Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.04.2018, Page 18
S
tríðið endalausa í Sýrlandi virðist
óralangt frá Íslandi og er það í
hugum margra. Fáir Íslendingar
hafa lagt leið sína þangað, enda eitt
hættulegasta svæði jarðar um
þessar mundir. Því kom það öllum í opna
skjöldu að heyra um meint andlát ungs Íslend-
ings þar, en fréttir af því bárust í byrjun mars.
Haukur Hilmarsson er talinn hafa fallið í loft-
árás tyrkneska hersins 24. febrúar, en hann
barðist með Kúrdum í Sýrlandi.
Móðir hans, Eva Hauksdóttir, vissi ekki um
fyrirætlanir sonar síns að fara til Sýrlands og
segir það hafa verið áfall að frétta af honum
þar. Þrátt fyrir að hún hafi lengi leitað svara er
enn flest á huldu um afdrif Hauks, en ekkert
hefur til hans spurst síðan í byrjun febrúar.
Eva hefur ekki gefið upp alla von þótt hún bú-
ist ekki við að hitta son sinn aftur.
Sendir Erdogan móðgunarpósta
Eva hefur ekki gefið upp alla von en segir ekk-
ert nýtt hafa komið fram í leitinni að Hauki á
síðustu vikum. Hún hefur gagnrýnt íslensk
stjórnvöld sem hún segir hafa geta staðið sig
betur. Eva segist ósátt við að stjórnvöld hafi
ekki aflað upplýsinga varðandi fréttir tyrk-
neskra fjölmiðla í mars um að Tyrkir væru
með lík Hauks og ætluðu að skila því heim.
„Mér skilst að utanríkisráðuneytið hafi látið
einhverja hafa samband við einhverja sem
höfðu samband við einhverja sem vita ekkert.
Ráðuneytið sjálft hefur ekkert haft samband
við þessa fjölmiðla. Mér finnst það lélegt, en ég
hef svo sem engar væntingar til íslenskrar
stjórnsýslu. Rannsóknin hjá lögreglunni hefur
farið þannig fram að þeir bjuggu til málsnúmer
og biðu svo eftir að upplýsingar kæmu til
þeirra. Mér finnst það mjög einkennileg rann-
sóknaraðferð á mannshvarfi,“ segir Eva.
„Ég hélt fyrst að utanríkisráðuneytið gæti
aflað upplýsinga en þetta virðist bara vera ein-
hvers konar viðskiptaráðuneyti. Ég held ekki
að málið sé að þau vilji ekki gera þetta vel,
heldur að þau séu bara algjörlega úrræðalaus.
Það kemur t.d. fram í gögnum frá þeim að þau
hafi fylgt leiðbeiningum tyrknesku lögregl-
unnar um upplýsingaöflun. Við erum að tala
um ríki þar sem yfirvöld skilgreina alla and-
spyrnumenn sem hryðjuverkamenn. Og í raun
alla sem standa gegn þeim, þar með talinn
Macron Frakklandsforseta. Þetta eru ráð-
gjafar utanríkisráðuneytisins – tyrknesk
stjórnvöld sem líta á Hauk sem hryðjuverka-
mann. Ég hef ákveðna samúð með þeim því
þetta sýnir bara að þau vita ekkert hvernig þau
eiga að snúa sér.“
Hefur þú sjálf reynt að afla upplýsinga eða
haft sjálf samband við tyrknesk stjórnvöld?
„Nei, ekki tyrknesk stjórnvöld, við vorum
strax vöruð við því. Það gæti verið hættulegt
og hefði örugglega ekkert upp á sig. Við höfum
hins vegar verið í sambandi við þessar kúrd-
ísku hreyfingar sem Haukur var að vinna með
og blaðamenn sem eru að reyna að afla upplýs-
inga,“ segir Eva en segist sjálf efast um að
tyrknesk stjórnvöld hafi nokkrar upplýsingar
um málið.
„Og ef þau hafa upplýsingar hef ég ekki trú
á að þau myndu láta þær af hendi. Þau væru
búin að því ef þau vissu eitthvað og vildu upp-
lýsa okkur um það.“
Þú hefur verið að skrifa bréf til Erdogan,
hvers vegna?
