Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 15
22.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Mér líður vel hér. Ég hafði unnið ínokkrum störfum áður. Ég vannsem handlangari hjá byggingar- fyrirtæki en ég var í smíðanámi í Iðnskól- anum. En ég hætti í því, ég dýrka þessar hendur og þegar ég sá allar þessar vélar og sagarblöð sem geta sagað af mér putta þá gat ég þetta ekki. Fingurnir eru mjög dýrmætir,“ segir hann og útskýrir að hann hafi svo lært ljósmyndun í Iðnskólanum, sem er eitt af áhugamálum hans. „Ég reyndi einu sinni að sækja um vinnu hjá Morgunblaðinu en þeir voru ekki að ráða. En eftir að hafa verið atvinnulaus í tvö ár þá bara var ég að missa vitið.“ Var erfitt í upphafi að byrja að vinna hjá Leturprenti? „Ekki svo. Vaktstjórinn hjálpaði mér mikið að venjast umhverfinu. Ég er mjög ánægður hér, ég kýs frekar að vinna en að vera at- vinnulaus. Þegar maður er ekki að gera neitt kemur alltaf þessi hugsun; ég er ekki að gera neitt fyrir þjóðfélagið, ég er ekki að gera neitt fyrir landið. Ég er bara hér að lifa á kerfinu. Þá fær maður þessa hræðilegu tilfinningu að maður sé gagnslaus. Að vera ekki að gera neitt. Ég er aðallega að vinna af því að ég vil gera eitthvað fyrir landið, fyrir þetta fyrir- tæki. Að þetta fyrirtæki haldi áfram að lifa. Þetta fyrirtæki er lítið og það er einfalt að tala við starfsfólkið, líka forstjórann. Það sem er óhuggulegt við stór fyrirtæki er að stund- um veistu ekki einu sinni hver á fyrirtækið.“ Ég heyrði að þú værir að fara með starfs- fólkinu til útlanda, er það ekki skemmtilegt? „Jú, það er mjög fínt. Ég held að mörg fyrirtæki fari að ráðum Walt Disney. Hann reyndi að hugsa um starfsfólkið sitt. Þá gekk þetta aðeins betur. Hér eru tveir forstjórar, og þeir vita alveg hvað þeir eru að gera, þó að stundum viti þeir það ekki en það er þannig með alla forstjóra,“ segir hann í gríni. Finnst þér þú hafa styrkst við að vinna hérna? „Ef ég lít á mig eins og ég var fyrir fjórum, fimm árum, þá var ég í algjörri rúst. Mér leið hræðilega. Lífið fer upp og niður hjá öllu fólki. Ef maður tekur vonda ákvörðun fer lífið niður á við. Og fáir eru bara alltaf á leiðinni upp.“ En þú ert núna á uppleið? „Ég er núna á uppleið og ég vonast til að það haldi áfram.“ Hvað gerir þú í frítímanum? „Á þriðjudögum og fimmtudögum fer ég á æfingu í Hreyfingu. Ég er þar í svona klukku- tíma í einu því ég er að hugsa um að taka þátt í tíu kílómetrum í Reykjavíkurmaraþoni með fólkinu í Specialisterne.“ Hvað er skemmtilegast við starfið? „Félagslífið er eitt. Svo er þetta fjölbreytt. Það er nóg að gera. Svo er þetta lítið fyrir- tæki þannig að ég er tilbúinn að treysta fólki hér.“ „Ég er núna á uppleið“ Hinn 28 ára gamli Daði Gunnlaugsson hefur unnið hjá Leturprenti í þrjú ár. Hann er í hálfu starfi, frá 10-14, og unir hag sínum vel. Hann segist vilja gera gagn í samfélaginu en fyrir nokkrum árum var hann í mikilli lægð. Nú er hins vegar allt á uppleið. ’Þegar maður er ekki að geraneitt kemur alltaf þessi hugs-un; ég er ekki að gera neitt fyrirþjóðfélagið, ég er ekki að gera neitt fyrir landið. Ég er bara hér að lifa á kerfinu. Þá fær maður þessa hræðilegu tilfinningu að maður sé gagnlaus. Eygló hafði samband við okkur og ég slótil. Ég þurfti að ræða þetta við starfs-menn og þeir voru svolítið til baka fyrst. Við höfðum einu sinni verið með starfsmann sem þurfti svolítið að sinna og fylgjast með. Þannig að starfsfólkið mitt var á báðum áttum en ég fékk þau til þess að láta á það reyna. Annaðhvort myndi það ganga eða ekki, það kæmi þá í ljós. Daði kom þá til okkar og það var fljótlega sem við ákváðum að halda honum,“ segir hann, en um tíu manns vinna hjá fyrir- tækinu. „Daði er að aðstoða í frágangi, að gorma inn skýrslur, hefta blöð, pakka, plasthúða og allt sem til fellur,“ segir Bjarni. Styrkist með hverju árinu „Það sem hefur gerst er að hann hefur styrkst alveg svakalega. Fyrst fann maður fyrir óör- yggi en hann styrkist með hverju árinu. Við höfum verið að fara út á tveggja ára fresti og hann hefur komið með í þessar ferðir. Fyrst þurfti að leiða hann í gegn í ferðinni því það var hræðsla fyrir einhverju nýju, en nú síðast vor- um við í Valencia og þá var hann bara einn úti um alla borg að taka myndir. Það er ótrúlegt hvað hann hefur vaxið. Svo er hann búinn að kaupa sér íbúð og býr einn. Þvílík breyting, þetta er eins og lygasaga. Hann er allt annar maður. Tekur þátt í samræðum, sem hann gerði ekki áður. Þetta hefur breytt honum rosalega. Það er gaman að fylgjast með því,“ segir hann. „Ég myndi ekki hika við að taka annan ef Daði myndi hætta.“ Morgunblaðið/Ásdís Hann er allt annar maður Burkni Aðalsteinsson, eigandi og framkvæmdastjóri prent- smiðjunnar Leturprents, segir ótrúlegt að fylgjast með breyt- ingum starfsmannsins Daða. ’Þvílík breyting, þetta er einsog lygasaga. Hann er allt ann-ar maður. Tekur þátt í samræðum,sem hann gerði ekki áður. Þetta hefur breytt honum rosalega. Burkni Aðalsteinsson, eig- andi Leturprents er ánægð- ur með Daða Gunnlaugsson sem stendur sig með prýði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.