Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Blaðsíða 28
Le Clos du Lac-tjaldsvæðið er í nær 1.500 metra hæð og útsýnið eftir því. Flest höfum við gist í tjaldi og margir Íslendingar eru reynslu- boltar í því að koma upp tjaldi og sofa jafnvel í smá næturfrosti vel dúðaðir. Falleg tjaldsvæði í Frakk- landi, Svíþjóð, Grikklandi og víðar í Evrópu eru dásamleg að sumri til og aldrei næturfrost. Tjaldsvæðið Le Clos du Lac er að finna í 1.485 metra hæð, nálægt litlu frönsku fjallaþorpi, Saint Apollinaire í Provence-héraðinu, al- veg á suðurjaðri hins gríðarstóra þjóðgarðs Ecrins. Ekki aðeins er útsýnið óvið- jafnanlegt heldur eru margir afþreyingarmöguleikar fyrir fjöl- skylduna í nágrenninu. Serre- Ponçon vatnið er í göngufæri frá tjaldsvæðinu, þar sem hægt er að synda og veiða, og Boscodon- skógurinn allt um kring er með fal- legar gönguleiðir, en samkvæmt op- inberum tölum eru loftgæði í öllu Útilega erlendis Íslendingar þekkja tjaldútilegur innanlands út og inn. En hvað með að prófa slíkt ferðalag erlendis og gista á bestu tjaldsvæðum Evrópu? Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Almött veggjamálning Dýpri litir - dásamleg áferð ColourFutures2018 Silver Shores Steel Symphony Faded Indigo FERÐALÖG Tartaruga Camping heitir tjaldsvæði í Zakynthos íGrikklandi en þar skemmta gestir sér einkum við að kafa og fylgjast með skjaldbökum á sundi. Grísk útilega 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.4. 2018 Ferðafrömuðurinn og fjölmiðla-konan með meiru, SnæfríðurIngadóttir, hefur ferðast mik- ið um ævina. Ferðabakterían hefur bitið hana svo harkalega að fjöl- skyldan ætlar að dvelja allan næsta vetur á Tenerife. Ákveðinn vendi- punktur varð til þess að fyrir fimm árum fór hún að prófa annan ferða- máta, sem hentaði fjölskyldunni mun betur. Þessi ferðamáti snýst um að hafa íbúðaskipti við fólk um víða veröld og er reynslan orðin slík að Snæfríður hefur nýlega gefið út handbókina Íbúðaskipti - minni kostnaður, meiri upplifun. „Þessi valmöguleiki í gistingu hefur opnað fleiri dyr að ferðalög- um. Við eigum þrjú börn og það vita allir að það er kostnaðarsamt að ferðast með slíkan fjölda og við værum ekkert að því nema við nýtt- um okkur íbúðaskipti,“ segir Snæ- fríður. „Svo er þetta bara svo miklu þægilegra. Ég hef verið á hótelum með mín börn og þar er þröngt og börnin hafa lítið við að vera í stað þess að fá heimili með öllu, jafnvel garði, verönd og barnadóti.“ Snæfríður hefur prófað flestallar vefsíður sem bjóða upp á íbúðaskipti en er núna fastur meðlimur á tveim- ur. „Þessar síður bjóða upp á mis- munandi þjónustu svo það fer eftir því hvers konar þjónustu og skiptum fólk er að leita eftir á hvaða síðu best að skrá sig á. Það eru til dæmis til sér íbúðaskipti fyrir Ástralíu, síður sem sérhæfa sig í að þjónusta barna- fjölskyldu og svo framvegis. Fólk þarf að finna út hvað hentar því best.“ Í bókinni er farið vel yfir síður sem eru í boði, kosti og galla íbúða- skipta og hvernig þau ganga fyrir sig, svo sem hvernig skal undirbúa þau, hvernig á að hafa bílaskipti og allt er viðkemur dvölinni og heim- komunni. „Ég er sjálf hætt að telja hvað við höfum prófað þetta oft. Við erum á ferðalagi um tvo til þrjá mánuði á ári, bæði innanlands og utan og ég nýti þessar síður einnig fyrir innan- landsferðir, fór í tvo sumarbústaði á síðasta ári til dæmis.“ Íbúðaskiptin breyttu öllu Snæfríður Ingadóttir og fjölskylda hennar hafa upplifað hvert ævintýrið á fætur öðru eftir að þau fóru að nýta sér íbúðaskipti. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Fjölskyldan við Teresitas-ströndina á Tenerife; Matthías Kristjánsson, dæt- urnar Bryndís, Margrét Sóley og Ragn- heiður Inga og svo Snæfríður Ingadóttir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.