„Já, ég hef skrifað Erdogan nokkra móðg-
unarpósta. Sumir virðast halda að ég sé að því
til þess að fá svör. Það er ekki málið, mér finnst
ég hafa rétt á því að móðga stríðsglæpamenn
og fasista og mér finnst fáránlegt að það skuli
vera í gildi íslensk lög sem vernda mestu
drullusokka veraldar sérstaklega. Ég vil að
þessi lög verði afnumin. Ég áskil mér rétt til
þess að ausa skít yfir hvern þann fasista sem
mér sýnist, hvenær sem mér sýnist. Ef Íslend-
ingar eru tilbúnir að halda í þessi fornaldarlög
er ég tilbúin að láta reyna á tjáningarfrelsi
mitt fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Það
er hneisa að þessi lög skuli vera í gildi.“
Styður ekki för vina Hauks
Nú hefur komið fram að vinir Hauks vilja fara
til Sýrlands að leita svara. Er það í bígerð?
„Já, það er í bígerð en ég vona að það verði
ekki gert fyrr en það er óhætt. Um daginn
mættu nokkrir vinir Hauks á þingpallana og
Lárus Páll Birgisson sjúkraliði kom þeim
skilaboðum áleiðis að stjórnvöld ættu að greiða
fyrir för þeirra til Afrin með því að semja við
tyrknesk stjórnvöld um að hleypa þeim inn á
svæðið. Það eru fleiri en fjölskyldan sem finnst
óbærilegt að fá ekki staðfestingu á því hvort
Haukur er lífs eða liðinn.“
Veistu hvenær þau ætla að fara?
„Nei. Það setur skiljanlega ugg að fólki við
þá tilhugsun að fleiri setji sig í hættu og í kjöl-
farið hafði maður á sjötugsaldri samband við
utanríkisráðuneytið og spurði hvort væri frek-
ar hægt að greiða fyrir leiðangri eldri borgara
á svæðið. Það getur nefnilega verið að Tyrkj-
um stæði ógn af Lalla sjúkraliða því hann hef-
ur tvívegis verið handtekinn fyrir að ógna er-
lendu ríki,“ segir Eva í háði og útskýrir að
Lárus hafi staðið fyrir utan bandaríska sendi-
ráðið með pappaspjöld og mótmælt stríði.
„Þessari beiðni var synjað. Skiljanlega telur
utanríkisráðuneytið ekki rétt að stjórnvöld
greiði fyrir því að fólk fari á hættusvæði.“
Styður þú það að vinir Hauks fari út og leggi
sig í hættu?
„Ég vil alls ekki að þeir geri það. Ég ræð því
ekki, en ég hef beðið fólk að bíða aðeins og ég
trúi því að þau muni bíða,“ segir hún og bætir
við: „Mér finnst sjálfsagt að kanna mögu-
leikana og fara á stúfana seinna þegar það er
óhætt. Þessi hópur er í sambandi við blaða-
menn sem vita hvernig er öruggast að komast
inn á svæðið. Hvar eru minnstu líkur á að mað-
ur verði skotinn. En mér þykir vænt um vini
Hauks og ég vil ekki að fleiri fjölskyldur missi
börnin sín eða systkini.“
Mjög reið og hneyskluð
Nú eru komnir næstum tveir mánuðir síðan
hann hvarf. Er enn von um að hann sé á lífi?
„Á meðan við höfum engar sannanir um að
hann sé látinn er auðvitað von. Ég vona að ég
muni sjá hann aftur en reikna ekki sérstaklega
með því.“
Hvernig er samband ykkar?
„Samband okkar hefur alltaf verið mjög náið
og sennilega óvenjunáið. Við höfum verið alveg
óskaplega góðir vinir og aldrei hefur borið
neinn skugga á þá vináttu. Ég hef aldrei reiðst
Hauki fyrr en ég frétti af þessu,“ segir Eva, en
hún vissi ekki að Haukur ætlaði til Sýrlands til
að taka þátt í vopnuðum átökum.
Varstu þá reið út í hann að hafa farið til Sýr-
lands?
„Ég var mjög reið yfir því að hann skyldi
setja sig í lífshættu án þess að láta mig eða
pabba sinn vita, en auðvitað vissi hann að ég
hefði gert allt til að stoppa hann. Já, ég var
reið, og hneyksluð á honum fyrir að fara þessa
leið að því að styðja Kúrda þótt ég hafi fullan
skilning á málstaðnum. Ég hef aldrei beinlínis
reiðst honum áður, þótt stundum hafi fokið að-
eins í mig. Þetta var áfall.“
Veistu hvað það var sem rak hann á þennan
stað, af hverju honum fannst hann þurfa að
ganga svona langt að taka beinan þátt í stríði?
