodnia gekk úr skaftinu eftir aðra seríuna af Brúnni var annar danskur leikari ráðinn í staðinn, Thure Lindhardt, og lék hann vinnufélaga og síðar ástmann Sögu í seinni seríunum tveimur, Henrik Sabroe. Synd væri að segja að Lind- hardt hafi stokkið hæð sína í loft upp við tíðindin; hann vissi ekki einu sinni af til- vist Brúarinnar. „Ég hafði ekki séð þættina,“ viðurkennir hann í The Telegraph. „Ég á ekki einu sinni sjónvarp.“ Hún býr innra með mér, þann-ig að ég sé ekki hvernig égá að geta saknað hennar. Hún er ég. Eftir átta ár með henni finn ég að hennar hugsunarháttur hefur haft áhrif á heilastarfsemina í mér, en á jákvæðan hátt.“ Þetta segir sænska leikkonan Sofia Helin í samtali við breska blað- ið The Telegraph, spurð hvort hún eigi eftir að sakna hinnar kostulegu persónu Sögu Norén sem hún lék með tilþrifum í dansk/sænsku fram- haldsþáttunum Brúnni sem runnu sitt skeið á enda fyrr á þessu ári. Eftir átta ár viðurkennir Helin að hún sé úrvinda, andlega og líkam- lega. Hlutverkið hafi reynt verulega á hana. „Mér líður eins og ég sé að koma í mark í maraþonhlaupi,“ segir Helin og líkir hlutverkinu við stein- steypugervi. „Maður þarf að halda öllu í sér og vera mjög einbeittur. Þetta er eins og að ganga með þung lóð á sér alla daga.“ Eins undarlega og það hljómar núna þá voru framleiðendur þátt- anna ekki sannfærðir um að Helin væri rétta manneskjan í hlutverkið þegar Brúin var fyrst lögð, ef svo má að orði komast, árið 2010. Óttuðust að hún væri ekki nógu þekkt í Dan- mörku en Brúin var samstarfsverk- efni danska og sænska sjónvarpsins. Þeir sjá ekki eftir því nú enda bar Helin þáttinn uppi; svo rammt kvað raunar að þeim burði að danski leik- arinn Kim Bodnia, sem lék hitt aðal- hlutverkið í fyrstu tveimur seríunum, sagði sig frá verkefninu, áður en hann drukknaði í kjölsoginu. Í úttekt The Telegraph kemur fram að Helin átti sjálf heilmikinn þátt í því að móta persónu Sögu. „Allt sem hún les, það lærir hún, en þegar kemur að mannlegum samskiptum er hún algjörlega úti á túni. Meira höfðum við eiginlega ekki að segja um Sögu Norén í upphafi,“ útskýrir Hans Rosenfeldt, handritshöfundur og einn þeirra sem skópu Brúna. Lagðist í rannsóknir Fyrsta manneskjan sem gerði því skóna að Saga væri með Asperger- heilkennið var Charlotte Sieling, sem leikstýrði fyrstu fjórum þáttunum. Það varð til þess að Helin lagðist í rannsóknarvinnu; las bækur, ræddi við samtök um heilkennið og gerði tilraunir með kauðaleg orðaskipti. Það var líka Sieling sem skóp útlitið sem Saga hélt út allar seríurnar; ómáluð, í leðurbuxum og slitnum frakka. „Sögu er slétt sama um útlit- ið,“ segir Helin. Brúin fór til þess að gera rólega af stað. Það var ekki fyrr en sýning- arrétturinn var seldur út fyrir Norð- urlöndin árið 2012 að hjólin fóru að snúast fyrir alvöru. Þátturinn hefur nú verið sýndur í 188 löndum og end- urgerður á hinum ýmsu landamær- um; svo sem Bandaríkjanna og Mexíkó, Bretlands og Frakklands og nú síðast Rússlands og Eistlands. Allir vildu Sögu kveðið hafa. Eftir aðra seríuna gerðu framleið- endur könnun meðal áhorfenda og kom þrennt í ljós, að sögn eins fram- leiðendanna, Bo Ehrhardts. „Þeir vildu Sögu, meiri Sögu og enn meiri Sögu. Þeir vildu kynnast henni betur, sjá hana sýna meiri tilfinningar og vera ekki svona mikið vélmenni. Þá vildu þeir að allt færi vel hjá Sögu. Við létum áhorfendur hafa tvennt af þessu þrennu.“ Raunar munaði mjóu að Helin fylgdi fordæmi Bodnias og segði skilið við Brúna eftir þriðju ser- íuna. Þá hefði gerð þáttanna líklega verið sjálfhætt. „Ég sá ekki hvernig við gætum haldið áfram að þróa persónuna en síðan hitti ég Hans [Rosen- feldt] og þegar við byrjuðum að spinna sá ég skyndilega leið og vissi að ég yrði að kýla á þetta,“ segir hún við The Telegraph. „Þetta hverfist um sjálfið,“ heldur hún áfram, „uppáhaldsviðfangsefni mitt í heiminum – hver er ég? – þann- ig að ég stóðst ekki mátið. Saga hefur gengið lengi fyrir ótta, reiði, hryggð og ofsa. Hún nemur ekki staðar til að velta fyrir sér hvers vegna hún er að gera hlutina.“ Það gerist loks þegar Saga er ranglega sett bak við lás og slá í loka- seríunni. „Fangavistin þvingar hana til að endurmeta allt sitt líf. Hún get- ur ekki sinnt lögreglustörfum lengur og hver er hún þá? Hver er ég ef allt er tekið frá mér?“ segir Helin sem lét sjálf loka sig inni í sólarhring til að búa sig undir hlutverkið. Spurð hvað henni hafi þótt erfiðast við það að leika Sögu svarar Helin: „Ég hata kynlífsatriði. Sem ég held að sé mjög heilbrigð afstaða. Það segir sitthvað um mig og mín heil- indi. Þetta er bara eitthvað sem mað- ur verður að láta sig hafa til að segja söguna.“ Og þvílík Saga. Saga býr innra með mér Menn hafa endanlega brennt Brúna að baki sér en sænska leikkonan Sofia Helin veit eigi að síður að hún hefur eignast ferðafélaga fyrir lífstíð, hina sérlunduðu lögreglukonu Sögu Norén. Thure Lind- hardt í hlut- verki Henriks Sabroe. Á ekki sjónvarp Ljósmynd/DR/SVT Sofia Helin hefur hlotið heimsfrægð fyrir túlkun sína á lögreglukonunni sérlunduðu Sögu Norén í þáttunum Brúnni. ’ Ég byrjaði á túr í morgun. Dæmigerð setning fyrir Sögu Norén, þegar hún bryddar upp á samræðum við annað fólk, jafnvel bláókunnugt. Ekki hennar sterkasta hlið. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is NÝJA-SJÁLAND WELLINGTON Jacinda Ardern forsætisráðherra er æf yfi r því að hafa verið líkt við Donald Trump Bandaríkja- forseta. Rótin er umfjöllun The Wall Street Journal, þar sem áherslum leiðtoganna tveggja í innfl ytj- endamálum var líkt saman. „Þetta reitti mig til reiði,“ sagði hún við sjónvarpsstöðina ABC. „Við erum þjóð sem byggir á innfl ytj- endum. Sjálf er ég bara þriðja kynslóð Nýsjálendinga.“ BANDARÍKIN FÍLADELFÍA Flugstjór- inn Tammie Jo Shults hefur fengið mikið lof fyrir að lenda farþegafl ugvél með 150 manns innanborðs á fl ugvellinum í Fíladelfíu í vikunni eftir að hreyfi ll sprakk í háloftunum. Í látunum brotnaði rúða og farþegi sogaðist hér um bil út. Allir farþegarnir nema einn lifðu fl ugferðina af en nokkrir slösuðust. Shults fl aug áður orrustuvélum fyrir Bandaríkjaher. SÓMALILAND HARGEISA Skáldkonan Naima Abwaan Qorane hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir andþjóðleg viðhorf og að sýna ríkinu lítils- virðingu. Ákæruvaldið hélt því fram að hún hefði látið í ljós sjónarmið á samfélagsmiðlum sem grafa undan sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar sem vill kljúfa sig að fullu frá Sómalíu. Málið er liður í átaki hins opinbera gegn rithöfundum og aðgerðasinnum. BRETLAND LUNDÚNIR Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, þykir með frjálslegri og nútímalegri mönnum í sinni stétt. Það kom því ekkert sérstaklega á óvart þegar hann hlóð í sjálfu með Sadiq Khan, borgarstjóra Lund- úna, Jacindu Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, og fl eirum þegar hann var í heimsókn ásamt öðrum leiðtogum Samveldisríkjanna í Bretlandi í vikunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.