„Hann útskýrði sjálfur í myndbandi að í Ro-
java væri eina alvöru lýðræðistilraunin í Mið-
austurlöndum. Hauk hefur alltaf langað til að
taka þátt í einhvers konar byltingu þótt ég hafi
nú ekki haldið að hann myndi beita vopnavaldi
sjálfur. Þarna er bæði í gangi samfélagsleg
bylting og alvöru lýðræðistilraun sem honum
fannst ríma við sinn anarkisma. Hann hefur
líka ofboðslega andúð á fasisma,“ segir Eva.
„Maður hefur séð myndbönd þar sem ísl-
amska ríkið brenndi flugmann lifandi. Þeir
krossfesta fólk opinberlega, þeir hafa háls-
höggvið menn og raðað hausunum á grindverk
á stærsta torgi Raqqa. Það eru til myndir af
þessu á netinu og auðvitað misbýður öllu
sæmilegu fólki. En flest okkar eru ekki sæmi-
legt fólk, flest okkar horfa bara í hina áttina,“
segir Eva.
„Haukur segir í þessu myndbandi að við höf-
um engan rétt til þess að dást að þeim sem
standa í þessari baráttu og gera svo ekkert
sjálf, lyfta ekki litla fingri. Og það er alveg rétt
hjá honum. En hins vegar ber okkur ekki
skylda til að stefna lífi okkar í voða. Við eigum
að styðja ofsótta eftir pólitískum leiðum, en
það er enginn vilji til þess. Það er ekki einu
sinni vilji til þess að lýsa yfir stuðningi við
Kúrda.“
Evu er mikið niðri fyrir.
„Við skrifum ekki einu sinni undir undir-
skriftalista, við gerum ekkert. Flestum er and-
skotans sama. Haukur er ekki aumingi, en
hann fór ansi langt í hina áttina. Ég vona að
aðrir taki hans hugrekki ekki til fyrirmyndar.“
Klikkaður raunveruleiki
Finnst þér þetta vera hetjuskapur?
„Hetjuskapur? Samkvæmt orðabókarskil-
greiningu er Haukur hetja. Hvort það gleður
mig er svo annað mál. Það skiptir mig engu
máli hvort sonur minn er heigull eða hetja,
hann er bara Haukur í mínum huga. En já,
hetja er sá sem vinnur afrek, tekst á við ofur-
efli og gengur ótrauður til móts við miklar
hættur. Þá er hann hetja. Og ég vildi óska að
hann hefði ekki verið svona mikil hetja.“
Það var svo undarlegt að lesa um það að
hann hefði verið gerður að liðsforingja eftir að-
eins tveggja vikna þjálfun.
„Það er þessi
dauðans óvissa“
Þjóðin var slegin þegar fréttir bárust í byrjun mars um að Íslendingur væri mögulega
fórnarlamb stríðsins í Sýrlandi. Nú um tveimur mánuðum síðar hefur enn ekki tekist
að finna Hauk Hilmarsson, lífs eða liðinn. Móðir hans Eva Hauksdóttir segist lifa í
voninni þó að sú vonartýra sé dauf. Hún talar um sorgina og reiðina og um byltingar-
manninn son sinn sem vissi vel að hann væri að stofna lífi sínu í hættu.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’ Ég var mjög reið yfir því aðhann skyldi setja sig í lífs-hættu án þess að láta mig eðapabba sinn vita, en auðvitað
vissi hann að ég hefði gert allt til
að stoppa hann. Já, ég var reið,
og hneyksluð á honum fyrir að
fara þessa leið að því að styðja
Kúrda þótt ég hafi fullan skilning
á málstaðnum. Ég hef aldrei
beinlínis reiðst honum áður, þótt
stundum hafi fokið aðeins í mig.
Þetta var áfall.
Fjölskyldan saman árið 2010, Eva og synir henn-
ar tveir, Darri og Haukur Hilmarssynir.
Ljósmynd/Ingólfur Júlíusson
VIÐTAL
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.4. 2018